Fréttablaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.01.2005, Blaðsíða 28
Guðlaugur Bergmann fram- kvæmdastjóri lést hinn 27. des- ember 2004. Hann verður jarð- sunginn frá Hallgrímskirkju í dag klukkan 13.00. Guðlaugur Bergmann var um árabil um- svifamikill kaupsýslumaður og iðnrekandi í Reykjavík. Hann stofnaði verslunina Karnabæ og rak saumastofu í tengslum við hana. Verslunin var lengi í farar- broddi í tískufatnaði ungs fólks. Guðlaugur lét líka ýmis þjóð- þrifamál til sín taka og var gjarnan ómyrkur í máli. Fjölskylda hans hefur stofnað um hann Minningarsjóð. Mark- mið sjóðsins er að styrkja verk- efni í umhverfis- og samfélags- málum, en þau áttu hug og hjarta Guðlaugs síðustu árin. Hann hafði sem verkefnisstjóri unnið ötullega að því að undir- búa sveitarfélögin á Snæfells- nesi undir vottun Green Globe 21, en öðrum áfanga í því ferli var náð í nóvember sl. þegar sveitarfélögin fengu formlega viðurkenningu á því að hafa mætt viðmiðum Green Globe 21. Guðlaugur hafði talað um það við fjölskyldu sína að hann óskaði þess helst að sín yrði minnst fyrir starf sitt að um- hverfismálum, því hann taldi þau vera eitt mikilvægasta verk- efni sem núverandi kynslóð gæti tekist á við. Sjóðurinn var í upphafi kynntur undir kennitölu dánar- búsins en hefur nú fengið eigin kennitölu. Þeim sem vilja minn- ast frumkvöðulsins Gulla Berg- mann, sem alltaf lagði alla sína krafta í þau verkefni sem áttu hug hans hverju sinni, er bent á Minningarsjóðinn. Reiknings- númer sjóðsins er: 1143 18 640230 kt. 430105-2130. ■ 20 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR LEIKRITIÐ „BEÐIÐ EFTIR GODOT“ eftir Samuel Beckett var frumsýnt í París þennan dag 1952. Minningarsjóður stofnaður GUÐLAUGUR BERGMANN: VERÐUR JARÐSETTUR Í DAG „Orð eru allt sem við eigum“ - Gagnrýnandi sagði um þetta höfuðverk absúrdismans: „Í þessu leikriti gerist ekkert – tvisvar.“ timamot@frettabladid.is AFMÆLI Hulda Jensdóttir ljósmóðir er áttræð í dag. Iðunn Steinsdóttir rithöfundur er 65 ára. Steinunn Harðardóttir dagskrárgerðar- maður er 55 ára. Davíð Þór Jónsson vísnaskáld er fertug- ur í dag. Melkorka Tekla Ólafsdóttir leiklist- arráðunautur er 35 ára í dag. ANDLÁT Aðalsteinn Smári Valgeirsson, Múla- vegi 35, Seyðisfirði, lést föstudaginn 31. desember. Pétur Sigurðsson lést laugardaginn 1. janúar. Stefán Runólfsson bóndi, Berustöðum, lést föstudaginn 31. desember. Skúli Björgvin Sighvatsson, Skólavegi 24, Keflavík, lést laugardaginn 1. janúar. Sigrún Sæmundsdóttir, Vallargötu 7, Þingeyri, lést laugardaginn 1. janúar JARÐARFARIR 13.00 Erla Finnsdóttir frá Siglufirði, verð- ur jarðsungin frá Grafarvogskirkju. 13.00 Ólöf Svavarsdóttir sjúkraliði, Hrauntungu 12, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju. 14.00 Jón Bjarni Ólafsson, Borgarbraut 65a, Borgarnesi, verður jarðsung- inn frá Borgarneskirkju. 15.00 Gyða Karlsdóttir verður jarðsung- in frá Fossvogskirkju. GUÐLAUGUR BERGMANN Fjölskylda hans hefur stofnað um hann Minningarsjóð. Markmið sjóðsins er að styrkja verkefni í umhverfis- og samfélagsmálum. Þennan dag árið 1895 var franski liðsforinginn Alfred Dreyfus svipt- ur öllum tignarmerkjum við opin- bera athöfn og síðan sendur til afplánunar á Djöflaeyjunni. Dreyfus var sakaður um njósnir og í fljótfærnislegum réttarhöld- um sakfelldur og dæmdur í ævi- langt fangelsi. Rúmu ári seinna kom í ljós að sökudólgurinn var í raun annar liðsforingi, Esterhazy. Honum var stefnt fyrir herrétt en rétturinn var ekki lengi að kom- ast að niðurstöðu um sýknu hans. Það var eftir þennan sýknudóm sem rithöfundurinn Emil Zola birti hið fræga opna bréf sitt, „J¥accuse“. Zola varð í kjölfarið að flýja land dæmdur fyrir meiðyrði. En málinu var ekki lokið. Franska þjóðin skiptist í tvær fylkingar. Annars vegar voru þeir sem trúðu á sekt Dreyfusar og hins vegar frjálslynd öfl sem þótti málið bera vitni um gyð- ingahatur og fordóma ráðandi afla í samfélaginu. 1898 játaði svo Hubert Henry að hafa falsað mest af gögnunum sem notuð voru til þess að sakfella Dreyfus. Önnur réttarhöld fóru fram og að þessu sinni var Dreyfus dæmdur til tíu ára fangavistar. Ný ríkis- stjórn náðaði hann og loks 1906 komst hæstiréttur Frakklands að þeirri niðurstöðu að málatilbún- aðurinn væri ómerkur og náðaði liðsforingjann Dreyfus. Málið leiddi til mikilla breytinga í Frakk- landi í frjálsræðisátt. 5. JANÚAR 1895 Dreyfus sviptur tignarmerkjum. ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1846 Bandaríkjaþing slær eign sinni á Oregon. 1874 Stjórnarskráin staðfest af konungi. Hún tók gildi 1. ágúst. 1931 Fyrsta barnið fæðist á Land- spítalanum í Reykjavík. 1933 Vinna hafin við Golden Gate brúna í San Fransisco. 1959 Síðasta lag Buddy Holly gefið út, „It doesn´t matter anymore“. 1941 Bréfi dreift til breskra her- manna og þeir hvattir til þess að ganga ekki í verk Íslendinga í verkfalli. 1945 Sovétríkin viðurkenna stjórn hliðholla sér í Póllandi. 1946 Fyrsta litmyndin með tali sem tekin var á Íslandi frumsýnd í Reykjavík. Myndin var um lýðveldis- hátíðina 1944. Dreyfusmálið Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðlaug Einarsdóttir Vesturgötu 7, Eir, Verður jarðsungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. janúar klukkan 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörg Guðmundsdóttir, Ólafur Pétursson, Þórfríður Guð- mundsdóttir, Gísli Kr. Jónsson, Guðlaug Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn og faðir okkar, Magnús Blöndal Jóhannsson verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 6. janúar kl. 11. Fyrir hönd ástvina, Hulda Björnsdóttir Sassoon, Jóhann Magnús Magnússon, Kristján Þorgeir Magnússon og Marínó Már Magnússon. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Stefán Runólfsson bóndi, Berustöðum, andaðist á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á gamlársdag. Útför hans fer fram frá Kálfholtskirkju laugardaginn 8. janúar kl. 14. Fanney Jóhannsdóttir, Sigrún Hrafnsdóttir, Anna Guðrún Stefánsdóttir, Jóhanna Gyða Stefánsdóttir, Steinunn Inga Stefánsdóttir, Magnea Bára Stefánsdóttir, Ingibjörg Ósk Stefánsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Ástkær eiginmaður minn, Ingólfur Arnar Þorkelsson Espigerði 4, Reykjavík, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 3. janúar. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Rannveig Jónsdóttir. Ástkær móðir okkar, Þórunn Sveinsdóttir Fljótakróki, Skaftárhreppi, lést sunnudaginn 2. janúar á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Klausturhólum, Kirkjubæjarklaustri. Útförin fer fram frá Prestsbakkakirkju á Síðu, laugardaginn 8. janúar klukkan 14.00. Börn hinnar látnu og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi og langafi, Guðlaugur Bergmann Sólbrekku, Hellnum, Snæfellsbæ, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, miðvikudaginn 5. janúar kl. 15. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Minningarsjóð um Guðlaug Bergmann, sem kemur til með að veita styrki til umhverfis- og samfélagsmála. Reikningsnúmer sjóðsins er: 1143 18 640230 kt. 430105-2130. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún G. Bergmann

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.