Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 5. janúar 2005
Ray Allen og félagar í SeattleSupersonics bundu enda á 14
leikja sigurgöngu
Miami Heat í NBA-
körfuboltanum í
fyrrinótt, 98-96.
Allen fór fyrir sínum
mönnum og skor-
aði 35 stig. Leikur-
inn var í járnum síð-
ustu mínúturnar og
náði Heat að jafna
leikinn fjórum sinn-
um á síðustu fimm
mínútum leiksins
en Sonics náði
alltaf að svara og
knúði fram sigur. Dwyane Wade var
stigahæstur Heat með 28 stig. „Þetta
var góður sigur hjá okkur, sérstaklega
í ljósi sigurgöngu Miami-liðsins,“
sagði Nate McMillan, þjálfari Sonics,
sem er með næstbesta árangur allra
liða í NBA á eftir Phoenix Suns.
Góðar líkur eru á að MauricioPellegrino hjá spænska liðinu
Valencia gangi til liðs við Liverpool.
Hinn 33 ára gamli Pellegrino hefur
fengið leyfi hjá Valencia til að hefja
viðræður við Liverpool. Samkvæmt
Filippo Cavadini,
u m b o ð s m a n n i
Pellegrino, fékk
kappinn tilboð frá
Liverpool í fyrradag
sem hljómaði ágæt-
lega. „Fyrst þarf þó
að ganga frá samn-
ingslokum við Val-
encia,“ sagði Cavadini. „Minn maður
er tilbúinn að fara til Liverpool.“ Sjálf-
ur sagðist Pellegrino alltaf hafa
dreymt um að leika í enska boltan-
um.
Aaron Mokoena, fyrirliði Suður-Afríku og leikmaður Racing Genk
í Belgíu, hefur gengið til liðs við
Blackburn í
ensku úrvals-
deildinni í
kna t t spy rnu .
Kaupverðið er
300 þúsund
p u n d .
Mokoena var
kynntur til leiks
í hálfleik í viður-
eign Blackburn
og Charlton. „Ég er mjög spenntur
fyrir því að spila í ensku úrvalsdeild-
inni. Markmið mitt er að komast í
byrjunarliðið,“ sagði Mokoena.
Jamie Redknapp hefur samið viðSouthampton til næstu sex mán-
aða eftir að forráðamenn Tottenham
gáfu honum grænt
ljós á að flytja sig
um set. Redknapp,
sem lék í tæp þrjú ár
með Tottenham,
mun starfa með föð-
ur sínum, Harry
Redknapp, í Sout-
hampton. „Ég er
mjög spenntur fyrir
þessu. Þetta er frá-
bært félag og mikil áskorun fyrir
mig,“ sagði Jamie.
Það verða engir leikmenn keyptirtil Arsenal í þessum mánuði.
Þetta fullyrti Arsene Wenger, knatt-
spyrnus t jó r i
liðsins, á dög-
unum en þær
sögur gengu
fjöllum hærra
að Jussi
Jaaskelainen,
m a r k v ö r ð u r
Bolton, væri á
leið til Arsenal. „Á þessari stundu er
leikmannaskiptaglugginn minn lok-
aður og ég hef engin áform um að
opna hann,“ sagði Wenger.
Gríman sem LeBron James lékmeð til að verja áverka sem hann
hlaut í leik
gegn Houston
kom ekki í veg
fyrir góða
frammistöðu
kappans í leik
C l e v e l a n d
Cavaliers gegn
C h a r l o t t e
Bobcats í
N B A - k ö r f u -
boltanum í
f y r r i n ó t t .
James var
s t i g a h æ s t i
maður vallarins með 26 stig, tók 8
fráköst og gaf 6 stoðsendingar.
Cavaliers vann leikinn 92-83 og er
næstefst í Austurdeildinni með 60%
vinningshlutfall en Shaquille O’Neal
og lið hans, Miami Heat, er sem fyrr
á toppnum.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Körfuboltalið Hauka skiptir um útlending:
Manciel kominn aftur
KÖRFUBOLTI Bandaríkjamaðurinn
Michael Manciel, sem lék með
Haukum á síðasta tímabili í Inter-
sportdeildinni í körfubolta, er
genginn til liðs við félagið á nýjan
leik og mun spila með því til loka
tímabilsins.
Manciel leysir landa sinn
Damon Flint af hólmi en Flint spil-
aði tvo leiki með Haukum fyrir jól
og þótti ekki standa undir vænt-
ingum.
Sverrir Hjörleifsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Hauka,
sagði í samtali við Fréttablaðið að
Flint kæmi ekki aftur til Íslands
og að Haukar væru mjög ánægðir
með að hafa fengið Manciel til
baka á nýjan leik.
„Við vorum ekki sáttir við Flint
og Manciel er happafengur ef
hann skilar sömu tölum og fyrir
jól í fyrra,“ sagði Sverrir.
Manciel var lykilmaður í liði
Hauka í fyrra og skoraði 24,3 stig
og tók 13 fráköst í deildinni að
meðaltali.
Haukar eru í níunda sæti deild-
arinnar eins og staðan er í dag og
Sverrir sagði það vera undir
væntingum.
„Það er ekkert launungarmál
að við ætluðum okkur að vera
ofar. Þetta er óvænt staða fyrir
okkur ef svo má segja og fyrsta
verk liðsins eftir áramót verður
að koma liðinu út úr þeim hremm-
ingum sem það er í. Við stefnum
að sjálfsögðu á sæti í úrslita-
keppninni en það passar einhvern
veginn ekki, miðað við stöðu okk-
ar í dag, að stefna á eitthvert
ákveðið sæti,“ sagði Sverrir í gær.
-ósk
MICHAEL MANCIEL Kominn í raðir Hauka á nýjan leik eftir að hafa ekki spilað neitt fyrir
áramót. Hann sést hér reyna að komast framhjá Njarðvíkingnum Friðriki Stefánssyni.