Fréttablaðið - 04.01.2005, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Sendu SMS skeytið JA B3F á númerið1900 og þú gætir unnið.
2 X bíómiðar á 99kr.-
9. hver vinnur
99 kr/skeytið
IK
E
26
74
7
1
2.
20
04
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
4
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Takk fyrir það gamla
í fullum gangi!
Útsalan
Útsala 27. desember til 16. janúar.
Fjölskylda,
börn og öryggi
Fjölskyldan, foreldrahlut-verkið, grunnskólinn og
börnin voru efni hátíðarávarpa
landsleiðtoganna þessi áramót.
Nú þegar allir eiga sér sömu
markmið hlýtur að draga stór-
lega úr vinnuálagi á heimilum,
fjölskyldan verður loks í fyrir-
rúmi, grunnskólinn mun blása
út og blómstra og börn munu
aldrei aftur mæla götur og
mæna tárvotum augum á tómar
skólabyggingar.
EN Í UPPHAFI árs er hugur
landans austur í Asíu. Þar er
mikið verk framundan og sam-
hentir hjálparstarfsmenn leggja
hönd á plóg. Landsmenn hafa
ekki látið sitt eftir liggja. Ein-
hver sagði að framlag Frón-
verja hefði sáralítið að segja í
svo viðamiklu verkefni, en til
eru þeir sem trúa á mátt hinna
mörgu – að lítil þúfa velti þungu
hlassi og að hvert einasta fram-
lag skipti sköpum við svo
hörmulegar aðstæður. Svo ógn-
vekjandi náttúruhamfarir kalla
að auki fram vangaveltur um
hvernig skipulagi hjálparstarfa
sé háttað hér heima fyrir.
ÖFLUGAR hjálparsveitir
sjálfboðaliða eru starfræktar
hér - sveitir sem hafa um árabil
unnið ómetanlegt starf og
bjargað mannslífum um allt
land. Áttatíu prósent af rekstr-
arfé stærstu hjálparsveitanna
ku vera til komið vegna flug-
eldasölu síðustu fjóra daga árs-
ins. Það er sjálfsagt að velta
þeirri spurningu upp hvort það
sé hentugt rekstrarfyrirkomu-
lag til framtíðar - hvort ekki
beri að tryggja sveitunum ör-
uggara rekstrarumhverfi.
Hjálparsveitirnar eru jafn mik-
ilvægar og Landhelgisgæsla,
slökkvilið og sjúkrahús. Þær
einingar myndu fæstir vilja
reka að mestu fyrir flugelda-
sölu. Það er í þágu björgunar-
sveitanna að efla umræðu um
rekstur þeirra.
BARDAGABOMBUR voru
auglýstar fyrir áramótin og ein-
hverjir hvöttu menn til að grípa
til vopna. Ofurþungi var lagður
á að selja sem flestar sprengjur
svo halda megi uppi öflugu
hjálparstarfi árið um kring.
Átta ungmenni slösuðust og má
það kallast vel sloppið miðað
við sprengjugleði landsmanna.
Einhverjir myndu þó segja að
það væri óþarfa fórnarkostnað-
ur. Á nýju ári er fjölskyldan í
fyrirrúmi. Það væri því þörf
umræða að velta fyrir sér
hvernig efla megi íslenskar
björgunarsveitir með því að
skapa þeirra ómetanlega hjálp-
arstarfi öruggari rekstrar-
grundvöll. ■
BAKÞANKAR
KRISTÍNAR HELGU
GUNNARSDÓTTUR