Fréttablaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 20
4 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR
Talnámskeið - 7 vikur Barnanámskeið frá 5 til 12 ára
Viðskiptanámskeið Málfræði og skrift
Einkatímar Námskeið fyrir 8-10. bekk
Málaskólar í Englandi Kennt á mismunandi stigum
Vertu velkomin í heimsókn og ráðgjöf
Enskuskóli Erlu Ara hefur aðsetur í gamla
Lækjarskólanum í Hafnarfirði. Þangað sækir
fólk í nám og sumir skella sér til Englands.
„Fólk flykkist á enskunámskeið og það er ánægju-
legt að sjá þegar einstaklingar fá stöðu- eða launa-
hækkun í kjölfar enskunáms eða taka ákvörðun
um að skella sér í meira nám,“ segir Erla Aradótt-
ir kennari sem rekur enskuskóla í gamla Lækjar-
skólanum í Hafnarfirði. Hún verður með 11 vikna
námskeið nú á vorönn í almennri ensku með
áherslu á talmál og býður líka upp á námskeið þar
sem áhersla verður lögð á viðskiptaensku. Nám-
skeiðin kosta 17.500 krónur. Tíu vikna enskunám-
skeið fyrir unglinga eru líka á döfinni hjá henni,
annars vegar fyrir 12-14 ára og hins vegar undir-
búningur fyrir samræmt próf í ensku. Þau kosta
16 þúsund.
Erla kveðst líka senda fólk í auknum mæli í
enskunám til Englands þar sem hún er í samstarfi
við enskuskóla bæði á Suður- og Norður-Englandi.
„Þetta er fólk úr öllum starfsstéttum,“ segir hún.
„Það dvelur frá tveimur vikum upp í níu og getur
valið um hóptíma og einkatíma sem eru sérstak-
lega sniðnir að þörfum þess og það getur líka
valið um að dvelja á hótelum, hjá fjölskyldum eða
leigja íbúð.“ Erla segir áberandi hversu ánægt
fólk sé þegar það gerir sér grein fyrir að það geti
fengið styrki frá starfsmenntasjóðum til þess að
sækja enskunám og hvetur alla til þess að kanna
sína stöðu í þeim efnum.
Nánari upplýsingar um Enskuskóla Erlu Ara
má sjá á enskafyriralla.is eða í síma 891 7576. ■
Erla Aradóttir ásamt eiganda The English Language Centre í York á fögrum sumardegi.
Almenn enska með áherslu á talmál
Jólabækurnar í leshring
hjá Endurmenntun Háskóla
Íslands.
„Ég var með þetta í vor sem leið og
það var gasalega gaman, alveg ríf-
andi fjör,“ segir Silja Aðalsteins-
dóttir bókmenntafræðingur og
hlær en heldur svo áfram af fullri
alvöru með smá lýsingu á nám-
skeiðinu. „Nemendur velja í fyrsta
tímanum bækurnar sem eru lesnar,
með uppástungum, og handaupp-
réttingar ráða svo valinu. En valið
var handahófskennt í fyrra því fólk
var búið að lesa lítið, en úrvalið var
fjölbreytt og skemmtilegt,“ segir
Silja.
Höfundar verkanna eru fengnir
til að koma í heimsólkn og ræða við
þátttakendur, svara spurningum og
segja jafnvel aðeins frá tilurð
verksins. „Sjálf held ég smá fyrir-
lestur um höfundinn þar sem ég
segi lauslega frá honum og tek
svona fram það sem kemur málinu
við í sambandi við bókina sem er
lesin,“ segir Silja og tekur fram að
það sé með ýmsum hætti hvernig
tímarnir fara fram og fari í raun
eftir því hvað bókin býður upp á.
„Umræðurnar voru mjög líf-
legar og skemmtilegar og margt
kom mér mjög mikið á óvart,“
segir Silja.
Námskeiðið kallast einfaldlega
Leshringur með Silju Aðalsteins-
dóttur og hefst 20. janúar næst-
komandi, en skráning er hafin hjá
Endurmenntum HÍ. ■
„Ég var með þetta í vor sem leið og það
var gasalega gaman, alveg rífandi fjör,“
segir Silja Aðalsteinsdóttir.
Alveg rífandi fjör
Tækniótti yfirstiginn
Mímir - símenntun býður upp á
nokkur námskeið um notkun al-
gengustu tækja.
Tæknivæðingin hefur lagst misvel í
fólk og þeir eru ófáir sem finna fyrir
öryggisleysi og ótta við notkun
algengustu tækja. Mímir - símenntun
er með þrjú námskeið þar sem fólki
er kennt að þekkja tækin sín betur og
nýta þau sem best.
Fyrst ber að nefna námskeiðið Lærðu
betur á GSM símann þinn þar sem
kennarar frá Símanum leiða þátttak-
endur í gegnum frumskóg farsím-
anna. Farið er yfir hluti eins og SMS
skilaboð, númerabirtingu og margt
fleira. Viðskiptavinir Símans fá nám-
skeiðið á tilboðsverði.
Næst skal nefna námskeiðið Nám-
skeið fyrir handvirkar filmu- og digital-
vélar. Þar er farið í myndbyggingu,
lýsingu og annað sem viðkemur ljós-
myndatöku. Hópnum verður skipt
upp í síðasta tíma eftir því hvort um
er að ræða filmu- eða digitalvél og er
þetta tilvalið fyrir alla þá sem vilja
taka betri myndir.
Að lokum er námskeiðið Lærðu á
GPS tækið þitt. Þá er kennt á GPS
tækið og farið yfir hvernig nota eigi
landakort og GPS tæki saman. Hluti
af námskeiðinu felst í verklegri
kennslu.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is