Fréttablaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 16
16
HVAÐ KOSTAR ÞAÐ?
Eðli ofbeldisverka virðist vera að breyt-
ast þó að ofbeldisverkum fjölgi ekki.
Ofbeldismenn virðast ekki gera sér
grein fyrir að eitt högg getur valdið
dauða. Tveir létust á síðasta ári vegna
eins banvæns
höggs.
Halldór Friðjóns-
dóttir, formaður
Bandalags háskóla-
manna, segist
halda að í báðum
þeim tilfellum hafi
verið um slys að
ræða og ekki hafi
verið ætlunin að
myrða. Fjölgun
vopna segir hún eðlilega þróun í undir-
heimunum með aukinni neyslu fíkni-
efna. „Mín tilfinning er að tölvuleikir og
sjónvarpsefni hafi áhrif á að ofbeldi
harðni. Krakkarnir spila tölvuleiki þar
sem menn drepa mann og annan án
þess að það hafi mikil áhrif og ég tel
það geti firrt þá raunveruleikatilfinn-
ingu.“ Þá segir hún að einnig verði að
viðurkenna að fólk sé misjafnt að upp-
lagi. Hún segir að ef börn fá ekki örvun
og gott atlæti í æsku sé meiri hætta á
að þau beiti ofbeldi.
Halldóra segist ekki endilega viss um
að þyngri refsingar geri menn að betri
einstaklingum þannig að þeir hætti að
ráðast á aðra. Til að svo megi verða
þurfi að gera breytingar í fangelsunum.
„Í dag virðist fangelsi vera einhvers
konar geymslustöð.“ ■
Telur sjónvarp og
tölvuleiki hafa áhrif
AFLEIÐINGAR
OFBELDIS VERÐA ALVARLEGRI
SJÓNARHÓLL
„Það er nú svo sem ágætt,“ svarar Ólaf-
ur Kristjánsson, fyrrverandi bæjarstjóri í
Bolungarvík, spurður hvað sé að frétta.
„En það er leiðindafærð og snjónum
kyngir niður. Mér sýnist áttin vera að
breytast og samfara því er hætt við að
hengjur brotni niður.“
Sem kunnugt er hefur veðrið verið vit-
laust vestra síðustu daga og hundi vart
út sigandi. Ólafur man tímana tvenna
þegar veðurfar er annars vegar og þarf
að leita aftur um áratug til að finna
hliðstæðu. „Þetta minnir mig svolítið á
árið 1995. Áhlaupið nú er svipað og
þá.“ Fáir eru á ferli í Bolungarvík þegar
svona viðrar og til dæmis var hætt við
mokstur gatna í gærmorgun þar sem
ekki sást á milli húsa. Ólafur telur hins
vegar að ástandið fái ekkert sérstaklega
á fólk. „Við erum nú orðin nokkuð vön
svona löguðu og menn halda stillingu
og ró. Sem betur fer eru allir orðnir
meðvitaðri um þær hættur sem kunna
að stafa af veðrinu,“ segir hann og
bendir á að eftirlit sé mun betra en
áður og fólk því upplýstara um ástand
mála.
Þó að Ólafur hafi látið af bæjarstjóra-
starfinu fyrir nokkru situr hann ekki að-
gerðarlaus því enn er hann fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Bol-
ungarvíkur og verður þar til hann verður
sjötugur á næsta ári. Að auki sest hann
reglulega við píanóið og spilar djass
með Villa Valla vini sínum og pólskum
snillingi sem kennir við tónlistarskólann
vestra.
Sem von er líst Ólafi illa á að Ratsjár-
stofnun hætti starfsemi á Bolafjalli við
Bolungarvík enda fyrirséð að um tugur
sérhæfðra starfsmanna missi við það
vinnuna og flytji í burt. „Þetta er blóð-
taka fyrir byggðarlagið enda hlaupa
þessir menn ekki í önnur störf hér,“ og
rifjar upp að Bolvíkingar hafi verið 1298
árið 1998 en séu 934 samkvæmt nýj-
ustu tölum. ■
Veðrið minnir á áhlaupið 1995
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ÓLAFUR KRISTJÁNSSON BOLVÍKINGUR.
5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Bókabúðinni lokað
Í næstu viku verður
skellt í lás í síðasta sinn í
Bókabúð Lárusar Blönd-
al við Engjateig. Bóksal-
inn í Laugardalnum
hefur tapað milljónum
króna á rekstrinum
síðustu ár og segir gylli-
boð Bónuss fyrir jólin
hafa gert útslagið. Fyrir
nokkrum árum lét hann
gamlan draum um versl-
unarmennsku rætast og
keypti búðina.
Það er einn viðskiptavinur í Bóka-
búð Lársar Blöndal við Engjateig í
Reykjavík, rétt fyrir klukkan 11 að
morgni fyrsta virka dags ársins
2005. Viðskiptavinurinn, lagleg
kona, rennir augunum eftir hillun-
um og staðnæmist við einstaka bók
eða annað sem er á boðstólnum.
Gefur sig svo á tal við afgreiðslu-
manninn og biður hann vinsamleg-
ast um að teygja sig í spil í efstu
hillu. Kaupir það og gengur út.
Guðjón Smári Agnarsson keypti
bókabúð Lárusar Blöndal fyrir
rúmum fimm árum. Hún var þá
neðarlega á Skólavörðustígnum, í
saman húsi og hún var stofnuð í
árið 1943. Lárus Blöndal hafði
rúmlega tvítugur byrjað að vinna í
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds-
sonar og varð svo verslunarstjóri í
Bókaverslun Ísafoldar þegar hún
var opnuð 1939.
Það er annars merkilegt hve
bækur og nafnið Lárus Blöndal eru
samofin í sögunni. Auk bóksalans
við Skólavörðustíginn höfum við
Lárus hinn siglfirska sem þar rak
Bókaverslun Lárusar Þ. J. Blöndal
og bókavörðinn Lárus sem lengi
gætti bóka á Landsbókasafninu og
á Alþingi.
Hvað um það, rúmlega sextíu
ára sögu Bókaverslunar Lárusar
Blöndal er að ljúka. Guðjón Smári,
sem jafnan er kallaður Smári, er
að bregða búi. Og hljóðið í honum
er þungt. „Þetta er hundfúlt,“
segir hann.
Penninn og Bónus
Eins og fram kom í spjalli við
Guðjón Smára í Fréttablaðinu
rúmri viku fyrir jól er hann ósátt-
ur við gylliboð stórmarkaðanna í
jólabókaflóðinu og ítrekar þá skoð-
un þar sem hann stendur í búðinni
sinni þennan kalda og hvassa
mánudagsmorgun. „Ja ég neita því
ekki að það hefur verið fremur
erfitt hjá mér undanfarið og í
haust fannst mér þetta ekki ganga
nógu vel,“ svarar hann aðspurður
hvenær hann hafi séð fram á að
þurfa að loka búðinni. „Penninn er
nánast einráður með sínar búðir
allt árið um kring og tveimur vik-
um fyrir jól kemur Bónushringur-
inn inn. Þegar ég byrjaði seldi
Bónus tvær til þrjár bækur á inn-
kaupsverði en fyrir þessi jól sýnd-
ist mér hver einasta bók vera þar á
innkaupsverði. Þessi gylliboð slá
rothöggið. Bónus er að þessu virð-
ist mér til að skapa sér einhverja
ímynd eða kannski tálmynd. Fá
fólk inn til að kaupa aðrar vörur
sem gróði er af.“
Guðjón Smári hefur líka horn í
síðu Pennans sem á og rekur fjölda
bókaverslana. „Mér finnst mjög
óeðlilegt að einn aðili sé svona
gjörsamlega ráðandi í bóksölu
annan tíma ársins. Penninn hefur
átt Eymundsson í nokkur ár og
keypti svo Mál og menningu fyrir
einu eða tveimur árum. Þar áður
var hann búinn að kaupa Griffil
sem selur bækur stöku sinnum. Að
mínu mati hefðu samkeppnisyfir-
völd átt að banna þetta.“
Tapið hleypur á milljónum
Guðjón Smári er uppalinn á Akra-
nesi og átti sér ungur þann draum
að fara út í verslunarrekstur. „Þeg-
ar ég var ungur maður ætlaði ég að
gerast verslunarmaður en leiddist
út í annað,“ segir hann og horfir í
gaupnir sér. Hann byrjaði að vinna
í sjávarútvegsráðuneytinu og
fluttist svo til Stöðvarfjarðar þar
sem hann varð framkvæmdastjóri
frystihússins. Síðar sinnti hann
eigin rekstri á Stöðvarfirði, flutti
út fisk og stundaði útgerð og skipa-
afgreiðslu. „Svo hættum við þessu
og fluttum hingað suður og þá
keypti ég þessa búð.“
Draumurinn rættist sumsé og
þó að reksturinn hafi alla tíð verið
erfiður fannst Guðjóni Smára
gaman í vinnunni. „Þetta hefur
verið erfiður tími en mér hefur
samt aldrei leiðst að fara í vinn-
una. Mér hefur alltaf fundist þetta
skemmtilegt.“ Aðspurður hvort
honum finnist líka gaman nú þegar
sér fyrir endann á rekstrinum
svarar hann: „Þetta er náttúrulega
svolítið sérstök tilfinning í dag. Nú
er ég að ganga frá. Ég ætla að
reyna að selja allt sem ég mögu-
lega get þessa síðustu daga, skila
svo inn þeim bókum sem ég get
ekki selt og svo loka ég.“
Tapaðirðu miklum peningum?
„Já.“
Mjög miklum?
„Já.“
Hversu miklum?
„Það hleypur á milljónum.“
Þarftu að borga þetta á næstu
árum og áratugum?
„Nei, ég átti svolítið fyrir þegar
ég fór í þetta.“
Búðin er þá ekki að fara í gjald
þrot?
„Nei, ég á ekki von á því.“
Hvað tekur við?
„Ja, nú vantar mig vinnu.“
Þú veist ekki hvað tekur við?
„Nei.“
Tómleiki í hjartanu?
„Já.“
Guðjón Smári hefur sjálfur
staðið vaktina svo að segja frá því
hann keypti verslunina, utan hvað
sonur hans hefur leyst hann af
stund og stund. Hann hafði unun af
að standa á bak við búðarborðið og
eiga samskipti við viðskiptavinina,
spjalla um allt og ekkert. Margir
voru fastir viðskiptavinir og
keyptu ekki bækur annars staðar
en í Bókabúð Lárusar Blöndal.
Honum þykir mjög leitt, gagnvart
því fólki, að þurfa að loka. En
endalokin verða ekki umflúin,
Bókabúð Lárusar Blöndal er að
loka eftir að hafa séð borgarbúum
fyrir bókum í rúm sextíu ár. Allt er
í heiminum hverfult.
bjorn@frettabladid.is
GUÐJÓN SMÁRI AGNARSSON
„Þetta hefur verið erfiður tími en mér hefur samt aldrei leiðst að fara í vinnuna. Mér hefur alltaf fundist þetta skemmtilegt.“
– hefur þú séð DV í dag?
MORÐINGINN
HÁKON EYDAL
LEGGUR SPILIN
Á BORÐIÐ Í
EINKA-
VIÐTALI
VIÐ DV
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
ÁRSKORT Í LÍKAMSRÆKT KOSTAR 43.040.
Um er að ræða meðalverð nokkurra
líkamsræktarstöðva í Reykjavík.
Ekki er tekið mið af sérstökum tilboðum.
HALLDÓRA
FRIÐJÓNSDÓTTIR