Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 25

Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 25
17MIÐVIKUDAGUR 5. janúar 2005 Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að vaxtahækkanir Seðlabanka Íslands komi til með að halda aftur af verðbólg- unni og að hún verði aðeins 2,1 prósent í ár. Í Morgunkorni Íslandsbanka í gær kom fram að nú sé verðbólga á Íslandi hærri en gengur og gerist í samanburð- arlöndum okkar og er aukin innlend eftirspurn talin frumorsök verðbólg- unnar nú. Bankinn spáir því hins vegar að verð- bólgan muni hjaðna hratt á næstu mán- uðum þegar áhrifa af gengishækkun krónunnar fer að gæta í auknum mæli og verði komin niður fyrir verðbólgu- markmið Seðlabankans um mitt ár. Íslandsbanki segir að ef þessi spá gangi eftir þá sé um markverðan árang- ur í hagstjórn að ræða en bendir á að sá árangur muni hvíla á aðhaldssemi í peningastjórnun en ekki í aðhaldi við rekstur hins opinbera. „Verðbólgumark- miðinu er þannig náð með því að lækka verð innfluttrar vöru og veikja stöðu þeirra fyrirtækja sem helst keppa við erlend,“ segir í Morgunkorninu. Þótt verðbólguhorfur á nýhöfnu ári séu góðar að mati Íslandsbanka telur greiningardeildin að áhrif hás gengis fjari út þegar á líður á næsta ár og þá gerir Íslandsbanki ráð fyrir að verð- bólgan verði 3,3 prósent. - þk MESTA HÆKKUN ICEX-15 3.344 KAUPHÖLL ÍSLANDS [ HLUTABRÉF ] Fjöldi viðskipta: 342 Velta: 6.246 milljónir -0,47% MESTA LÆKKUN vidskipti@frettabladid.is Telja að verðbólgumarkmið náist Íslandsbanki telur að verðbólga í ár verði aðeins 2,1 prósent. Enn eiga áhrif gengishækkunar eftir að skila sér í verðlaginu. Bankinn spáir 3,3 prósenta verðbólgu árið 2006. Actavis 38,90 +0,52% ... Bakkavör 24,00 -1,23% ... Burðarás 11,85 -1,25% ... Atorka 5,79 -1,03% ... Flug- leiðir 9,90 +0,51% ... Íslandsbanki 11,00 -1,79% ... KB banki 443,50 +0,34% ... Kögun 46,40 - ... Landsbankinn 11,95 -1,24% ... Marel 48,80 -0,81% ... Medcare 6,10 - ... Og fjarskipti 3,23 +0,94% ... Samherji 11,10 - ... Straumur 9,50 -0,52% ... Össur 76,50 - Og fjarskipti 0,94% Actavis 0,52% Flugleiðir 0,51% Síminn -8,89% Opin kerfi -7,41% SÍF -2,26% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: nánar á visir.is SALA SAMKEPPNISAÐILA Ríkissímafyrirtæki Tékklands er til sölu. Fyrir á markaðnum er fjarskiptafyrirtæki sem er í eigu fjárfesta undir forystu Björg- ólfs Thors Björgólfssonar. Tékka á símakaupum Níu fyrirtæki hafa lýst áhuga á að kaupa tékkneska ríkissíma- fyrirtækið Ceske Telecom. Meðal þeirra eru nokkur af stærri símafyrirtækjum Evrópu svo sem Telia Sonera, TDC í Danmörku, Vodafone, Swisscom og Telefonica á Spáni. Frestur til þess að skila inn tilboðum í fyrsta hluta söluferlisins rennur út 3. febrúar. TDC var meðal þeirra fyrir- tækja sem skoðuðu kaup á Sím- anum hér á landi þegar síðast var gerð tilraun til að einka- væða fyrirtækið. Tékkneska ríkið hyggst selja 51 prósent í símafyrirtækinu. Seðlabanki Tékklands hefur mælt með því að greiðsla fyrir hlutinn verði í tékkneskum krónum í stað evra. Íslenskir fjárfestar eiga hagsmuni á tékkneskum síma- markaði, en Björgólfur Thor Björgólfsson fór fyrir hópi fjár- festa sem keypti fjarskipta- fyrirtækið Ceske radiokom- unikace sem rekur grunnnet fastlínu- og farsímakerfis, auk þess að eiga 40 prósenta hlut í farsímafyrirtækinu T-Mobile. - hh Verðtryggðir vextir lækka Verðtryggðir vextir lækkuðu á markaði í gær. Lækkun á ávöxt- unarkröfu íbúðabréfa var sex punktar að meðaltali og er ávöxtunarkrafa bréfanna á bilinu 3,47 til 3,56 prósent. Ástæða lækkunarinnar er að markaðurinn gerir ráð fyrir minna framboði ríkistryggðra bréfa á árinu. Íbúðalánasjóður gerir ráð fyrir minni útgáfu á árinu, auk þess sem væntingar eru um talsverðar uppgreiðslur sjóðsins á bréfum vegna endur- fjármögnunar eldri lána. Endur- fjármögnun íbúðalána hefur verið meiri og hraðari en flestir bjuggust við eftir innkomu bankanna á íbúðalánamarkað. - hh SPÁIR 2,1 PRÓSENTS VERÐBÓLGU Greiningardeild Íslandsbanka gaf í gær út verð- bólguspár. Þar gætir bjartsýni um horfur í efna- hagsmálum og verðbólgan ekki að fara úr böndunum.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.