Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 2

Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 2
2 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Rauði krossinn leitar ættingja landsmanna af erlendum ættum: Fjölskylda fundin en konu enn leitað JARÐSKJÁLFTI Rauði krossinn hefur fundið fjölskyldu á Srí Lanka sem ættingi hennar hér á landi saknaði. Enn er taílenskrar konu leitað. Þórir Guðmundsson, upplýs- ingafulltrúi Rauða krossins, segir fleiri fjölskyldur hér á landi hafa haft samband við samtökin og grennslast fyrir um kunningja eða vini. Þeim hafi verið bent á vefsíðu sem samtök- in standi að familylinks.icrc.org: „Þar geta menn sjálfir skráð fjölskyldumeðlimi sem leitað er að. Listarnir eru prentaður út og þeir birtir á flóðasvæðum.“ Þórir segir Rauða krossinn einnig vera með gervihnatta- síma á hamfarasvæðunum og bjóða fjölskyldum að hringja í tvær mínútur til ástvina sinna erlendis. Þrír sendifulltrúar Rauða krossins eru við hjálparstörf á flóðasvæðunum. Þórir segir einn í stjórnstöð Alþjóða rauða kross- ins á Srí Lanka, starfsmaður Al- þjóða rauða krossins sé í Jakarta í Indónesíu og geðhjúkrunar- fræðingur vinni við skipulagn- ingu áfallahjálpar í Indónesíu. Þangað fari einnig tveir á fimmtudaginn til að aðstoða við dreifingu hjálpargagna. - gag STJÓRNARSKRÁ Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skipaði í gær Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, formann stjórnarskrárnefndar, sem hefur það hlutverk að endurskoða stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Jón segir mikið verkefni framundan: „Ég vonast til að horft verði til framtíðar í starfi nefnd- arinnar og nefndin verði ekki of bundin af fortíðinni“. Jón segir að samkvæmt skipunarbréfi nefnd- arinnar verði hlutverk hennar að endurskoða fyrsta, annan og fimmta kafla stjórnarskrárinnar sem fjalla meðal annars um hlut- verk Alþingis og forseta Íslands. Össur Skarphéðinsson, for- maður Samfylkingarinnar, og full- trúi í nefndinni lýsir undrun sinni á skipunarbréfinu. „Við setjumst ekki í þessa nefnd til að taka við skipunum Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar. Við teljum margt brýnna en að endurskoða þessi atriði. Við leggj- um áherslu á þjóðaratkvæða- greiðslur, að landið sé eitt kjördæmi og að auðlindir séu sameign þjóðarinnar.“ Ögmundur Jónasson, Vinstri grænum, segist ekki kannast við að gert hafi verið ráð fyrir að verkefni nefndarinnar yrðu tak- mörkuð við vissa þætti stjórnar- skrárinnar. Jón Kristjánsson bendir á að stutt sé síðan mann- réttinda- og kosningakaflarnir hafi verið endurskoðaðir. Aðrir nefndarmenn eru Jónína Bjartmarz, fulltrúi Framsóknar- flokksins en fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins eru Geir H. Haarde fjármálaráðherra og varaformað- ur, Þorsteinn Pálsson sendiherra og Birgir Ármannsson alþingis- maður. Auk Össurar Skarphéðinssonar er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir varaformaður fulltrúi Samfylk- ingarinnar og formennirnir Stein- grímur J. Sigfússon og Guðjón Arnar Kristjánsson fulltrúar Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins. Fjögurra manna sérfræðinga- nefnd mun starfa með nefndinni, en formaður hennar er Eiríkur Tómasson lagaprófessor. Nefnd- inni er ætlað að skila tillögum til breytinga á stjórnarskránni í árs- byrjun 2007. - as ASÍ OG FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA Forysta ASÍ fundaði með Árna Magnússyni félagsmálaráðherra í gær og gerði þar alvarlegar athugasemdir við veitingu atvinnuleyfa fyrir Kínverja. ASÍ: Auglýst til málamynda KJARAMÁL Forysta Alþýðusambands Íslands gerði alvarlegar athuga- semdir við væntanlega veitingu at- vinnuleyfa fyrir allt að 300 Kínverja á fundi með Árna Magnús- syni félagsmálaráðherra í gær. Niðurstaða fundarins var sú að von er á greinargerð frá ASÍ til ráð- herra og í framhaldi af því mun ASÍ eiga annan fund með ráðherra. ASÍ telur að auglýsingar Impregilo á evrópska vinnumiðlun- arvefnum Eures séu málamynda- gjörningur enda sé óskað eftir starfsmönnum með m.a. þriggja ára reynslu af lífi og starfi á heim- skautasvæðum. - ghs Þýskaland: Atvinnuleysi eykst ÞÝSKALAND, AFP Fjöldi atvinnulausra í Þýskalandi hefur ekki verið meiri í sjö ár, en var í desember. Atvinnu- lausir þar eru nú 4,48 milljónir, eða 10,8 prósent af vinnuafli á stærsta evrusvæðinu, þegar tekið er tillit til árstíðabundinnar sveiflu. Fjölgunin var meiri en reiknað hafði verið með og vara sérfræð- ingar við því að atvinnulausir gætu orðið um fimm milljónir í vetur. Í vesturhluta landsins eru nú tæplega 2,9 milljónir atvinnulausra, eða um 8,7 prósenta atvinnuleysi. Í austurhlutanum er rúmlega 1,6 milljón án vinnu sem jafngildir 18,8 prósenta atvinnuleysi. ■ Söfnunarsíminn er 907 2020 Með því að hringja í söfnunarsímann leggur þú fram 1.000 kr. til hjálparstarfsins í Asíu. Einnig er hægt að leggja fram fé með kreditkorti á www.redcross.is, eða millifærslu á bankareikning 1151-26-000012, kt. 530269-2649. M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN kostar birtingu auglýsingarinnar Nei, hvert eitt og einasta atvik var guðsheilagur sannleikur. Ragnar Eyþórsson bar sigur úr bítum í Roskilde- sögusamkeppni og fékk að launum tvo miða á Hróarskelduhátíðina á næsta ári. Ragnar lýsir í sögu sinni því sem fyrir augu bar á hátíðinni sem hann fór á í fyrsta skipti fyrir tveimur árum. SPURNING DAGSINS Ragnar, var þetta ekki bara lygasaga? KJARAMÁL Laun erlendra starfs- manna portúgalskra starfsmanna- leigufyrirtækja við Kára- hnjúkavirkjun eru að jafnaði 50 þúsund krónum undir lágmarks- kjörum samkvæmt Virkjunar- samningi. Það þýðir að portú- galskir starfsmenn hafa verið snuðaðir um samtals tæpar 300 milljónir króna í fyrra. Þessa upplýsingar byggjast á launaseðlum og tímaskýrslum frá Impregilo og ná til um 500 manna frá ársbyrjun 2004. ASÍ telur að hér sé um alvarlegt brot á virkj- unarsamningi að ræða og hyggst sækja það fyrir félagsdómi. „Ef þetta er rétt þá er þetta grafalvarlegt og eitthvað sem ekki er hægt að líða. Öllu máli skiptir að menn virði lög og leik- reglur og þá kjarasamninga sem í gildi eru og undan því getur eng- inn og á enginn að víkja sér. Ef verkalýðshreyfingin metur það svo að þarna sé um raunverulegt brot að ræða þá væntanlega rekur hún það mál fyrir félagsdómi. Að- koma okkar sem stjórnvalds er engin fyrr en að dómnum gengn- um og þá hvað varðar fram- kvæmd hans,“ segir Árni Magnússon félagsmálaráðherra. - ghs ÚR HÚSAKYNNUM RAUÐA KROSSINS Starfsmenn Rauða krossins, Kristín Ólafsdóttir, Helga Þórólfsdóttir, Anna Bryndís Hendriks- dóttir og upplýsingafulltrúinn Þórir Guðmundsson, sem segir mikið álag hafa verið á vef- síðunni www.familylinks.icrc.org, þar sem ættingja sé einnig leitað. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M ASÍ: Impregilo snuðaði Portúgala Ágreiningur um hlutverk nefndar Flokksforingjar og ráðherrar voru í gær skipaðir í nefnd til að endurskoða stjórnarskrá. Formaður Samfylkingarinnar undrast að einungis eigi að endur- skoða hlutverk forseta og Alþingis. HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segist vonast til að horft verði til framtíðar í starfi stjórnarskrárnefndar. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Formaður Samfylkingarinnar sagði í umræðum á Alþingi í gær að margt væri brýnna að endurskoða en þau atriði stjórnarskrár sem snúa að hlutverki forseta og Alþingis. ÁRNI MAGNÚSSON Félagsmálaráðherra segir grafalvarlegt ef Impregilo hafi snuðað portúgalska starfsmenn starfsmannaleigufyrirtækja um samtals tæpar 300 milljónir króna í fyrra eins og ASÍ hefur fengið staðfest. Fróði: Stjóra leitað TÍMARITAÚTGÁFA Forráðamenn Fróða leita að nýjum framkvæmda- stjóra að sögn Páls Gíslasonar, sem gegnir því starfi nú. Knútur Sigmarsson, sem tók við starfi framkvæmdastjóra fyrirtækisins í haust, hvarf aftur til starfa hjá Odda, stærsta hluthafanum í Fróða. Ástæðan var ágreiningur um stefnu innan fyrirtækisins. Páll sagði engar aðrar breytingar fyrirhugaðar hjá Fróða. ■ Bagdad: Borgarstjóri drepinn ÍRAK, AFP Samtök al-Zarqawi hafa lýst yfir ábyrgð á morðinu á Ali Radi al-Haidari, borgarstjóra Bagdad í gær. Borgarstjórinn var, ásamt einum lífverði, drepinn í fyrirsát í Hurriyah. Einnig létust tíu íraskir öryggis- verðir og bandarískir hermenn þegar bíll var sprengdur í sjálfs- morðsárás. 57 slösuðust í spreng- ingunni. Vegna vaxandi ofbeldis hringdi Allawi, forseti Íraks í Bandaríkja- forseta til að fara yfir stöðu mála áður en til kosninga kemur 30. jan- úar. Sagt er að Allawi hafi ekki far- ið fram á að fresta kosningunum. ■ MÓTMÆLI Um 400 manns komu saman í Berlín á mánudag til að mótmæla skerðingu at- vinnuleysisbóta um áramót.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.