Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 8

Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 8
8 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Ferðafólk SA-Asíu: Leiti læknis heima HEILBRIGÐISMÁL L a n d l æ k n i r hvetur ferða- fólk sem er að koma heim eft- ir dvöl á svæð- um sem urðu fyrir barðinu á jarðskjálftan- um í Indlands- hafi 26. desem- ber til að leita læknis hafi það ein- hverjar áhyggjur af heilsufari sínu. „Skiljanlega hafa þeir sem upplifðu áhrif flóðbylgjunnar miklu á annan í jólum 2004 orðið fyrir andlegu og líkamlegu áfalli,“ segir á vef embættisins en hætta á smitsjúkdómum er ekki talin mikil í fyrstu eftir hamfarirnar. Fólk er þó hvatt til að leita læknis ef húðsár lagast ekki eða ef fólk er með niðurgang. Fólk í fyrir- byggjandi malaríumeðferð á að ljúka henni eftir heimkomu og fólk með hita eða inflúensu- einkenni eftir heimkomu á að leita læknis án tafar. - óká ■ EVRÓPA HALD LAGT Á 151 ÞÚSUND E- TÖFLUR Sænski tollurinn hefur lagði hald á 151 þúsund e-töflur á nýliðnu ári. Það er þrisvar sinn- um meira magn en árið þar á undan. Tollayfirvöld hafa einnig lagt hald á 18 kíló af ópíum og 189 kíló af amfetamíni, sem er nokkuð meira en lagt var hald á árið 2003. Æ FÆRRI FARA TIL ALGARVE Ferðamálayfirvöld í Algarve í Portúgal eru uggandi vegna minnkandi ferðamannastraums. Meðalnýting hótelrýma dróst saman um 8 prósent miðað við árið 2003. Ferðamenn á Algarve hafa ekki verið færri í tíu ár. Ferðamálayfirvöld segja aukna samkeppni og laka skipulagningu heima fyrir helstu ástæðuna. Þorsteinn Pálsson: Þýðir ekki heimkomu STJÓRNMÁL Þorsteinn Pálsson sendi- herra var í gær skipaður í stjórnar- skrárnefnd samkvæmt tilnefningu Davíðs Oddssonar, formanns Sjálf- stæðisflokksins. Þorsteinn segir hins vegar ekkert samhengi milli skipunar hans í nefndina og hugsan- legrar heimkomu hans: „Það er ekki hægt að draga neinar slíkar álykt- anir af þessu,“ sagði hann. Þorsteinn er sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, en Ingibjörg Rafnar, eiginkona hans var nýlega skipuð umboðsmaður barna. - ás Nýtt námskeið hefst 10. janúar nk. Skráning er hafin í síma 444 5090 Þjálfari er Goran Micic íþróttafræðingur Súperform á sex vikum! Fimm tímar í viku kl. 7:30 eða 18:30 Brennsla og styrking Takmarkaður fjöldi Vikulegar mælingar Eigið prógramm í tækjasal Persónuleg næringarráðgjöf Matardagbók Ráðgjöf við matarinnkaup Fræðsla og eftirfylgni – þrír fyrirlestrar Strangt aðhald – mikill árangur Nýr lífsstíll Slökun og herðanudd í pottunum að æfingu lokinni Protein shake eftir hverja æfingu 1. vika – Orkuhleðsla Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi. Í lok vikunnar ættir þú að finna fyrir aukinni orku og vellíðan sem er upphafið að breyttum lífstíl. 2. vika – Öflug melting Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest út úr holla matnum sem þú ert að borða. 3. vika – Hormóna jafnvægi Hvort sem þú ert karl eða kona og óháð aldri þá mun þriðja vikan koma jafnvægi á hormónaflæði líkamans sem mun hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft. 4. vika – Hreinsun Þegar líður að viku fjögur er líkaminn tilbúinn í úrgangs- og eiturefnahreinsun. Lifrin er byggð upp og á auðveldara með að hreinsa út skaðleg efni úr líkamanum. 5. vika – Ónæmiskerfið eflt Í viku fimm byggjum við upp ónæmiskefið og hjálpum því að verja líkamann á náttúrulegan hátt. 6. vika – Bætum minnið og skapið Í þessari loka viku veitum við ráðgjöf varðandi hvaða mat þú átt að borða til að bæta minnið, einbeitingu og skapið. Til að komast að því hversu heilbrigð þú ert þarft þú að fylla út spurningalista og fara í heilsufarsmælingu. Nýtt námskeið fyrir konur 1Hvað heitir forseti Króatíu? 2Hvar þurfti í fyrradag að sækjalúsasjampó í ófærð? 3Hvað er Illugi Jökulsson að fara aðgera? SVÖRIN ERU Á BLS. 30 VEISTU SVARIÐ? HJÁLPARGÖGNUM DREIFT Í INDÓNESÍU HAMFARIR, AP/AFP Á Taílandi benda yfirvöld á að líklegt sé að líkams- leifar hluta fórnarlamba hamfar- anna á annan í jólum eigi aldrei eftir að finnast og að marga mán- uði geti tekið að bera kennsl á önnur. Um helmingur þeirra sem létu lífið í Taílandi eru útlending- ar, margir hverjir ferðamenn frá Evrópu. Líkin sem finnast nú eru svo þrútin að reiða þarf sig á tannlæknaskýrslur og DNA próf til að bera kennsl á þau. „Það er meira að segja erfitt að greina á milli ljóshærðs Evrópubúa og Asíubúa,“ sagði Surakiart Sathir- athai, utanríkisráðherra Taílands. Yfir 200 réttarmeinafræð- ingar frá Taílandi og 18 öðrum löndum vinna hröðum höndum við að bera kennsl á lík í búdda- musterum sem notuð eru sem bráðabirgðalíkhús. Við eitt lík- húsanna gat á að líta nokkur hundruð líkama sem komið hafði verið fyrir á jörðinni og búið að hylja með dúkum eða líkpokum. Hundrað lík til viðbótar lágu í sól- inni og maður úðaði sótthreins- andi efni yfir. Lík útlendinga eru geymd í loftkældum gámum meðan lík Taílendinga eru urðuð til bráða- birgða í nærliggjandi grafreitum og bíða þess að ættingjar heimti þau og láti brenna. Sumum líkum er pakkað í þurrís til að hægja á rotnun í hitanum. Yfirvöld hafa reynt að auka kæligetuna í lík- geymslum meðan safnað er DNA- sýnum og tannlæknagagna aflað. Colin Powell, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, kom til Indónesíu síðla dags í gær frá Taílandi. Hann ferðast nú um hamfarasvæðin og ræðir gerð viðvörunarkerfis sem varað gæti við flóðbylgjum með það fyrir augum að hörmungar líkar þeim sem áttu sér stað á annan jóladag endurtaki sig ekki. Í Bangkok áréttaði Colin Powell að Banda- ríkin ætluðu að leggja sitt af mörkum við uppbyggingar- og hjálparstörf á flóðasvæðunum. „Bandaríkin snúa alls ekki baki við fólki í nauðþurftum,“ sagði hann. Á morgun situr Powell ráð- stefnu um hamfarirnar á Jakarta, ásamt John Howard, forsætis- ráðherra Ástralíu, Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Jap- ans, og Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna. ■ Líkin þekkjast bara á tönnum og DNA Lík Taílendinga eru urðuð til bráðabirgða meðan lík ferðafólks eru kæld til að hægja á rotnun. Illa gengur orðið að bera kennsl á líkin. COLIN POWELL Utanríkisráðherra Bandaríkjanna var í gær á ferð á hamfarasvæðum Taílands, en er nú kominn til Indónesíu. MATVÆLUM ÚTDEILT Á PHUKET Matvælum var í gær útdeilt í hjálparmiðstöð á Phuket-eyju á Taílandi til fórnarlamba flóð- bylgnanna sem riðu yfir á annan í jólum. Tala látinna í Taílandi er komin yfir 5.000 og er óttast að hún kunni að fara í 8.000, þar af um helmingurinn erlendir ferðamenn. AP M YN D AP M YN D KJARAMÁL Forystumenn sjómanna telja tvísýnt að nýr kjarasamn- ingur við útgerðarmenn verði sam- þykktur. Talning á atkvæðum gæti tafist vegna slæms veðurs. Sjó- mannasamband Íslands bíður at- kvæða að norðan og vestan. Jónas Garðarsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur, telur samninginn verða felldan meðal félagsmanna hans: „Ef landsmeðaltalið væri það sem maður heyrir hér á suðvesturhorn- inu þá tel ég að þetta verði fellt. “ Konráð Alfreðsson, formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar, seg- ist bjartsýnni en svartsýnni á að samningurinn verði samþykktur. Talningin gæti þó orðið spennandi. „Ætli menn telji það ekki plús að samþykkja samninginn því það verður ekki farið lengra án átaka,“ segir Konráð: „Ég held líka að sjó- menn séu ekki til í átök.“ Konráð og Jónas eru sammála um að sjómenn gagnrýni helst að kjarabætur þeirra séu greiddar úr eigin vasa. „Við breytingarnar fer minna í umslagið um hver mánaða- mót en var áður,“ segir Jónas. - gag Formaður Sjómannafélags Eyjafjarðar segir að ekki verði farið lengra án átaka: Spennandi talning um kjör sjómanna FRIÐRIK OG SÆVAR MEÐ ÁSMUNDI VIÐ UNDIRRITUN Forystumenn sjó- manna og útvegsmanna undirrituðu samning í húsi ríkissáttasemjara 30. október. Kosning stóð um hann til áramóta. Talning verður á næstu dögum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.