Fréttablaðið - 15.01.2005, Síða 8
1Hvað heitir forstjóri Vinnumálastofn-unar?
2Hvað hefur Landsvirkjun tapað mikluá fjarskiptarekstri?
3Hvað hækkar húshitunarkostnaðurmeð rafmagni mikið með nýjum raf-
orkulögum?
SVÖRIN ERU Á BLS. 38
VEISTU SVARIÐ?
8 15. janúar 2005 LAUGARDAGUR
Neyðarhjálp úr norðri:
Svamlað í söltum sjó
LANDSSÖFNUN Félagar í Sjósund-
félagi Íslands efna í dag til sjó-
sundsmaraþons en framtakið er
liður í landssöfnuninni Neyðar-
hjálp úr norðri.
Að sögn Benedikts Lafleur, for-
manns Sjósundfélagsins, ætla
sundmennirnir að skiptast á að
vera í sjónum í stutta stund í einu
þar sem sjávarhiti er afar lágur á
þessum árstíma, aðeins um tvær
gráður. Þrátt fyrir kuldann býst
hann við að hátt í þrjátíu manns
muni dýfa sér ofan í vatnið.
„Við erum náttúrlega að synda
til að leggja okkar af mörkum í
landssöfnuninni en við erum líka
að sýna fram á að það er hægt að
vinna með náttúruöflunum þótt
þau séu grimm eins og dæmin
sanna, það er hægt að ganga til
móts við þau við erfiðar aðstæður
og líka finna paradísina hér á
norðurhjara,“ segir Benedikt en
hann hefur stundað sjósund í hálft
annað ár og hefur aldrei verið
hraustari.
Kapparnir ætla að svamla um í
sjónum fram eftir degi og getur
fólk heitið á þá með því að hringja
í söfnunarsímann, 755 5000. ■
Andlegar þjáningar fólks geta verið
miklar á hamfarasvæðunum:
Brýnt að takast á
við sálræna áfallið
HELSINKI, AP „Við stöndum frammi
fyrir stöðu sem gerir mjög miklar
kröfur til okkar og ég er ekki viss
um að við ráðum við þær að svo
stöddu. En við gerum okkar besta,“
sagði Marc Danzon, svæðisstjóri
Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar
í Evrópu, um þau sálrænu áföll
sem fólk í ríkjunum þar sem flóð-
bylgjan gekk yfir varð fyrir.
Heilbrigðisráðherrar aðildar-
ríkja Evrópusambandsins lýstu í
gær miklum áhyggjum af því
hvernig sálarheill íbúa flóðasvæð-
anna yrði tryggð, einkum þó barna.
Þetta var niðurstaðan af fundi
þeirra með fulltrúum Alþjóða heil-
brigðisstofnunarinnar í Helsinki,
höfuðborg Finnlands. Ráðherrarn-
ir sendu frá sér aðgerðaáætlun um
hvernig veita ætti fólki á hamfara-
svæðunum sálræna aðstoð.
„Mikilvægast er að takast á við
áfallið sem börnin hafa orðið
fyrir,“ sagði Marc Danzon og kvað
það ekki hafa gerst frá lokum seinni
heimsstyrjaldar að jafnmargir
hefðu orðið fyrir svo miklu áfalli. ■
Neyðarhjálp úr
norðri nær hámarki
Landssöfnun vegna hamfaranna í Asíu hófst í vikunni en nær hámarki í dag.
Vonast er til að landsmenn opni pyngjur sínar og veski og láti fé af hendi rakna.
LANDSSÖFNUN Landssöfnunin vegna
hamfaranna í Asíu, Neyðarhjálp úr
norðri, nær hápunkti í dag. Söfn-
unin er ein sú umfangsmesta sem
ráðist hefur verið í hér á landi en að
henni standa fjölmörg hjálparsam-
tök auk fjölmiðla, félagasamtaka,
fyrirtækja og almennings.
Söfnunni var formlega ýtt úr vör
á þriðjudaginn og hefur hún staðið
yfir undanfarna daga en í dag nær
hún hins vegar hámarki. Þrjár sjón-
varpsstöðvar, þrjár verslunarmið-
stöðvar, þrjú dagblöð og níu út-
varpsstöðvar auk listamanna, fyrir-
tækja, félagasamtaka og almenn-
ings munu leggjast á árarnar og
safna sem mest þau mega.
Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verkefn-
isstjóri, segir að söfnunin hafi farið
vel af stað. „Allir hafa lagst á eitt,
sýnt samhug og verið tilbúnir að
leggja sitt af mörkum.“ Á hádegi í
gær höfðu þrjár milljónir safnast í
símasöfnunni.
Söfnunarfénu verður varið til
neyðaraðstoðar nú og uppbygg-
ingar á næstu árum á vegum fimm
mannúðarsamtaka: Barnaheilla,
Hjálparstarfs kirkjunnar, Rauða
kross Íslands, SOS barnaþorpa og
Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Þannig verður hægt að veita lækn-
isaðstoð og heilsugæslu á hamfara-
svæðunum, hjálpa fjölskyldum sem
misstu allt sitt itl að koma undir sig
fótunum á ný og treysta framtíð
barna sem misst hafa foreldra sína.
Algengt er að framlag fólks sé á
bilinu 1000-5000 krónur en fyrir
þær upphæðir má gera ýmislegt. Til
dæmis duga þúsund krónur fyrir
fimm ullarteppum eða fimmtíu
kertapökkum, fyrir þrjú þúsund
krónur má bólusetja sextíu börn
gegn mislingum og kaupa má sjö
kassa af næringarríku kexi fyrir
fimm þúsund krónur.
sveinng@frettabladid.is
Sjónvarpssafnanir:
Safnað víða
um heim
SAFNANIR, AP Belgar luku í gær
þriggja vikna söfnunarátaki til
hjálpar þeim sem eiga um sárt að
binda eftir hamfarirnar í Asíu og
á austurströnd Afríku á annan dag
jóla. Alls safnaðist á þriðja
milljarð króna.
Mikil fjársöfnun var haldin í
kanadísku sjónvarpi á fimmtu-
dagskvöld þar sem margar stjörn-
ur lögðu hönd á plóg.
Í kvöld verður svo haldin mikil
fjársöfnun í bandarísku sjónvarpi
og hefur hver stórstjarnan á fæt-
ur annarri tilkynnt um það undan-
farna daga að hún taki þátt í út-
sendingunni.■
STUÐNINGUR Í VERKI
Innheimta ekki æfingagjald Knatt-
spyrnufélag Siglufjarðar innheimtir ekki
æfingagjöld fyrir yngri flokka á vorönn á
þessu ári heldur hvetur félagið í staðinn
foreldra barnanna sem hjá því æfa til að
láta duglega af hendi rakna í söfnunar-
síma Rauða krossins.
Stórsveit treður upp Stórsveit lista-
manna treður upp í Smáralind og Kringl-
unni í dag, eins og í gær til stuðnings
Neyðarhjálpar úr norðri. Tenórarnir þrír;
Jóhann Friðgeirsson, Snorri Wiium og
Þorgeir Andrésson syngja við undirleik
Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur. Diddú,
Bjössi bolla o.fl. skemmta gestum, auk
þess sem kór Kársnesskóla flytur frum-
samið lag Kristjáns Hreinssonar, skálds í
Skerjafirði, sem samið er vegna hörm-
unganna í Asíu.
Skemmtun á Glerártorgi Á Akureyri
skemmta á Glerártorgi Óskar Pétursson
með einsöng og Helgi Þórsson kveður
rímur. Börn úr Tónlistarskóla Akureyrar og
Tónlistarskóla Dalvíkur syngja og til
stendur að halda uppboð í dag.
Sjálfboðaliðar með bauka Rauði kross-
inn hefur mannað vaktir sjálfboðaliða
sem ganga um með söfnunarbauka í
Kringlunni í Reykjavík, Smáralind í Kópa-
vogi og Glerártorgi en gengið verður um
þar og safnað í bauka.
Hjúkrunarfræðingar hjálpa Stjórn Félags
íslenskra hjúkrunarfræðinga ákvað síð-
asta mánudag að veita einni milljón
króna til hjálparstarfs Rauða krossins
vegna hamfaranna í Suðaustur-Asíu. Þá
hvetur félagið önnur fag- og stéttarfélög
til að láta fé af hendi rakna.
Grundfirðingar góðir Í Grundarfirði söfn-
uðust í vikulokin rúmar 520 þúsund krón-
ur þegar gengið var í hús, auk þess sem
félagasamtök og fyrirtæki lögðu átakinu
lið. Í bænum búa rúmlega 700 íbúar.
Fyrirtæki og félagasamtök Ferðaskrif-
stofan Sumarferðir gaf 500 þúsund krón-
ur til söfnunarinnar og skorar á aðrar
ferðaskrifstofur að gera slíkt hið sama. Þá
hafa ýmis fyrirtæki og félagasamtök lagt
átakinu lið. Norðlenska ehf. gaf til dæmis
100 þúsund krónur og Kiwanishreyfingin
á Íslandi gaf 700 þúsund.
Bæjarfélög taka þátt Bæjarstjórn Seyðis-
fjarðar gefur 100 þúsund krónur til söfn-
unar Rauða krossins og skorar á aðrar
bæjarstjórnir að taka einnig þátt. Sveitar-
félagið Fjarðabyggð hefur gefið 200
þúsund krónur, Sveitarfélagið Ölfus 100
þúsund krónur, Ísafjarðarbær 250 þúsund
krónur og Húsavík 250 þúsund krónur.
Leikhúsin eru með Leikhópurinn Sokka-
bandið ætlar að halda styrktarsýningu á
leikritinu „Faðir vor“ eftir Hlín Agnarsdótt-
ur 20. janúar næstkomandi. Þá gaf kvik-
myndahúsið Regnboginn andvirði af sölu
inn á nýju Stuðmannamyndarinnar „Í takt
við tímann“ í gærkvöld. Þá var gefið and-
virði aukasýningar á Hárinu um síðustu
helgi, en leikhópurinn skoraði á Borgar-
leikhúsið að fara sömu leið. Þar á bæ var
ákveðið að gefa innkomuna á leikritið
„Héra Hérason“ í gærkvöld.
Safnað með Súmötrukaffi Kaffitár gefur
andvirði af sölu kaffis frá Súmötru til
söfnunarinnar, en að auki ætlar starfsfólk
fyrirtækisins að gefa alla sína vinnu þá
daga sem söfnunin stendur.
Styrktartónleikar á Akranesi Í gærkvöld
voru á Akranesi haldnir styrktartónleikar
með hljómsveitum úr Fjölbrautaskóla
Akraness. Þar tróð upp fjöldinn allur af
ungu fólki.
Framlag Símans og Landsbankans Sím-
inn leggur Rauða krossinum til símaver
og númer í söfnunina, auk þess sem
starfsmenn fyrirtækisins söfnuðu fé. Þá er
Landsbankinn fjárvörsluaðili söfnunarinn-
ar og sér um talningu og slíkt. Svo hafa
Íslenska auglýsingastofan og Nonni og
Manni útbúið auglýsingar fyrir söfnunina.
■ HAMFARIRNAR
NÍU MÆÐUR DRENGS Níu konur
hafa gert tilkall til ungs barns sem
var flutt á sjúkrahúsið Kalmunai á
Srí Lanka daginn sem flóðbylgjan
skall yfir. Ekki er vitað um upp-
runa barnsins og því erfitt að
ákvarða hver sé raunveruleg móð-
ir barnsins. Konurnar hafa rifist
harkalega innbyrðis og ein þeirra
hótað að fremja sjálfsmorð fái hún
barnið ekki.
RÁÐHERRAR TIL TAÍLANDS
For-sætisráðherrar Finnlands,
Noregs og Svíþjóðar, Matti Van-
hanen, Kjell Magne Bondevik og
Göran Persson, koma til Taílands á
morgun. Þeir ætla að þakka fyrir
þá hjálp sem landar þeirra fengu
eftir flóðbylgjuna og leita leiða til
að fá upplýsingar um afdrif 2.000
landa sinna sem er saknað.
ÓHÆTT AÐ BORÐA FISK Ótti
margra íbúa landanna sem urðu
flóðbylgjunni að bráð hefur orðið
til þess að Matvælastofnun Sam-
einuðu þjóðanna sá sig tilknúna til
að lýsa því yfir að óhætt væri að
borða fisk. Orðrómur hfur gengið
um að hættulegt sé að borða fisk
þar sem þeir kunni að hafa nærst
á líkum fólks sem lést í flóðbylgj-
unni.
VILJA VARANLEGAN FRIÐ „Við höf-
um engan áhuga á vopnahléi. Við
viljum varanlegan frið og vinnum
að því,“ sagði Jusuf Kalla, vara-
forseti Indónesíu, þegar hann
hafnaði boði uppreisnarmanna í
Aceh um vopnahlé í kjölfar flóð-
bylgjunnar á annan í jólum.
Ákve›i› hefur veri› a› vi›hafa allsherjar-
atkvæ›agrei›slu um kjör stjórnar og
trúna›arrá›s Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur fyrir ári› 2005.
Frambo›slistum skal skila á skrifstofu
félagsins, Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7,
1. hæ›, eigi sí›ar en kl. 12:00, mánudaginn
31. janúar 2005.
Kjörstjórnin
SAFNAÐ FYRIR BÁGSTADDA
Sjálfboðaliðar verða á ferli í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi og safna fé en einnig munu
skemmtikraftar bregða á leik. Fyrir þrjú þúsund krónur má bólusetja sextíu börn gegn mislingum.
BENEDIKT LAFLEUR ÁSAMT
ÓÞEKKTUM SUNDKAPPA
Félagar í Sjósundfélagi Íslands hittust á æf-
ingu í gær en þeir ætla að synda í tveggja
gráðu heitum sjó til að safna fé.
Á BARNASPÍTALA Á SRÍ LANKA
Háskólanum Mulliyawalai Vidyananada á Srí Lanka hefur verið breytt í flóttamannabúðir
og bráðabirgðaspítala eftir að flóðbylgjan gekk yfir.