Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 40

Fréttablaðið - 05.01.2005, Síða 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 GÞ leysir kennaravandann BAKÞANKAR ÞRÁINS BERTELSSONAR Eitt er það sem er gulltryggt á Ís-landi, en það er að hvorki mölur né ryð skuli fá grandað verðgildi peninga. Það hugsjónaátak sem kallast „verðtrygging“ kostar þjóð- ina blóð, tár og svita, enda fylgja því miklar fórnir að upphefja nátt- úrulögmálin og tryggja að þótt deyi fé og deyi frændur skuli fjármagn aldregi tapa gildi sínu, hvað svo sem á dynur. Í JÓLABOÐUM er margt spjallað um landsins gagn og nauðsynjar og í einu slíku setti vinur minn, GÞ, fram stórmerkilega hugmynd um hvernig tryggja megi kennurum mannsæmandi kjör sem myndu gera það að verkum að verkföll þessarar mikilvægu stéttar heyrðu sögunni til. Vandinn sem þarf að leysa er sá að kjör mismunandi stétta eru síbreytileg og þeir sem í dag eru sæmilega haldnir af laun- um sínum hafa dregist aftur úr á morgun. EINFÖLD LEIÐ til að kippa kenn- arastéttinni út úr þessari eilífu kjarabaráttu er að tengja kennara- laun við hóp í þjóðfélaginu sem kann að bjarga sér í kjaramálum og það án þess að fara nokkru sinni í verkfall. Snjallt væri að ákveða að kennaralaun skuli héðan í frá og til eilífðar vera fastbundin kjörum stjórnmálamanna og reiknast sem ákveðið hlutfall af meðal-brúttó- launum alþingismanna og ráðherra ásamt með biðlauna- og eftirlauna- réttindum og nefndasporslum, ferðalögum og dagpeningum. ÞETTA VÆRI góður díll fyrir alla. Alþingismenn og ráðherrar úr öll- um flokkum eru innilega sammála um að kjör þeirra séu hófleg, sann- gjörn og í takti við þjóðfélagið. Ef kennurum væru tryggð XX% af þessum kjörum væri ótruflað skóla- starf tryggt til frambúðar. Að vísu er sá galli á þessu reiknilíkani að virðing kennarastarfsins er á upp- leið eftir því sem kennarar þurfa að aðlaga sig flóknari veruleika, en virðing Alþingis á niðurleið eftir því sem þingið verður sjálfvirkari afgreiðslustofnun fyrir tilskipanir og duttlunga þaulsætinna valda- matadora. Samt bendir þó allt til að alþingismönnum muni takast að halda launum sínum og eftirlauna- réttindum óskertum þótt ekki sé lengur til þess ætlast að þeir hugsi sjálfstætt. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.