Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 04.01.2005, Blaðsíða 29
Gleðilegt ár! Kennsla hefst 10. janúar Upplýsingar í síma: 561 5620 *Bílasamningur SP-FJÁRMÖGNUN me› 20% innborgun og eftirstö›var í 84 mánu›i Í samstarfi vi› Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00–18:00 og laugardaga kl. 13:00–17:00 F í t o n / S Í A F I 0 1 1 0 8 4 EKKI LÁTA ÓFÆR‹INA KOMA fiÉR Á ÓVART – N‡r Subaru Legacy á frábæru ver›i í janúar Tilbo›sver› 2.440.000 kr.Ver›dæmi Ver›skráLegacy sedan sjálfskiptur 2.710.000 kr. Subaru Legacy er bíll sem sameinar kraft og öryggi. Öflug 2.0 lítra vél ásamt fullkomnu fjórhjóladrifi tryggja a› flú komist örugglega á lei›arenda. Allt fletta ásamt ríkulegum sta›albúna›i gerir Legacy a› ótvíræ›um sigurvegara í sínum flokki. Kynntu flér Subaru og bú›u flig undir langt og traust samband. Subaru fjórhjóladrif – einfaldlega fla› besta. Grí›arleg flróun hefur átt sér sta› hjá Subaru vi› hönnun og framlei›slu fjórhjóladrifsins. Subaru fjórhjóladrifi› er fla› besta sem völ er á í fólksbílum og gerir Subaru bíla örugga og framúr- skarandi til aksturs vi› allar a›stæ›ur. Fá›u meir a fyr ir pe ninga na • Öf lug 2 .0 lít ra v él • Fjó rhjó ladri f • 16 “ álf elgu r Mána›argrei›sla 26.509 kr.* „Við hringdum í Kidda, sem rak Hljómalind, og hann gaf okkur strax leyfi til að nota nafnið. Hann var mjög ánægður með að við skyldum vilja nota það,“ segir Helena Stefánsdóttir, sem ásamt sex félögum sínum er að opna nýtt kaffihús að Laugavegi 21, þar sem plötubúðin Hljómalind var áður til húsa. „Við ákváðum að Kaffi Hljómalind væri einfaldlega besta nafnið á staðinn, það kann- ast allir við húsið undir því nafni.“ Margt verður óvenjulegt við þetta nýja kaffihús í miðbæ Reykjavíkur, sem opnað verður á sunnudaginn kemur. Til dæmis verður það bæði áfengis- og reyk- laust, og svo verður öllum hagnaði af rekstri þess varið til góðgerð- armála. „Okkur langar svo til að búa til vettvang fyrir unglinga, til dæmis á menntaskólaaldri, sem hafa ekki aldur til að komast á tónleika þar sem vínveitingar eru leyfðar,“ segir Helena um reyk- og áfengis- leysið. Hugmyndin að rekstrarform- inu er hins vegar komin frá ind- verskum heimspekingi, P.R. Sark- ar, sem útfærði nýjar hugmyndir um samvinnurekstur sem reynd- ar hafa verið víða um heim. „Til dæmis veit ég um heilt samfélag í Kanada sem er rekið með þessum hætti. Fyrirtækið á sig í rauninni sjálft. Enginn getur því grætt neitt á rekstrinum, menn fá bara laun fyrir sína vinnu en hagnaðurinn kemur öðrum til góða.“ Öll innkoma af opnunarkvöld- inu á sunnudaginn rennur til dæmis beint í söfnun til hamfar- anna í Asíu. Hugmyndin er sú að kaffihúsið verði vettvangur fyrir grasrótar- tónlist, opinskáa samfélagsum- ræðu og námskeið sem tengjast bættu samfélagi. Þar verður ein- göngu seldur lífrænn matur. ■ ÁRAMÓTASKAUP Þetta sérstaka fyrirbæri í íslenskri dægurmenningu er tekið fyrir á alfræðiritinu Wikipedia en það er meðal annars vísað á umfjöllun á Skaupið á slóð- inni http://www.sciencedaily.com/encyclo- pedia/aramotaskaup. Skothlé í Skaupi Uppflettiorðið „aramotaskaup“ er varla algengt í alþjóðlegum alfræði- ritum en kemur þó við sögu á Wikipedia, sem er ókeypis alfræði- rit á netinu. Það er engin hætta á að Íslendingar verði neins vísari um Skaupið á vefsíðunni en þeim mun líklegra að útlendingum þyki upp- lýsingarnar sérstakar. Þar segir að Áramótaskaupið, sem þýði bókstaflega „Nýársgrín- ið“, sé sjónvarpsþáttur sem sé orð- inn mikilvægur þáttur í áramóta- fögnuði Íslendinga. „Þar eru atburð- ir liðins árs sýndir í spéspegli og fórnarlömbunum, sem oftast eru stjórnmálamenn og framámenn í viðskiptalífinu, sýnd lítil miskunn.“ Nýársfagnaður Íslendinga er sagður jafnast á við jólin og að of- notkun flugelda á áramótum sé þjóðareinkenni og sprengugnýrinn sé nánast látlaus frá 30. desember til 6. janúar sem kallast „The thir- teenth“, eða Þrettándin. Eina al- mennilega hléið á flugeldapuðrinu sé á milli klukkan 22 og 23.30 á gamlárskvöld á meðan Áramóta- skaupið er á dagskrá. ■ 21ÞRIÐJUDAGUR 4. janúar 2005 OPNA KAFFIHÚS MEÐ ÖÐRU SNIÐI Helena Stefánsdóttir og félagar hennar vinna baki brotnu þessa dagana við að standsetja Kaffi Hljómalind, sem opnað verður á sunnudaginn að Laugavegi 21. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI Hljómalind verður kaffihús

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.