Fréttablaðið - 05.01.2005, Qupperneq 10
10 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
RÉTTARHÖLD HAFIN Á NÝ
Réttarhöld yfir bandaríska leikaranum
Robert Blake hófust á ný í Hæstarétti í Los
Angeles í Bandaríkjunum í gær eftir hálfs-
mánaðar hlé sem gert var yfir hátíðarnar.
Þar með hefst önnur vika réttarhaldanna
yfir leikaranum sem gefið er að sök að
hafa átt þátt í morðinu á Bonny Lee
Bakley eiginkonu hans.
Útboðsstefna Akureyrarbæjar:
Samið um sorphirðu
SORPHIRÐA Akureyrarbær hefur
samið við Gámaþjónustu Norður-
lands um sorphirðu frá stofnunum,
deildum og fyrirtækjum bæjarins.
Tók samningurinn gildi 1. janúar,
og er til eins árs, en í honum er ekki
kveðið á um ákveðna upphæð fyrir
sorphirðuna heldur fær verktakinn
greitt eftir umfangi sorpsins.
Dan Jens Brynjarsson, sviðs-
stjóri stjórnsýslusviðs Akureyrar-
bæjar, segir að markmið bæjaryfir-
valda með samningnum sé að bær-
inn njóti hagkvæmrar sorpþjónustu
um leið og áhersla verði lögð á að
minnka þann úrgang sem fer til
urðunar og auka endurvinnslu og
endurnýtingu. „Þetta er fyrsta
skrefið að því að sorphirða á Akur-
eyri verði alfarið í höndum einka-
aðila,“ segir Dan.
Útboð á vegum bæjarins hafa
verið að aukast á undanförnum
misserum og í ár verður rekstur
leikskóla boðinn út í fyrsta sinn á
Akureyri. kk@frettabladid.is
Búferlaflutningar
á Austurlandi:
Fjölmennið
á Héraði
AUSTURLAND Fljótsdalshérað er nú
fjölmennasta sveitarfélagið á
Austurlandi með 3.364 íbúa.
Á síðasta ári sameinuðust sveit-
arfélögin Fellahreppur, Norður-
Hérað og Austur-Hérað í Fljóts-
dalshérað. Íbúum héraðsins
fjölgaði um 433 íbúa á milli
ára, umfram sameininguna og
munar þar mestu um virkjunar-
svæðið við Kárahnjúka.
Næstfjölmennasta sveitarfé-
lagið á Austurlandi er svo
Fjarðabyggð. Þar fjölgaði um 65
íbúa á milli ára og búa þar nú
um 3.175 manns.
Hornafjörður er svo þriðja
fjölmennasta sveitarfélagið á
Austurlandi með 2.225 íbúa en
þar fækkaði íbúum um 79 milli
ára og var fækkunin hvergi
meiri á Austurlandi.
- kk
Árekstur við hross:
Tengivagn
skemmdist
ÁREKSTUR Lögreglan á Sauðár-
króki var kölluð til þegar tengi-
vagn flutningabíls valt eftir að
bíllinn hafði ekið á hross á
Norðurlandsvegi við bæinn Mið-
sitju í Skagafirði á fjórða tíman-
um í fyrrinótt. Bílstjórann
sakaði ekki en tengivagninn
skemmdist töluvert en í honum
voru meðal annars matvæli sem
áttu að fara norður í land. Lög-
reglan vissi ekki hvort miklar
skemmdir hefðu orðið á flutn-
ingabílnum sjálfum.
Hrossið lifði áreksturinn af
og komst undan bílnum af
sjálfsdáðum og hljóp á brott. ■
Lokað í dag
Jakkaföt, stakir jakkar,
yfirhafnir, skyrtur, bolir
og ótalmargt fleira.
Laugavegi 74 • Sími 551 3033
Útsalan
hefst á morgun
Hamfarir við Indlandshaf:
Sokkið í sæ
GENF, PHUKET, AFP Fjöldi látinna við
Indlandshaf er nú orðinn um 140
þúsund manns. Í Indónesíu einni er
talið að um 95 þúsund manns hafi
látist. Ekki hefur reynst auðvelt að
fá opinberar upplýsingar alls
staðar af á svæðinu, og á það sér-
staklega við um herstjórnarríkið
Myanmar, sem er eitt fátækasta
ríki heims. Það er mjög sjaldgæft
að þarlend stjórnvöld gefi upp
hversu margir láta lífið í náttúru-
hamförum.
Óttast er um líf mörghundruð
sjómanna frá Myanmar, eftir því
sem Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna segir. Samkvæmt opin-
berum tölum stjórnvalda hafa 53
látist og 21 er saknað.
Talsmaður Matvælastofnunar-
innar segir að um 30.000 íbúa
Myanmar vanti nauðsynlega hús-
næði, mat, drykkjarvatn og lyf.
Myndir frá gervihnöttum sýna
að strandlína Myanmar hefur ekki
skemmst eins mikið og strandlínur
annarra ríkja á svæðinu.
Samanburður á gervihnatta-
myndum á þeim svæðum sem
verst urðu úti vegna flóðbylgjunn-
ar sýna að strandlínur hafa víða
breyst verulega. ■
SAMNINGURINN UNDIRRITAÐUR
Árni Þór Freysteinsson, innkaupastjóri Akureyrarbæjar, lengst til vinstri, Dan Jens Brynjars-
son, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, Benóný Ólafsson, forstjóri Gámaþjónustunnar, og
Arngrímur Sverrisson, rekstrarstjóri Gámaþjónustunnar.
BREYTTAR STRANDLÍNUR
Tala látinna við Indlandshaf eftir flóðbylgjuna 26. desember er nú tæplega 140.000
manns, en enn er reiknað með að þeim muni fjölga. Sameinuðu þjóðirnar reikna með að
fjöldi látinna verði ekki undir 150 þúsundum. Taílensk yfirvöld spá því að fjöldi látinna í
landinu verði um átta þúsund.
ÍRAK,AP Írak hefur farið þess á leit
við Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu (ÖSE) að sendir verði eftir-
litsmenn til að fylgjast með kosn-
ingunum 30. janúar. Óvíst er talið
hvort samstaða næst um málið
vegna andstöðu margra Evrópu-
ríkja við stríðið í Írak.
Írak á ekki aðild að ÖSE. Lengst
af hefur stofnunin sem telur fimm-
tíu og fimm aðildarríki einungis
sinnt kosningaeftirliti á starfs-
svæði sínu sem nær til Norður-
Ameríku, Evrópuríkja og landa
sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum.
ÖSE sendi þó fulltrúa til aðstoð-
ar afgönskum yfirvöldum í nýliðn-
um kosningum. Íslendingar hafa
oft lagt til fulltrúa í kosningaeftir-
lit ÖSE, nú síðast í Úkraínu. ÖSE
getur hins vegar ekki tekið þátt í
kosningaeftirliti nema öll aðildar-
ríki samþykki það. Evrópusam-
bandið ætlar að senda eftirlits-
menn til Íraks vegna ótryggs
ástands þar. ■
Kosningar í Írak:
ÖSE beðið um eftirlit
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
KOSNINGAR Í SKUGGA STRÍÐS
Íraki hengir upp mynd af Ajatolla Ali al-Sistani í búðarglugga í Bagdad. Óvíst er hvort ÖSE
samþykkir kosningaeftirlit í Írak.