Fréttablaðið - 15.01.2005, Síða 11
Enda þótt enn sé langt til næstu
borgarstjórnarkosninga er þegar
farið að ræða framtíð Reykjavík-
urlistans og raddir heyrast um að
tími sé kominn til þess að leggja
hann niður. Þessar raddir heyrast
einkum úr Framsóknarflokknum
en þar hafa alltaf verið einhverj-
ir efasemdarmenn um R-listann.
T.d. hefur formaður Framsóknar-
flokksins, Halldór Ásgrímsson,
aldrei verið neitt hrifinn af R-
listanum.
Ég tel, að Reykjavíkurlistinn
eigi að halda áfram. R-listinn
hefur í stórum dráttum staðið sig
vel og Reykvíkingar hafa verið
ánægðir með listann eins og sést
best á því, að listinn hefur sigrað
í þrennum borgarstjórnarkosn-
ingum. Nýr borgarstjóri hefur
nýlega tekið við embætti, Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, frá
Samfylkingunni. Hún hefur farið
vel af stað og ef hún stendur sig
vel áfram í embætti mun það
styrkja R-listann í sessi og auka
líkurnar á því, að R-listinn bjóði
fram áfram í næstu kosningum.
Framsóknarmönnum gremst
hve fylgi Framsóknarflokksins í
Reykjavík er lítið en samkvæmt
skoðanakönnunum er það aðeins
um 5%. Gestur Gestsson og fleiri
framsóknarmenn vilja kenna
Alfreð Þorsteinssyni og öðrum
forustumönnum Framsóknar í
borgarstjórn um. En Kristinn
Snæland, sem var dyggur stuðn-
ingsmaður Framsóknar til
skamms tíma, segir að sökin liggi
hjá formanni Framsóknarflokks-
ins, Halldóri Ásgrímssyni. Hann
skrifar grein um mál þetta í
Fréttablaðið og gagnrýnir for-
mann Framsóknar fyrir stefnuna
í málefnum aldraðra og öryrkja
og fyrir stefnuna í Íraksmálinu.
Ég tel, að sökin á fylgisleysi
Framsóknar í Reykjavík liggi
ekki hjá borgarfulltrúunum
Alfreð og Önnu. Þeir hafa staðið
sig ágætlega. Alfreð hefur staðið
sig nokkuð vel. Hann hefur fylgt
þeirri stefnu, að Reykjavík eigi
að stuðla að aukinni atvinnu og
framkvæmdum í Reykjavík og
nágrenni og hefur hann beitt sér
fyrir því innan Orkuveitu
Reykjavíkur að Orkuveitan réð-
ist í umfangsmikla atvinnuupp-
byggingu með orkuframkvæmd-
um til stóriðju. Hann hefur lagst
gegn einkavæðingu Orkuveitunn-
ar. Þessi stefna er í anda jafnað-
armanna. Ég tel að vísu að óþarfi
hafi verið að byggja svo stórt hús
fyrir Orkuveituna og gert var en
allur R-listinn ber ábyrgð á því.
Auðvitað kemur að því ein-
hvern tímann, að R-listinn leysist
upp og flokkarnir, sem að honum
standa, bjóði fram sjálfstætt
hver fyrir sig. En sá tími er ekki
kominn. Rétt er einnig að hafa í
huga að þegar það gerist er mikil
hætta á því að Sjálfstæðisflokk-
urinn endurheimti meirihlutann í
borgarstjórn. Þegar stuðnings-
menn R-listans taka afstöðu til
þess hvort R-listinn eigi að halda
áfram eða ekki þurfa þeir að hafa
þetta atriði í huga. Vilja þeir
færa Sjálfstæðisflokknum völdin
á ný í Reykjavík. Ef þeir vilja það
ekki, eiga þeir að standa með
Reykjavíkurlistanum áfram í
næstu kosningum. ■
R-listinn verði áfram
11LAUGARDAGUR 15. janúar 2005
Skattalækkun R-listans
R-listinn hefur hætt við að hækka skatta!
Í kjölfar þess að Sjálfstæðismenn á Sel-
tjarnarnesi kenndu R-listanum stærð-
fræði hefur borgarstjóri R-listans dregið
boðaða hækkun á fasteignagjöldum til
baka. Ber þá ef til vill að túlka þetta sem
skattalækkun hjá R-listanum? Hækka
skatta....hætta við að hækka
skatta...=...lækka skatta?
Davíð Guðjónsson á Deiglan.com
Misskiptur auður
Sú tæknibylting sem gert hefur hnatt-
væðingu heimsins mögulega hefur til
þessa einkum nýst auðugum ríkjum og
stórfyrirtækjum. Upplýsingahraðbraut á
milli markaða heimsins gengur sleitu-
laust. Á hinn bóginn hefur lítið verið gert
til að skapa jafn hraðvirka upplýsinga-
veitu innan þróunarlanda, sem m.a. gæti
miðlað viðvörunum um náttúruhamfarir.
Þar hafa margir aldrei átt símtal, hvað þá
verið tengdir við margmiðlunarnet
heimsins.
Sverrir Jakobsson á Múrinn.is
Báknið skýtur framhjá
Þegar rætt er um að Báknið megi ekki
vaxa og minnka eigi umsvif Ríkisins er
það ekki eingöngu til þess að spara held-
ur líka til að bæta þjónustuna sem stofn-
anirnar veita í dag. Það er löngu ljóst að
þjónusta í ríkisreknu fyrirkomulagi er iðu-
lega á skjön við þarfir markaðarins en
einstaklingurinn er í betri tengslum við
viðskiptavini sína og býr því við meira að-
hald. Þar með veitir hann betri þjónustu
og býr til verðmætari söluvöru. Báknið
hittir aldrei beint í mark.
Örvar Marteinsson á sus.is
Trúverðugleiki og traust
Sú staða sem nú er uppi á fjölmiðlamark-
aðnum leggur að mínu mati ríkar siðferð-
islegar skyldur á herðar forsvarsmanna
bæði Baugs og Fréttar/Íslenska útvarps-
félagsins um að koma hreint fram og
eyða öllum vafamálum um leið og þau
koma upp á yfirborðið.
Trúverðugleiki og traust almennings er
undir og því mikið í húfi fyrir alla sem hlut
eiga að máli.
Ég vona að Jóhannes í Bónus eða einhver
annar forsvarsmaður Baugs mæti í Kast-
ljósið í kvöld og skýri aðkomu Baugs að
þessum bræðravígum á Útvarpi Sögu.
Andrés Jónsson á politik.is
Afrek Valgerðar
Ef hægt er að tala um afrek í sömu setn-
ingu og rætt er um feril Valgerðar Sverris-
dóttur þá væri það helst í sambandi við
Kárahnjúkavirkjun. Við andstæðingar
virkjunarinnar verðum að viðurkenna að
það er töluvert afrek að ná fram sam-
þykki og framkvæmdaleyfi fyrir jafn brjál-
að verkefni og þetta. Vissulega þarf ég að
fara varlega svo ég sé ekki að hafa „heið-
urinn“ af fólki eins og Halldóri Ásgríms-
syni, Davíð Oddsyni, Finni Ingólfssyni,
Friðriki Sóphussyni, Sigurði Arnalds og Siv
Friðleifsdóttur.
Jóhann Hjalti Þorsteinsson á sellan.is
Spennandi kostur
Í stað þess að kaupa Zeppelin-loftfar, eða
bora jarðgöng til Vestmannaeyja er miklu
gáfulegra að athuga hagkvæmni þess að
útbúa flotgöng með segulhraðlest milli
lands og eyja. Athuga þarf þetta.
Ari Karlsson á Deiglan.com
Orka til að takast á við hvað sem er
Vörutegund
Weetabix
Cheerios
Corn Flakes
Havrefras
Fitness
Special K
Orka Fita Sykur TrefjarHeildar-
einkunn (kcal) (g/100 g) (g/100 g) (g/100 g)
4,7 343 3 5 7
4,1 368 6 5 6
3,3 381 1 8 2
3,0 359 7 12 7
2,6 362 1 17 4
2,3 381 1 16 2
Gæ›akönnun Neytendasamtakanna á morgunkorni
Neytendabla›i› 2.tbl., júní 2003
Weetabix fær bestu einkunn!
BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON
FYRRVERANDI BORGARFULLTRÚI
UMRÆÐAN
FRAMTÍÐ
REYKJAVÍKURLISTANS
AF NETINU