Fréttablaðið - 05.01.2005, Qupperneq 6
6 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Stuðningur við fórnarlömb hamfara í Asíu:
Borgin bætir um betur
STJÓRNMÁL Borgarstjórn Reykja-
víkur ákvað á fundi sínum nú í
gær að tillögu borgarstjóra að
veita tíu milljónum króna til neyð-
arhjálpar við fórnarlömb hamfar-
anna sem urðu við Indlandshaf á
annan dag jóla. Athygli vekur að
framlagið er tvöfalt hærra en
framlag ríkisstjórnarinnar. „Nei
við erum ekki að reyna að slá rík-
isstjórninni við“, segir flutnings-
maður tillögunnar Steinunn Val-
dís Óskarsdóttir borgarstjóri og
bendir á að ríkið hafi nú bætt á
sig kostnaði við flug á hamfara-
svæðin.
„Þetta eru einhverjar mestu
náttúruhamfarir sem um getur í
seinni tíð og okkur þótti eðlilegt
að stærsta sveitarfélag landsins
legði sitt af mörkum.“
Tillaga borgarstjóra var sam-
þykkt samhljóða á borgarstjórn-
arfundi. Rauða krossi Íslands
verður falið að ráðstafa fénu.
- ás
REYKJAVÍKURBORG Tillögu borgar-
stjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins um að Innri endurskoðun
Reykjavíkurborgar verði falið að
gera úttekt á rekstri fjarskipta-
fyrirtækja Orkuveitu Reykjavík-
ur frá árinu 1998 og að lagt verði
mat á arðsemi þessara fjárfest-
inga var vísað frá á fundi borgar-
stjórnar í gær. Þess í stað var
samþykkt tillaga R-listans að
borgarstjóra verði falið að láta
gera óháða úttekt á fjárfestingum
fyrirtækja í opinberri eigu í fjar-
skiptafyrirtækjum, frá árinu
1998. Er þar innifalið að gera út-
tekt á fjárfestingum Landsvirkj-
unar í Fjarska og kaup Símans á
Skjá einum.
Í fyrri tillögu Sjálfstæðis-
manna var vísað til fjárfestinga
Orkuveitunnar í fyrirtækjunum
Línu.net, Tetra Ísland og Raf-
magnslínu. Fram kom í máli
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, sem
bar tillöguna fram að framlög
Orkuveitunnar vegna þessara
fjárfestinga frá árinu 1998 séu
um 4.6 milljarðar.
Kom fram í máli R-listans að
tillagan, sem Alfreð Þorsteinsson
bar upp, gengi lengra en tillaga
Sjálfstæðisflokksins og því þyrfti
ekki að greiða atkvæði um tillögu
sjálfstæðismanna. Þessu and-
mæltu Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son og Guðlaugur Þór. Þeir sögðu
tillögu R-listans vera allt annað
en breytingartillögu og ekki
framkvæmanlega, þar sem það
væri ekki á valdi borgarstjóra að
gera úttekt á öðrum opinberum
fyrirtækjum en þeim sem eru í
eigu Reykjavíkurborgar.
Í máli Alfreðs Þorsteinssonar
kom fram að tillaga Guðlaugs
Þórs gengi ekki upp, þar sem
Orkuveita Reykjavíkur væri
sameignarfélag fjögurra sveitar-
félaga með innri endurskoðun.
Því væri það óeðlilegt að Innri
endurskoðun Reykjavíkurborgar
tæki að sér slíkt verkefni.
Guðlaugur Þór sagði það vel hægt
ef pólitískur vilji væri fyrir
hendi. Alfreð sakaði Guðlaug Þór
einnig um að ganga erinda
Símans í þessu máli, þar sem fjár-
festingar Símans í koparlínum
myndu rýrna verulega vegna
lagningu ljósleiðara. Með tillögu
R-listans væri hægt að fá saman-
burð á fjárfestingum Orkuveit-
unnar annars vegar og fjárfest-
ingarfyrirtækja í eigu ríkisins
hins vegar. Þessu andmælti
Guðlaugur harðlega.
svanborg@frettabladid.is
Taíland:
Einn Íslend-
ingur eftir
UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ Aðeins er
eftir að ná sambandi við einn
Íslending í Taílandi og verður
því haldið áfram þar til það
tekst. Pétur Ásgeirsson, skrif-
stofustjóri í utanríkisráðuneyt-
inu, segir að verið sé að grennsl-
ast fyrir um Íslendinginn í
gegnum aðra Íslendinga á svæð-
inu en þarna sé sterkt og gott
net Íslendinga. Talið er að Ís-
lendingurinn haldi sig á Pattaya-
svæðinu og vill ráðuneytið full-
vissa sig um að allt sé í lagi með
hann þó ekki sé búist við öðru.
- ghs
HELGI BERNÓDUSSON
Skrifstofustjóri Alþingis:
Helgi ráðinn
RÁÐNING Helgi Bernódusson hefur
verið ráðinn skrifstofustjóri
Alþingis og tekur við starfinu 20.
janúar af Friðriki Ólafssyni sem
þá lætur af störfum fyrir aldurs
sakir. Forsætisnefnd þingsins
samþykkti ráðningu Helga ein-
róma á fundi í gær. Helgi hefur
unnið hjá Alþingi síðan 1983 og
verið aðstoðarskrifstofustjóri frá
1996.
Auk Helga sóttu Einar Farest-
veit, starfsmaður Alþingis, og
Þórhildur Líndal, fyrrverandi um-
boðsmaður barna, um starfið.
- bþs
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Nýr gosdrykkur á markað:
Vítamín-
bættur án
leyfis
MATVÆLI Nýr vítamínbættur gos-
drykkur, Kristall plús frá
Ölgerð Egils Skallagrímssonar,
hefur verið
settur á mark-
að án þess að
sótt hafi verið
um leyfi til
v í t a m í n b æ t -
ingar drykkj-
arins til Um-
hverfisstofn-
unar. Almennt
gildir þó sú
regla að ekki
eigi að
vítamínbæta
matvæli án
leyfis, segir
Elín Guð-
mundsdóttir,
forstöðumað-
ur matvæla-
sviðs Um-
hverfisstofn-
unar. Hún
gerir ráð fyrir
að Heilbrigðiseftirlitið kanni
hvort drykkurinn uppfylli þær
kröfur sem gerðar eru til slíkra
drykkja. Í kjölfarið segir hún
hugsanlegt að drykkurinn komi
aftur til skoðunar hjá Umhverf-
isstofnun.
Í Kristal plús er meðal ann-
ars B-vítamín og önnur bæti-
efni. - ht
Fórst þú á áramótabrennu?
Spurning dagsins í dag:
Hefur þú gefið til hjálparstarfs vegna
flóða í Asíu?
Niðurstöður gærdagsins
á visir.is
84.69%
15.31%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
KRISTALL PLÚS
Nýr vítamínbættur
drykkur er nú kom-
inn á markað, en
hann hefur ekki feng-
ið leyfi Umhverfis-
stofu.
BÍLAR FUKU AF VEGINUM Þrír
bílar lentu í óhöppum í umdæmi
lögreglunnar í Keflavík. Einn
fólksbíll lenti á ljósastaur á
Reykjanesbraut. Annar ók út af
brautinni og sá þriðji missti bílinn
af Grindavíkurvegi. Ökumenn og
farþegar slösuðust ekki. Lögregl-
an rekur slysin til hvassviðris.
BORGARSTJÓRNARFUNDUR Í GÆR
Steinunn Valdís segist ekki vera að reyna að slá ríkisstjórninni við þótt stuðningur
borgarinnar sé tvöfalt hærri en fjárframlag ríkisstjórnarinnar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
Borgarfulltrúinn sakaði meirihluta borgarstjórnar um valdníðslu, þegar tillögu hans var vís-
að frá í borgarstjórn, því tillaga R-listans var talin ganga lengra.
Reykjavíkurborg skoði
kaupin á Skjá einum
Hart var tekist á um tillögu sjálfstæðismanna í borgarstjórn um úttekt á
rekstri fjarskiptafyrirtækja Orkuveitunnar í gær og henni vísað frá. Í staðinn
var samþykkt að láta gera úttekt á fjárfestingum fyrirtækja í opinberri eigu.
Taíland:
Höfrungum
bjargað
KHAO LAK, AFP Björgunarmenn
reyndu í gær, annan daginn í röð
að bjarga tveimur höfrungum,
sem eru fastir í vatni í suðvestur
Taílandi, eftir að hafa borist 500
metra inn á land með flóðbylgj-
unni miklu annan í jólum.
Taílenskir og grískir sérfræð-
ingar hófu björgunartilraunir á
mánudag, en sögðu björgunina
ganga erfiðlega vegna þess að
mikið brak væri í vatninu eftir
flóðbylgjuna. Um hundrað manns
taka þátt í björgunarstarfinu. ■
GAZA, AFP Í gær drap Ísraelsher
sjö Palestínumenn í Gaza-borg
með því að skjóta á þá úr skrið-
dreka, en átökin segir herinn
hluta af viðleitni til að stemma
stigu við eldflaugaárásum. Með-
al fórnarlamba skriðdrekaárás-
arinnar í gær voru 11 ára gamall
drengur og fimm unglingar,
segja heimildir úr röðum heil-
brigðisstarfsmanna.
Mahmud Abbas, sem talinn er
hafa forystu í forsetakosningum
Palestínuaraba, fordæmdi í kjöl-
farið harkalega það sem hann
kallaði „zíonista óvininn.“
Þá lést einnig Palestínumaður
og fimm aðrir særðust eftir
skotárás Ísraelshers austur af
Gaza-borg í gær, segja palest-
ínskir heilbrigðisstarfsmenn.
Ariel Sharon, forsætisráð-
herra Ísraels, hefur gefið hern-
um lausan tauminn til að binda
enda á eldflaugaárásir á ísra-
elska landtökumenn frá Gaza.
Í síðustu viku voru ellefu
Palestínumenn drepnir í suður-
hluta Khan Yunis. Með þessu er
tala látinna komin í 4.669 frá því
uppreisn Palestínumanna hófst í
september árið 2000, 3.624
Palestínumenn og 970 Ísraelar. ■
BÚINN TIL GREFTRUNAR
Lík unglings, sem var í hópi sjö Palestínumanna sem urðu fyrir sprengikúlum úr skrið-
drekum Ísraela í gær, er hér búið til greftrunar í líkhúsi í bænum Beint Lahiya á Gaza í
gær. Vitni segja sprengikúlurnar, sem ætlað var að svara árásum palestínskra andófs-
manna, hafa skollið niður á velli þar sem bændur tóku upp kartöflur og tíndu jarðarber.
Ísraelsher svarar eldflaugaárásum:
Ungmenni drepin á Gaza
AP
M
YN
D
/H
AT
EM
M
O
U
SS
A