Tíminn - 28.09.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 28. september 1974.
Laugardagur 28. september 1974
Vatnsberinn (20. jan.—18. febr.)
Það er alveg óþarfi að láta hugfallast, og fráleitt
að vera haldinn svartsýni og bölmóð, þótt
eitthvað smávegis bjáti á. Þú skalt reyna að lita
sem mest á björtu hliðarnar á hverju máli, þvi
að allt stendur til bóta hjá .þér.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz)
Þaðlitur út fyrir, að fólk i áhrifastöðum, sem þú
kannt aðhafa leitað til, geri þér einhvern greiða,
en þú þarft að minna á þig. Einnig er liklegt, að
þú komist i vont skap yfir að þurfa að standa skil
á einhverju, sem þú hefur trassað.
Hrúturinn (21. marz-j-19. april)
Þetta virðist vera nokkuð góður dagur hjá þér,
sérstaklega verður kvöldið ánægjulegt fyrir þig.
Einhver atburður gerist, sem sannfærir þig um
það, að þú eigir að einbeita þér að þvi að sækjast
eftir vinsældum innan fjölskyldunnar.
Nautið (20. april—20. mai)
Nú skaltu ekki hugsa þig um lengur, þvi að i dag
eru einmitt meiri möguleikar en um langt skeið
á að ná meira út úr þvi, sem þú hefur keppt að.
Þvi skaltu ekki draga lengur að reyna að koma
þinum málum áleiðis á þann hátt, sem þú telur
heppilegast.
Tviburar (21. mai—20. júni)
Þetta er einkennilegur dagur, og vis til að verða
þér minnisstæður. Það eitt má þó fullyrða, að
hann er ekki heppilegur til langferða, en stutt
ferð til vina eða kunningja gæti orðið þér til
ánægju.
Krabbinn (21. júní—22. júli)
t kvöld, eða undir kvöldið, er mjög liklegt að þér
berist til eyrna ánægjulegar fregnir af vinum
eða kunningjum. Þú skalt endilega notfæra þér
þá möguleika, sem þú hefur til að auka þekkingu
þjna.
Ljónið (23. júli—23. ágúst)
Varastu þessar tilhneigingar þinar aö vera 01
hlédrægur Leyfðu hæfileikunum, sem þú ert
gæddur, að njóta sin, og vertu viss: árangur þess
erfiðis, sem þú hefur á þig lagt, mun verða eftir
þvi ánægjulegur.
Jómfrúin (23. ágúst—22. sept.)
Þetta virðist vera þó nokkuð mikilvægur dagur
hjá ýmsum þeim, sem fæddir eru undir
Jómfrúrmerkinu, og litur út fyrir, að persónuleg
málefni ýmissa gætu orðið fyrir óvæntum og
mikilvægum breytingumr- Flutningar og
bústaðaskipti á dagskrá — eða hvað?
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Það er eitthvað mikilvægt á döfinni, og ekki
fráleitt, að kvöldið verði skemmtilegt hjá
sumum, og það litur út fyrir, að ástamálin verði
ofarlega á blaði, — en gott er aöhafa það hugfast
að fara að öllu með gát.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
Það eru ekki neinar likur á skyndilegum
breytingum til batnaðar i dag, eins og þú hefur
verið að búast við. Þú ættir að taka lifinu með ró,
vinna að framgangi þinna mála i rólegheitum og
muna, að stundum ergottað flýta sér hægt.
Bogmaðurinn (22. nóv.—21. des.)
Þú ert með ýmsar snjallar hugmyndir i kollinum
um þessar mundir, og það er um að gera fyrir
þig að koma þeim á framfæri sem fyrst. t kvöld
ættir þú að gera f jölskyldunni eitthvað til ánægju
og gleði. Það borgar sig i óvæntri mynd.
Steingeitin (22. des.—þ19. jan.)
Hafðu augu og eyru opin, og sérstaklega skal þér
ráðlagt að beita athyglinni i dag, þvi að
einhverjir vinir þinir eru visir með að gefa þér
ráðleggingar eða hugmyndir, sem komið geta að
gagni i mörgum myndum.
IffliiiiÍulIlSí.m IUhI Hi
Aulaleg sjónvarpsmynd
ÞAÐ ER orðið langt siðan
sjónvarpsglápendur hafa verið
snuðaðir jafnherfilega og á
mánudagskvöldið var (23. sept.)
Þá var á dagskrá mynd, sem
hét Stóðhesturinn og var sögð
vera brezk sjónvarpsmynd eftir
John King og David Rook.
Dagblaðið Visir kynnir myndina
á þá lund, (og hefur vafalaust
haft það eftir forráðamönnum
sjónvarpsins), að gera megi ráð
fyrir þvi að margir hestamenn
muni hafa gaman af þvi að sjá
þessa mynd, þvi eins og nafnið
bendi til, sé mikið um hesta i
henni.
Meginefni myndarinnar er það,
að einsetumaður býr með hundi
sinum og hrossum (mörgum, að
manni skilst) á afskekktum stað á
Suðvestur-Englandi. Siðan gerist
það einn góðan veðurdag, að stóð-
hestur sleppur úr haldi i
nágrenninu, kemst I kynni við
hross einbúans, heillar hugi kven-
kynsins og hefur á brott með sér
fimmtiu merar.
Og nú er bezt að vitna orðrétt i
dagskrárkynningu Visis, (sem
áreiðanlega er gerð i góðri trú,
samkvæmt heimildum, sem
blaðið hefur aflað sér á réttum
staö): „Einbúinn heldur þegar til
þessa að leita að stroku-
hrossunum, og gengur myndin að
mestu út á eltingaleik einbúans
við hestana...”
Electrolux
Hl
Frystikista
310 Itr.
Electrolux Frystikista TC114
310 lítra Frystigeta
21,5 kg á dag. Sjálfvirkur hita-
stillir (Termostat). Öryggisljós.
Ein karfa- Útbúnaður til að fjar-
lægja vatn úr frystihólfinu. Seg-
ullæsing. Fjöður, sem heldur
lokinu uppi.
Vörumarkaðurinn hf.
Eftir þessu að dæma hefði mátt
búast við fjörugri og skemmti-
legri mynd, þar sem riðið er i
kringum hross á heiðum, en þvi
er nú ekki aldeilis fyrir að fara.
Maðurinn leitar ekki að hrossum,
heldur að einum hesti, og fer svo
afglapalega að þvi, að engum
heilvita manni gæti dottið annað
eins í hug. Menn ná ekki ljón-
styggum hesti i óbyggðum með
þvi að spasséra á eftir honum og
ætla að henda kaðallykkju um
háls hans. (Hefði ekki verið nær
að reka til hans þessar fimmtiu
hryssur, sem hann var búinn að
gera skotnar i sér, reka þær
siðan, og hann með, i heima-
hagana, þar sem þær voru
kunnugar, og veiða „graddann”
þannig?) Nei, svo sjálfsagt mál
dettur höfundum myndarinnar
ekki i hug. Þeir láta einbúann
byrja á þvi að elta hestinn á
jeppa, og er það ferðalag allt hið
fáránlegasta, unz þvi lýkur i
skógi, þar sem jeppatetrið stang-
ast heldur óþyrmilega á við trjá-
bol, en kúskurinn veltist um hálf-
rotaður og með sár á enninu.
Hann er þó ekki veikari en svo, að
brátt getur hann haldið ferðinni
áfram, en nú með kaðalspotta og
beizli eitt i höndum. Allt er það
ferðalag með miklum ólikindum,
en þegar manninum hefur loks
tekizt að ná hestinum, getur hann
komið upp i hann beizli, sezt á bak
og flengriðið eins og hann lystir.
Þessi ljónstyggi, hálfvillti grað-
hestur var þá eftir allt saman
taminn, mannelskur og ekkert
nema þægðin.
Það sem langverst er við þessa
mynd er þó það, að hún minnir
svo mjög á franska kvikmynd
sem heitir Hvita hryssan, að
flestir myndu að óreyndu ætla, að
hún væri ekkert annað en klaufa-
leg stæling á henni. Sá er bara
munurinn, að franska myndin er
snjöll og áhrifamikil (eins og
Frakka var von og visa), enda
byggð á allt öðrum forsendum, en
þessi mynd er bæði ólistræn og
ósnjöll, en auk þess svo fjarstæð
öllum raunveruleika, að hún
gefur alranga mynd af þvi sem
hún á að lýsa.
Dýramyndir sjónvarpsins eru
margar hverjar með allrabezta
efni sem það flytur, og eiga
áreiðanlega ósmáan þátt i
vinsældum þess. En þessi mynd
var slys — og skyldi langt til
annars eins.
Sveitakarl
VIRKM
ÞAÐ ER I
SEM ÚRVAUD ER
'fDfíD
Veljið vegg
fóðrið og
mólning
una d
SAAAA
STAÐ
muml'
Veggfóður- og mólningadeild
Armula 38 - Reykjavík
Símar 8-54-66 & 8-54-71
Opið til 10 á föstudagskvöldum
og hádegis á laugardögum
Tíminn er
peningar
Auglýsitf
i Tímanum I
Sólun
SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA,
JEPPA- OG VORUBÍLA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin á sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða.
önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
ARMULA 7 V30501 &84844