Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 30

Fréttablaðið - 05.01.2005, Page 30
FÓTBOLTI Ekkert lát virðist ætla verða á sigurgöngu Chelsea og í gær tók liðið Middlesbrough í sannkallaða kennslustund í knattspyrnu. Yfirburðir Chelsea voru algjörir og hefði liðið getað unnið mun stærri sigur en raun bar vitni. Didier Drogba var í miklu stuði eftir að hafa komið inn í byrjunarliðið í stað Eiðs Smára Guðjohnsen og skoraði bæði mörk liðsins á fyrstu 17 mínútunum. Þess má geta að Eiður Smári sat á varamannabekk Chelsea allan leikinn. Munar nú heilum 7 stigum á milli Chelsea og Arsenal sem mjög óvænt náði aðeins jafntefli gegn Manchester City á Highbury. Shaun Wright-Phillips kom gestunum yfir á 31. mínútu en Freddie Ljungberg jafnaði stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar við sat þrátt fyrir þunga pressu Arsenal á lokamínútunum. Manchester United hikstaði einnig í gærkvöldi eftir frábær gengi undanfarið. Á einhvern óskiljanlegan hátt náði liðið ekki að skora þrátt fyrir afar mikla yfirburði og til marks um þá má nefna að liðið var með boltann um 70% af leiknum. Everton blaðran virðist ekki alveg vera sprungin og var Leon Osman hetja liðsins í gær þegar hann skoraði sigurmarkið á síðustu mínútu leiksins gegn Portsmouth. Sigurinn styrkir stöðu Everton í fjórða sæti deildarinnar og er liðið nú sex stigum á undan erkifjendunum í Liverpool sem eru í fimmta sæti. Í fimmta og síðasta leik gærkvöldsins vann Bolton gríðarlega mikilvægan sigur á Birmingham. 22 5. janúar 2005 MIÐVIKUDAGUR Við hrósum ... íþróttafréttamönnunum Guðjóni Guðmundssyni og Adolf Inga Erlingssyni sem mættu í morgunsjónvarp Stöðvar 2 í gær til að „réttlæta“ kjörið á íþróttamanni ársins. Vöktu þeir réttilega athygli á því að samtökum íþrótta- fréttamanna bæri engin skylda til þjóðarinnar að útskýra niðurstöður leynilegrar kosningar samtakanna sem fram fór í lok síðasta árs, þar sem meðlimir eru beðnir um að kjósa eftir eigin sannfæringu. „Ég vil að andstæðingar mínir deyi.“ Vanderlei Luxemburgo, nýráðinn þjálfari Real Madrid, vill mótherjum sínum ekki neitt gott.sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 2 3 4 5 6 7 8 Miðvikudagur JANÚAR Bilið á toppnum eykst Arsenal tapaði stigum á heimavelli gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær á meðan Chelsea hélt uppteknum hætti og valtaði yfir Middlesbrough. Munar nú 7 stigum á milli liðanna á toppnum. ■ ■ LEIKIR  19.15 Grindavík og KR mætast í Grindavík í 1. deild kvenna í körfubolta.  19.15 Njarðvík og Keflavík mætast í Njarðvík í 1. deild kvenna í körfubolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.45 Olíssport á Sýn.  19.00 Heimsbikarinn á skíðum á Sýn.  19.25 Bestu bikarmörkin á Sýn. Fyrri þáttur af tveimur þar sem farið er yfir bestu mörkin í ensku bikarkeppninni í fótbolta.  20.15 Bestu bikarmörkin á Sýn. Seinni þáttur af tveimur þar sem farið er yfir bestu mörkin í ensku bikarkeppninni í fótbolta.  21.10 Maradona á Sýn. Þáttur um argentínska knattspyrnusnillinginn Diego Maradona.  22.00 Olíssport á Sýn.  22.20 Íþróttakvöld á RÚV.  23.15 Bandaríska mótaröðin í golfi 2004 á Sýn. Farið yfir nýlokið keppnistímabil á bandarísku mótaröðinni í golfi.                     ! "#                         !  " !# $%% & ' ( !#) $%%***+   Enska úrvalsdeildin ÚRSLIT ARSENAL–MAN. CITY 1–1 0–1 Shaun Wright-Phillips (31.), 1–1 Freddie Ljungberg (75.). BIRMINGHAM–BOLTON 1–1 0–1 El-Hadji Diouf (17.), 1–1 Matthew Upson (66.), 1–2 Kevin Davies (90.). CHELSEA–MIDDLESBROUGH 2–0 1–0 Didier Drogba (15.), 2–0 Didier Drogba (17.). EVERTON–PORTSMOUTH 2–1 1–0 Alan Stubbs (29.), 1–1 Yakubu Aiyegbeni (31.), 2–1 Leon Osman (90.). MAN. UTD–TOTTENHAM 0–0 STAÐAN CHELSEA 22 17 4 1 43:8 55 ARSENAL 22 14 6 2 52:24 48 MAN. UTD. 22 12 8 2 33:13 44 EVERTON 22 13 4 5 27:23 43 LIVERPOOL 22 11 4 7 36:22 37 MIDDLESB. 22 10 5 7 34:28 35 TOTTENHAM 22 9 6 7 29:21 33 CHARLTON 22 9 4 9 24:32 31 MAN. CITY 22 7 7 8 27:23 28 ASTON VILLA 22 7 7 8 23:26 28 BOLTON 22 7 6 9 29:31 27 PORSTMOUTH 22 7 6 9 26:30 27 BIRMINGHAM 22 6 8 8 25:25 26 NEWCASTLE 22 6 8 8 33:39 26 BLACKBURN 22 4 10 8 20:33 22 FULHAM 21 6 3 12 25:36 21 CR. PALACE 22 4 6 12 23:34 18 NORWICH 22 2 10 10 19:39 16 SOUTHAMPT. 21 2 8 11 19:34 14 WEST BROM 22 1 10 11 17:43 13 MARKAHÆSTIR THIERRY HENRY, ARSENAL 16 ANDY JOHNSON, CRYSTAL PALACE 13 JERMAIN DEFOE, TOTTENHAM 10 ROBERT PIRES, ARSENAL 10 ANDY COLE, FULHAM 8 MILAN BAROS, LIVERPOOL 8 JIMMY F. HASSELBANK, MIDDLESBR. 8 AIYEGBENI YAKUBU, PORTSMOUTH 8 ROBBIE KEANE, TOTTENHAM 7 NICOLAS ANELKA, MAN.CITY 7 PAUL DICKOV, BLACKBURN 7 PAUL SCHOLES, MAN.UTD 7 EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN, CHELSEA 7 CRAIG BELLAMY, NEWCASTLE 7 SHAUN WRIGHT-PHILIPS, MAN.CITY 7 EMILE HESKEY, BIRMINGHAM 6 FREDDIE LJUNGBERG, ARSENAL 6 DAMIEN DUFF, CHELSEA 6 KEVIN DAVIES, BOLTON 6 DIDIER DROGBA, CHELSEA 6 HENRIK PEDERSEN, BOLTON 6 JOSE ANTONIO REYES, ARSENAL 6 JOHN ARNE RIISE, LIVERPOOL 5 LUIS GARCIA, LIVERPOOL 5 LEIKIR GÆRDAGSINS Íslandsmeistarar FH halda áfram að styrkja sig: Auðun semur í dag FÓTBOLTI Íslandsmeistarar FH verða ekki árennilegir næsta sumar því enn bætist í sterkan leikmannahóp félagsins. Sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum Fréttablaðsins mun varnar- maðurinn sterki, Auðun Helga- son, skrifa undir þriggja ára samning við félagið í dag. Auðun er uppalinn FH-ingur en hefur leikið sem atvinnumaður undanfarin ár. Sænska félagið Landskrona bauð honum tveggja ára samning og var einnig tilbúið að gera hann að fyrirliða liðsins samkvæmt heimildum blaðsins. Auðun hafnaði samningstilboði félagsins og ákvað frekar að koma heim til Íslands. Auðun verður þriðji leik- maðurinn sem gengur í raðir Íslandsmeistarana í vetur en áður hafa Daninn Dennis Siim og Ólafur Páll Snorrason skrifað undir samning við félagið. Auðun vildi ekki tjá sig um málið við Fréttablaðið í gær en FH er með blaðamannafund í hádeginu í dag þar sem Auðun verður kynntur til leiks. Á LEIÐ HEIM Auðun Helgason skrifar undir þriggja ára samning við uppeldis- félag sitt , FH, í dag. FYRSTA MARKIÐ STAÐREYND Didier Drogba fór illa með Gareth Southgate þegar hann skoraði fyrra mark sitt í leiknum í gær og Mark Schwarzer var bjargarlaus í markinu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.