Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI ÞRIÐJUDAGUR KIRKJUR Í EYJAÁLFU Klukkan korter gengin í eitt í dag flytur Ian Breward, pró- fessor við Melbourne-háskóla, fyrirlestur í safnaðarheimili Neskirkju um kirkjur í Eyja- álfu og nýleg átök í ensku biskupakirkjunni. DAGURINN Í DAG VEÐRIÐ Í DAG 4. janúar 2005 – 2. tölublað – 5. árgangur ● tekur við nýrri útvarpsstöð Hættir sem ritstjóri DV Illugi Jökulsson: ▲ SÍÐA 30 ÞRÓUNARRÍKI ÖRVÆNTA Evrópusam- bandið, fátæk þróunarríki og eyríki vilja að viðræður hefjist um frekari minnkun útblást- urs gróðurhúsalofttegunda. Bandaríkjastjórn dregur hins vegar fæturna. Sjá síðu 8 JAPANSFÖR HUGLEIDD Ekki er von á svari frá japönskum stjórnvöldum varðandi mál skákmeistarans Bobby Fischer fyrr en í fyrsta lagi í dag, sem er fyrsti virki dagur eftir áramót ytra. Sæmundur Pálsson og föruneyti hugleiða utanför. Sjá síðu 4 NIÐURFELLIN TOLLKVÓTA Um ára- mót féllu niður tollakvótar á vefnað sem framleiddur er í Kína og fluttur til Evrópu- sambandslandanna. Samtök verslunar og þjónustu telja afleiðingar geta bæði verið góðar og slæmar. Sjá síðu 8 SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI SELST VEL Sprenging hefur verið í nýbyggingum á skrifstofu- húsnæði síðastliðin fimm ár. Skriður á markaðn- um fyrir eldri eignir sem hafa lengi staðið auðar. Allt að helmings verðmunur á fermetranum eftir ástandi og staðsetningu. Sjá síðu 10 Kvikmyndir 26 Tónlist 26 Leikhús 26 Myndlist 26 Íþróttir 22 Sjónvarp 28 ● heilsa Golffíkill í fitubollubolta Jón Gunnar Geirdal: ▲ Í MIÐJU BLAÐSINS SNJÓÉL SUNNAN OG VESTAN Úrkomuminna annars staðar. Hiti við frost- mark en eilítið yfir því sunnan til. Sjá síðu 4 Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 ÓVEÐUR Stórt snjóflóð sem talið er hafa verið allt að 150 metra breitt féll á Skutulsfjarðarbraut, aðal- götu Ísafjarðarbæjar, síðdegis í gær. Flóðið eyðilagði ljósastaur og lenti á snjóruðningstæki en ökumaðurinn þess slapp. Þrjú önnur snjóflóð féllu á Vestfjörð- um. Eitt þeirra féll á snjóflóða- varnargarð við sorpeyðingar- stöðina Funa í Engidal, annað á Hnífsdalsveg og hið þriðja féll við hesthúsahverfið í Hnífsdal. Hús hafa verið rýmd og hafa um 140 manns yfirgefið heimili sín á Ísafirði, Bolungarvík, Hnífsdal, Dýrafirði, Önundar- firði og Patreksfirði. Sólarhrings- vakt er á Veðurstofunni vegna hættunnar. Hún taldi ekki tíma- bært að hleypa fólkinu heim í gærkvöld en aðstæður verða end- urskoðaðar í dag. Á miðnætti var umferð um aðalgötuna lokað, samkvæmt upplýsingum al- mannavarnanefndar bæjarins. Nefndin ráðleggur fólki að vera ekki á ferli. Um 60 björgunarsveitarmenn frá 11 björgunarsveitum Slysa- varnafélagsins Landsbjargar voru að störfum víða um land í gær. Hjálparsveit skáta í Hvera- gerði var á ferðinni á Hellisheiði til aðstoðar bílstjórum sem áttu í vandræðum vegna veðurs og ófærðar. Björgunarsveitir í Húnavatnssýslu hafa verið að störfum frá því um miðjan dag vegna veðurs og ófærðar ásamt því að aðstoða við sjúkraflutning. Segja má að allar björgunarsveit- ir á Vestfjörðum hafi verið að störfum í dag vegna mikillar ófærðar og óveðurs. Hjörleifur Ólafsson hjá Vega- gerðinni segir blindbyl og gríðar- legt fannfergi á Vestfjörðum. Vegir séu nær allir ófærir. Stefnt verði að mokstri en ólíklegt sé að af því verði eins og spáin sé. Veðurstofan spáir ofankomu á Ísafirði fram á fimmtudag. sjá síðu 4 HAMFARIR Íslensk stjórnvöld hafa orðið við beiðni sænskra yfir- valda um að flugvél Loftleiða, sem væntaleg er til Svíþjóðar með slasaða sænska ferðamenn frá Taílandi í kvöld, fari aðra ferð suður til Taílands strax í fyrra- málið. Óski sænsk stjórnvöld eft- ir því að vélin fari þriðju ferðina munu íslensk stjórnvöld taka já- kvætt í það samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins. Enn er rúm- lega 2.900 Svía saknað eftir ham- farirnar á annan dag jóla. Svíarnir sem flogið verður með frá Taílandi í dag eru mikið slasaðir en þó enginn í bráðri lífs- hættu. Friðrik Sigurbergsson, læknir og leiðangursstjóri, segir alla farþegana hafa misst ætt- ingja, auk þess sem munaðarlaus börn séu um borð. „Þetta ætti að vera einfaldur sjúkraflutningur miðað við veik- indi fólksins og áverka. Um borð er þó fólk sem hefur gengið í gegnum hörmungar sem orð fá ekki lýst,“ segir Friðrik. Eins Íslendings er enn saknað í Taílandi og verður haldið áfram að reyna að ná sambandi við hann. Vitað er að hann er lífs þar sem hann hefur notað greiðslu- kort. Níu manns sem leitað hafði verið höfðu í gær samband við fjölskyldur sínar og amaði ekkert að þeim. Sjá síðu 2, 4, 6, 11 og 14. DAGAR EFTIR AF JANÚARTILBOÐI TOYOTA 28 RAV4 Tilboðsverð 2.590.000 kr. 18-49 ára Me›allestur dagblaða Allt landið Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04 69% 43% MorgunblaðiðFréttablaðið Hús rýmd vegna snjóflóðahættu Nokkur snjóflóð féllu á Vestfjörðum í gær en engan sakaði. Um 140 manns víðs vegar um Vestfirði hafa yfirgefið heimili sín. Björgunar- sveitir aðstoðuðu fólk vegna ófærðar. ÓVEÐUR Á VESTFJÖRÐUM Snjóflóðahætta hefur verið víða á Vestfjörðum. Nær 140 íbúar hafa yfirgefið heimili sín sem eru á hættu- svæðum, um áttatíu á Patreksfirði, nær fjörutíu í Ísafjarðarbæ og tuttugu á Bolungarvík. Almannavarnanefndir staðanna funda reglulega og meta ástandið. Sólarhringsvakt er á Veðurstofunni. Myndin er tekin á Silfurtorgi á Ísafirði um þrjúleytið í gær. Hólmavík: Lúsasjampó sótt í ófærð HEILBRIGÐISMÁL Í hríðarbyl og ófærð þurfti að útvega auknar birgðir af lúsasjampói í Hólmavík í gær, en óværan hefur stungið sér niður í bænum síðustu daga. Guðmundur Sigurðsson, læknir á Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur, sagði langt því frá að nokkuð ófremdarástand væri vegna lúsar- innar. „Faraldurinn er ekki meiri en er oft á hverjum vetri í Reykja- vík,“ sagði hann. „Við gerðum ráð- stafanir til þess að auka sjampó- birgðirnar þannig að nóg er til,“ bætti Guðmundur við og taldi ekki að fólk þyrfti að halda börnum sín- um heima við skólasetningu í dag af ótta við lús. -óká Fasteignaviðskipti: Velta jókst á milli ára FASTEIGNIR Heildarupphæð veltu vegna fasteignakaupa á höfuð- borgarsvæðinu á árinu 2004 var 177 milljarðar króna saman- borið við 125,6 m i l l j a r ð a króna árið 2003. Sam- kvæmt Fast- eignamati rík- isins var með- alupphæð á hvern kaup- samning 17,6 milljónir í fyrra en árið 2003 var með- alupphæð á samning 14,8 m i l l j ó n i r króna. Árið 2004 var 10.045 kaupsamningum um fasteignir þinglýst við embætti sýslumanna á höfuðborgarsvæðinu. Árið 2003 var 8.465 kaupsamningum þing- lýst. Kaupsamningum fjölgaði því um 18,7 prósent. - th MINNINGARATHÖFN Á PHUKET-EYJU Líkkistur sex sænskra fórnarlamba hamfar- anna í Asíu voru fluttar frá Phuket-eyju í Taílandi í gær. Sænskir prestar og ættingjar hinna látnu vottuðu þeim virðingu sína áður en flugvélin hélt til Svíþjóðar. Vél Loftleiða lendir í Svíþjóð í kvöld með slasaða sænska ferðamenn: Svíum heitið frekari aðstoð BLOKKARÍBÚÐIR Meðalupphæð kaup- samninga á síðasta ári var samkvæmt Fasteignamati ríkisins 17,6 milljónir króna.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.