Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 39

Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 39
LSA MIRALE Grensásvegi 8 108 Reykjavík sími: 517 1020 Opið: mán. - föstud. 11-18 laugard. 11-15 Útsala 15- 50% afsláttur MIÐVIKUDAGUR 5. janúar 2005 Hljómsveitin Vínyl heldur til Austin í Texas í mars þar sem þeir kauðar spila á tónlistarhátíðinni SXSW. Þetta er stærðarinnar há- tíð þar sem margar hljómsveitirn- ar hafa fengið sitt stóra tækifæri. Ár hvert koma þarna fram hund- ruðir hljómsveita og í fyrra var nóg af stórum nöfnum og má þar helst nefna N.E.R.D., Dizzee Rascal, Blink 182, Scissor Sisters, TV On The Radio og Joss Stone. „Þetta er svona festival sam- bærilegt við Inner City, CMJ og Airwaves. Við sóttum um og vor- um meðal þeirra sem voru valdir. Tvær íslenskar hljómsveitir í við- bót spila á tónleikunum. Það eru hljómsveitirnar Ske og Ampop,“ segir Egill Tómasson gítarleikari Vínyl. Hátíðin stendur yfir frá 16. til 20. mars og segir Egill þá félaga jafnvel munu spila á fleiri tónleik- um í sömu ferð. „Það er ekkert komið á hreint en það getur vel verið að við spilum á fleirum tón- leikum. Þarna er verið að sýna hvað er það ferskasta í tónlistar- senunni og þeir sem stjórna þessu eru gaurar sem stúdera músík út í eitt.“ Hljómsveitin fer út vel undir- búnin með splunkunýja plötu í farteskinu. Platan kemur út þann 3. febrúar og mun þá efnt til helj- arinnar útgáfutónleika. Þetta er fyrsta stóra plata Vínyls og ber hún heitið LP. „Þetta er að sjálfsögðu gríðar- lega spennandi fyrir okkur og við erum mjög ánægðir. Við höfum breyst mjög mikið sem hljómsveit síðan við byrjuðum að spila sam- an. Platan spannar allt tímabilið sem við erum búnir að vera að spila saman í þessari mynd og það heyrist vel á plötunni. Við sækj- um áhrif úr öllum áttum og ómögulegt að nefna einn áhrifa- vald. Fólk verður bara að hlusta á plötuna.“ hilda@frettabladid.is Hljómsveitin Vínyl til Texas VÍNYL Spilar ásamt öðrum vel völdum ferskum hljómsveitum á tónlistarhátíðinni SXSW.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.