Tíminn - 25.10.1974, Síða 15
Föstudagur. 25. október. 1974.
TÍMINN
15
Leikmenn
Liverpool:
Geta
sjálfum
sér um
kennt...
— Þeir fóru illa
með marktækifærin
gegn Ferencvaros
Það er mönnuin hulin ráðgáta,
hvers vegna hið trausta Liverpool
lið var ekki búið að ná afgerandi
forystu i þessum leik þegar i leik-
hléi. Þennan leik hefðú þeir auð-
veldlega getað unnið 6-0, en þess i
stað urðu hinir 35.027 áhorfendur
vitni að 1-1 jafntefli. Kevin Kee-
gan skoraði mark Liverpool rétt
fyrir hlé. i seinni hálfleik héldu
lcikmenn Liverpool uppteknum
hætti, og föru þannig með dauða-
færin, eins og þeir þyrftu alls ekki
að skora fleiri mörk, að þeir væru
komnir áfram á þessu eina. Og
þeim hefndist fyrir þetta, þegar
Janos Mate skoraði jöfnunar-
mark Ferencavros, minútu eftir
að venjuiegum leiktima var lokið.
Og nú verða leikmenn Liverpool
að gjöra svo vel og skora mark i
Ungverjalandi viiji þeir komast
áfram.
★ ★
DUNDEE UTD. —
BURSAPOR 0-0
Það kom mikið á övart, að
Dundee Utd, skyldi ekki geta kné-
sett tyrkneska liðið Bursapor á
heimavelli sinum, Tannadice
Park. Þar hefur liðið skorað 14
mörk i 4 leikjum i skozku deild-
inni án þess, að fá á sig mark. Og
hinir 10.000 áhorfendur á leiknum
sneru vonsviknir heim, þeir hafa
áreiöanlega verið að velta þvi
fyrir sér, hvernig i ósköpunum
leikmenn Dundee gátu farið að
þvi að brenna af þeim aragrúa af
dauðafærum, sem þeir fengu, auk
þess, sem einhver hefur áreiðan-
lega bölvað hinum knattliðuga
markverði Tyrkjanna i sand og
ösku.
★ ★
INTER MILAN — FC
AMSTERDAM 1-2.
Það, að FC Amsterdam skuli
vinna Inter Milan á útivelli, sýnir
bezt, hve gifurlega sterk hol-
lenzku liðin eru orðin. Itölsku lið-
in eru þekkt fyrir að fá ekki mörk
á sig á heimavelli i Evrópukeppn-
um, en Hollendingarnir höfðu
skorað tvö þegar i hálfleik. Þar
var að verki Wim Jansen, einn úr
HM liði Hollands, hann skoraði
bæði mörkin. Boninsegna minnk-
aði muninn fyrir Inter i seinni
hálfleik, en það má búast við, að
hinir 15.000 áhorfendur, sem sáu
leikinn, hafi farið mjög óánægðir
heim.
★ ★
MALMÖ — REIPAS
LATHI 3-1
Menn bjuggust við auðveldum
sigri sænsku bikarmeistaranna,
og kom það þvi, sem þruma úr
heiðskiru lofti, er Hukka tók for-
ystu fyrir Lathi þegar á 6.
minútu. Það tók leikmenn Malmö
nokkra stund að jafna sig eftir
þetta, og I hálfleik hafði þeim að-
eins tekizt að jafna, Larsson var
þar að verki. Það var ekki fyrr en
á siðustu 10 minútunum, að
Malmö tókst að gera út um leik-
inn, er Sjöberg og Larsson gerðu
stööu Malmö aftur nokkuð sterka.
..Erfitt fyrir okkur
qft leika gegn Sviss"
— segir Halldór Jónsson, þjólfari og
fyrirliði blakliðsins, sem tekur þótt í
Norðurlandamótinu í Svíþjóð - * -
islenzka landsliðið i handknatt-
leik, sem tekur þátt i 4ra landa
keppninni i Sviss, ásamt Sviss-
lendingum, V-Þjóðverjum og
Ungverjum, leikur sinn fyrsta
Ieik ikeppninnii dag. Þá mæta is-
lenzku leikmennirnir Sviss-
lendingum I Zurich. „Við vitum
litið sem ekkert um styrkleika
Svissiendinga”...... sagði Páll
Jónsson liðstjóri islenzka liðsins
— þess vegna er það erfitt fyrir
okkur að leika gegn þeim i fyrsta
leiknum.” Það eru liðin tæp 14 ár
ÓLAFUR JÓNSSON .... 70 ieikir. siðan tsland lék siðast gegn Sviss
A-Þjóðverjar:
Treysta á það
— að íslenzka landsliðið nói stigi
af Frökkum og Belgíumönnum
„Við treystum þvi, að þið náið sigi frá Frökkum og Belgfumönn-
um”... sögðu forráðamenn a-þýzka landsliðsins, eftir jafnteflisleik
tslands og A-Þýzkalands I Madgeburg á dögunum. tslenzka lands-
liðið, sem vakti athygli um alla Evrópu með jafnteflinu gegn
A-Þjóðverjum, mun leika næstu tvo leiki slna i Evrópukeppni lands-
liða á Laugardalsvellinum og verða þeir leiknir á mjög óhentugum
tima fyrir Islenzka liðið — nefnilega i byrjun keppnistimabilsins
1975. Fyrst koma Frakkar hingað I heimsókn og Ieika hér 28. mai og
aðeins átta dögumsiðar — 5. júni koma A-Þjóöverjar hingað og leika
á Laugardalsvellinum. Það verður þvi nóg að gera fyrir landsliðs-
mennina okkar, strax i byrjun keppnistimabilsins. — SOS.
reyna að vinna sigur yfir Norð-
mönnum og Dönum, — en ef þaö
tekst ekki, þá er þö öruggt að við
vinnum eitthvað af hrinum.
Halldór sagði, að það væri
mikill missir fyrir landsliðið, að
fimm landsliðsmenn sem léku
gegn Norðmönnum hér á landi sl.
vetur, fara ekki með liðinu á
Norðurlandamótið. En þeir leik-
menn, sem hafa verið valdir i lið-
ið, hafa æft mjög vel siðan i
september.
Liðið verður skipað þessum
leikmönnum (landsleikir innan
sviga):
Anton Bjarnason, UMFL (2)
Friðrik Guðmundss. tS (2)
Gestur Bárðarson, Viking (0)
Guðmundur Pálsson, Þrótti (2)
Gunnar Árnason, Þrótti (0)
Halldór Jónsson, tS, fyrirliði (2)
Indriöi Arnórsson, tS (2)
Torfi R. Kristjánss. UMFL (2)
Valdimar Jónsson, Þrótti (2)
Óskar Hallgrimss. Beiðab. (0)
Eins og sést á þessu, þá leika
þrir nýliðar i landsliðinu, þeir
Gestur, Gunnar og Óskar.
Islenzka liðið mun leika einn
landsleik gegn Skotum, áður en
haldið verður til Sviþjóðar. Sá
leikur fer fram i Edinborg 30.
október. Þá má geta þess, að
þetta verður fyrsta utanlandsferð
Islenzka blaklandsliðsins.
—sos
— segir Póll
Jónsson. Við vitum
lítið um styrkleika
Svisslendinganna.
Tæp 14 ór eru
síðan við lékum
gegn þeim
„Wunderbar"!
— hafa óhangendur Bayern eflaust hrópað, þegar Wunder
innsiglaði sigur liðsins 3:2 yfir Magdeburg
Það fór heldur betur um hina
70.000 áhorfendur á Olympia-
stadion i Munchen, þegar leik-
menn Magdeburg skoruðu annað
mark sitt rétt fyrir ieikhlé, og
höfðu þannig 2-0 forustu i hálfleik
á móti Evrópubikarmeisturum
Bayern Munchen, sem þarna
voru að hefja vörn sina á titlinum.
Þeir Hoffmann og Sparwasser
skoruðu fyrir Madgeburg, og svo
virtist, sem meistarar Bayern
Munchen væru slegnir út f fyrstu
lotu.
En Gerd Muller, sem greinilega
er að finna sitt gamla form,
skoraði úr vitaspyrnu á 51.
minútu, og minnkaði þannig
muninn i 1-2. Við þetta mark urðu
A-Þjóðverjarnir mjög tauga-
óstyrkir, eins og i leiknum við ís-
land i Magdeburg, og léku
greinilega ekki með sama styrk-
leika og áður. Þetta notfærði lið
Bayern sér, og áður en yfir lauk
hafði Múller skoraö annað mark,
og svo innsiglaði Wunder sigur-
inn, og er ekki að efa, að áhang-
endur Bayern hafi hrópað
„Wunderbar”.
Hvort þessi 3-2 forysta dugir
Bayern Munchen i seinni leiknum
i Magdeburg þann 6. nóvember,
skal látið ósagt, en hvað gerðu
þeir ekki á mðti Dynamo Dresden
i fyrra, unnu heimaleikinn fyrst 4-
3, og náði siðan 3-3 jafntefli i
Dresden.
Ó.O.
GERD MULLER.-.skoraði tvö mörk fyrir Evrópumeistarana.
„Möguleikar okkar á sigri eru
mestir gegn Norðmönnum og
Dönum — þeir eru ekki mjög
sterkir um þessar mund-
ir”...sagði Halldór Jónsson, þjálf-
ari og fyrirliði islenzka landsliðs-
ins I blaki, sem tekur þátt I
Norðurlandamótinu i blaki. Það
fer fram i Vaxjö i Suður-Sviþjóð
dagana 1.-3. nóvember nk. Við
munum leggja okkur alla fram og
AXEL AXELSSON .... 4« lelkir. EINAR MAGNCSSON .. 50 leikir.
— það var I HM-keppninni I V-
Þýzkalandi 1961. Leikurinn fór
fram i Wiesbaden og lauk með
sigri islands 14:12 — þetta er i
eina skiptið, sem íslendingar og
Svisslendingar hafa leikið lands-
leik i handknattleik.
Aftur á móti, þá hafa is-
lendingar oft leikið gegn V-Þjóð-
verjum, og Ungverjum —• en
aldrei hefur unnizt sigur gegn V-
Þjóðverjum, aftur á móti höfum
við unnið Ungverja einu sinni og
einu sinni hefur orðið jafntefli.
Árangur islenzka liðsins gegn
þessum þjóðum litur þannig út:
V-Þjóðverjar 10 0 0 10 170:217
Ungverjar 6 114 101:114
Þrir islenzkir leikmenn koma
til með að leika timamótaleiki i
4ra landa keppninni — það eru
þeir Axel Axelsson, ólafur Jóns-
son og Einar Magnússon. Axel
mun leika sinn 40 landsleik I
ferðinni, ólafur sinn 70. og Einar
sinn 50. og þar með hlýtur hann
guliúrið. -SOS.
„Möguleikar
eru á sigri
gegn Dönum
og Norð-
mönnum"