Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 11

Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 11
11ÞRIÐJUDAGUR 4. janúar 2005 HAMFARIRNAR Sathiya Moorthy Muthuvel, matreiðslumaður á Götugrillinu á Akureyri, er ættað- ur frá Tamil Nadu á Indlandi en það svæði varð illa úti í hamförun- um í kjölfar jarðskjálftanna á Ind- landshafi. Fjölskylda Moorthy býr um 70 km frá ströndinni, og sakaði ekki, en engu að síður segist hann hafa orðið fyrir miklu áfalli þegar hann frétti af hamförunum. Það voru indverskir vinir Moorthys, búsettir í Reykjavík, sem fyrstir báru honum fréttirnar og fylgdust þeir með útsendingu frá CNN-sjónvarpsstöðinni. „Þó svo að fjölskylda mín hafi sloppið grét ég þegar ég sá myndirnar í Fréttablaðinu frá hamfarasvæð- unum. Einkum voru það myndirnar af börnunum sem fengu á mig.“ Moorthy heldur til Indlands síðar í vikunni til að hitta unnustu sína, sem hann hefur enn ekki séð. „Foreldrar mínir hafa valið mér konu og ég er að fara til Indlands til að gifta mig. Ég og nýja konan mín munum svo koma aftur til Ís- lands í mars og ætlum við að setj- ast að á Akureyri,“ sagði Moorthy. - kk Hörmungarnar í Asíu: Grét yfir myndunum í Fréttablaðinu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K KOKKURINN Á GÖTUGRILLINU Moorthy er að fara að gifta sig og á ekki von á að hörmungarnar hafi áhrif á það. Prentun á Íslandi: Hlutfall dregst saman BÆKUR Hlutfall bókaprentunar innanlands hefur dregist saman um 3,4 prósent á milli ára að því er fram kemur í könnun Bóka- sambands Íslands á prentun íslenskra bóka sem birtust í Bóka- tíðindum Félags íslenskra bóka- útgefenda fyrir jólin. Fram kemur að titlum hefur fjölgað um rúm 20,8 prósent, eru 651 en voru í fyrra 539. Fram kemur að 67 prósent barnabóka eru prentaðar erlendis, 44,1 prósent skáldverka, 23,7 prósent fræðibóka og 32,2 prósent sagn- fræðirita og ævisagna. - óká Prentstaður bóka í Bókatíðindum: Fjöldi titla Prósenta Ísland 379 58,2% Danmörk 76 11,7% Kína 62 9,5% Slóvenía 35 5,4% Ítalía 18 2,8% Finnland 18 2,8% Svíþjóð 14 2,2% Önnur lönd 49 7,5% Samtals 651 100% STRÍPALINGUR Í ÁSTRALÍU Áhorfendum á landsleik í krikkett í Sydney í Ástralíu virtist skemmt í gær þegar karl- maður berháttaði sig og hljóp um víðan völl með öryggisverði á hælunum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P JÓN EINAR MARTEINSSON Fjarðanet hf. mun eiga náið samstarf við Hampiðjuna hér á landi og dótturfélög hennar, ekki síst á Írlandi, í Litháen og Danmörku. Sameining í sjávarútvegi Nýr neta- gerðarrisi SAMEINING Um áramótin var rekst- ur Netagerðar Friðriks Vilhjálms- sonar í Neskaupstað sameinaður rekstri Netagerðar Vestfjarða. Sameinað fyrirtæki heitir Fjarða- net og veltir um 400 milljónum króna. Starfsmenn verða 40 og starfsemin á sjö stöðum á landinu en höfuðstöðvarnar verða í Neskaupstað. Stærstu hluthafar í Fjarðaneti eru Hampiðjan, Eignarhaldsfélag Austurlands og Jón Einar Marteinsson sem jafn- framt er framkvæmdastjóri Fjarðanets. Að sögn Jóns Einars er nýja félagið byggt á mörgum rótgrón- um netagerðum á sex stöðum á landinu, Fáskrúðsfirði, Seyðis- firði, Akureyri, Siglufirði, Ísafirði og í Neskaupstað. „Á öllum þess- um stöðum munum við reka alhliða veiðarfæraþjónustu en auk þess verða með þjónustu við gúmmíbáta á tveimur starfsstöðv- um, í Neskaupstað og á Ísafirði. Á Reyðarfirði erum við með sérhæfða þvottastöð fyrir fiskeld- ispoka sem tekin var í gagnið fyrir rúmu ári,“ sagði hann. -kk FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.