Fréttablaðið - 15.02.2005, Page 2

Fréttablaðið - 15.02.2005, Page 2
2 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR FLUTNINGASKIP Skráning kaupskipa á íslenskri skipaskrá hefur verið tekin til nánari skoðunar stjórn- valda. Með því á að skoða hvort hægt sé að gera kaupskipum kleift að sigla undir íslenskum fána. Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðu- neytisstjóri samgönguráðuneytis, segir nefnd sem starfar á vegum samgöngu- og fjármálaráðuneyt- anna og Siglingamálastofnunar hafa skilað tveimur tillögum á borð beggja ráðherranna: „Önnur var að aðhafast ekkert vegna skráninga íslenskra flutn- ingaskipa erlendis. Hin var að setja á fót alþjóðlega skipaskrá. Sú leið verður nú skoðuð nánar, án skuld- bindinga.“ Sex íslenskar áhafnir eru á skip- um Eimskips sem eru í millilanda- siglingum til og frá landinu. Tvær íslenskar áhafnir eru á skipum Samskipa en báðar skráðar í Fær- eyjum. Engir íslenskir sjómenn eru á skipum Atlantsskipa sem leigir skipin erlendis með áhöfn. Öll skip flutningafyrirtækjanna eru skráð á erlendri grundu. - gag Að kosningum loknum: Vélað um völdin í Írak ÍRAK, AP Miklar þreifingar fara nú fram í Írak um samsetningu þing- meirihluta en endanleg úrslit kosn- inganna urðu ljós í fyrradag. Sam- einuðum flokki sjía mistókst að ná hreinum meirihluta eins og honum hafði verið spáð og því verður hann að mynda bandalag með öðr- um flokkum á stjórnlagaþinginu sem senn tekur til starfa. Þingið útnefnir forseta og varaforseta landsins, sem aftur skipa for- sætisráðherra. Líklegast er talið að sjíar myndi meirihluta með Kúrdum, sem fengu fengu fjórðung atkvæða í kosningunum. Kúrdinn Jalal Tala- bani yrði þá forseti en sennilega tekur annað hvort Ibrahim Jaafari eða Ahmed Chalabi við forsætis- ráðherraembættinu. Jaafari hefur gegnt varaforsetaembættinu í bráðabirgðastjórninni en Chalabi var eftirlæti Bandaríkjamanna þar til hann féll í tímabundna ónáð í fyrra. Hann er illa þokkaður af íra- skri alþýðu og því eru möguleikar Jaafaris taldir meiri. Uppreisnarmenn eyðilögðu olíuleiðslur nálægt Kirkuk í fyrri- nótt og róstur voru í Bagdad, þar sem tveir lögreglumenn voru myrtir. ■ Stríðinu er lokið Eftir vel heppnaðan fund Abbas, leiðtoga Palestínumanna, og Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, ríkir bjartsýni um að friður sé í sjónmáli. Í viðtali um helgina sagði Abbas að stríðinu við Ísrael væri lokið. PALESTÍNA Bjartsýni ríkir nú fyrir botni Miðjarðarhafs um að friður sé loks í sjónmáli eftir vel heppn- aðan fund Mahmoud Abbas, for- seta palestínsku heimastjórnar- innar, og Ariel Sharon, forsætis- ráðherra Ísraels, í síðustu viku. Ýmis erfið mál eru þó óleyst. Mahmoud Abbas var ómyrkur í máli í viðtali við dagblaðið The New York Times um helgina um stöðu og horfur í samskiptum Ísraelsmanna og Palestínumanna en þeir Ariel Sharon hittust í Sharm el Sheikh í Egyptalandi í liðinni viku. Abbas sagði að stríð- inu við Ísraelsmenn væri lokið og gjörbreyting orðin á afstöðu Shar- ons í garð Palestínumanna. Þetta mætti sjá af áherslu hans á brott- flutning landnema frá Gaza og Vesturbakkanum þrátt fyrir mikla andstöðu harðlínumanna. Sharon hefur fyrirskipað aðgerðir gegn ísraelskum öfgamönnum eftir að ráðherrum í ríkisstjórn hans var hótað vegna þessa. Sharon hefur boðað að frum- varp verði lagt fram í næstu viku á ísraelska þinginu um að land- nemabyggðir á Gaza verði rýmd- ar. Palestínumenn munu á næstu vikum taka við stjórn Jeríkó og fjögurra annarra borga á Vesturbakkanum. Abbas kvaðst fagna sam- starfsvilja Hamas og Jihad- samtakanna. Algert forgangs- mál að hans mati er að palest- ínskir fangar verði látnir lausir úr ísraelskum fangelsum. 8.000 Palestínumenn eru í haldi Ísraels- manna og segir Abbas að sakar- uppgjöf þeirra sé mælikvarði á friðarvilja Ísraelsmanna. Á sunnudaginn lýstu ísraelsk stjórn- völd því yfir að 500 fangar yrðu senn látnir lausir. Enn á þó eftir að ræða erfið mál á borð við hugsanlega skipt- ingu Jerúsalemborg- ar, rétt palest- ínskra flótta- manna til að snúa aftur til heim- kynna sinna og framtíðarlanda- mæli Palestínu en um öll þessi mál hefur ríkt verulegur ágrein- ingur. Samkvæmt svonefndum Vegvísi til friðar er gert ráð fyrir að Palestína verði sjálfstætt ríki áður en landamæri verða endan- lega ákveðin. Þessu segist Abbas hins vegar andvígur, skilgreina verði landamærin áður en sjálfstæði verði lýst yfir. sveinng@frettabladid.is Valdís Óskarsdóttir: Kom þægi- lega á óvart VERÐLAUN „Satt best að segja átti ég ekki von á að hljóta þessi verðlaun með tilliti til þess hverjir aðrir voru tilnefndir í mínum flokki,“ segir Valdís Óskarsdóttir, en hún hlaut hin virtu BAFTA-verðlaun bresku kvikmynda- og sjónvarpsaka- demíunnar fyrir klippivinnu sína í kvikmyndinni Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Meðal þeirra sem einnig voru tilnefnd ásamt Valdísi var Thelma Schoonmaker, sem unn- ið hefur lengi með Martin Scor- sese og er enn fremur tilnefnd til Óskarsverðlauna en sú hátíð fer fram síðar í þessum mánuði. „Mig grunaði aldrei að ég ætti möguleika gegn henni enda er ég ekki tilnefnd fyrir vestan haf.“ ■ FATAHAF Drengur leikur sér í fötum sem hafa verið send. Vafasöm hjálpargögn: Háir hælar og Viagra INDÓNESÍA, AP Vesturlandabúar hafa verið duglegir að safna hjálpargögnum fyrir fórnarlömb flóðbylgjunnar í Indlandshafi. Þó hafa gjafirnar komið að misjöfnu gagni og í raun ótrúlegustu hlutir sem hafa verið sendir. Á meðal þess sem komið hefur upp úr kössunum er háhælaðir skór, matvæli sem eru komin fram yfir síðasta söludag, Viagra- töflur, vetrartjöld og svo mætti lengi telja. Hjálparstarfsmenn eru ekkert sérlega hrifnir af þessu því það tekur dýrmætan tíma að flokka og henda. ■ SPURNING DAGSINS Fjölnir, eru nafnar þínir úr Grafarvogi nafnsins verðugir? „Já, þeir eru nafnsins verðugir.“ Fjölnir Þorgeirsson er margfaldur Íslandsmeistari í hinum og þessum íþróttagreinum en á sunnu- dag burstaði Njarðvík lið Fjölnis úr Grafarvogi í bikarúrslitaleiknum í körfuknattleik. Kristall plús: Leyfi með skorðum MATVÆLI Hinn vítamínbætti Kristall Plús fær leyfi gegn því að drykkur- inn verði merktur sem óæskilegur börnum yngri en sjö ára. Elín Guðmundsdóttir, forstöðu- maður matvælasviðs Umhverfis- stofnunar, segir tillit hafa verið tekið til umsagnar Lýðheilsustöðv- ar um að börn neyti of mikils fólasíns drekki þau Kristal plús. Andri Þór Guðmundsson, for- stjóri Ölgerðarinnar, segist sáttur við leyfið en ekki skorðurnar sem eru settar: „Við munum kanna lagalegar forsendur fyrir þeim þar sem enginn hefur sýnt fram á skað- leg áhrif ofneyslu fólasíns.“ - gag MAHMOUD ABBAS Þess sjötugi leiðtogi sagðist í viðtalinu ekki ætla að sitja lengur á forsetastóli en eitt kjörtímabil, það er fimm ár. ARNARFELL Samgönguráðherra var viðstaddur afhendingu nýs skips Samskipa í Hamborg á dögunum. Skipið er skráð í Færeyjum auk íslenskrar áhafnar þess. Í skoðun er hvort hægt sé að gera flutningafyrirtækjum kleift að skrá skipin hér heima. Lúðvík Bergvinsson: Útilokar ekkert STJÓRNMÁL Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingar úr Suð- urkjördæmi, útilokar ekki að hann bjóði sig fram í embætti varaformanns flokksins. Vikublaðið Fréttir í Vest- mannaeyjum birti fyrir skemmstu netkönnun sem sýndi að 70 prósent svarenda vildu að Lúðvík byði sig fram. Meira en þúsund manns tók þátt. Lúðvík segir að í raun sé ekki enn tímabært að velta fyrir sér hverjir gefi kost á sér. Hann segir að það mál verði skoðað þegar niðurstaða úr formanns- kjöri liggi fyrir. „Þá munu menn athuga hvað komi sér best fyrir flokkinn. Þetta mál er því ekki á dagskrá þótt engum dyrum hafi verið lokað,“ segir hann. - þk Stjórnvöld íhuga að setja á stofn alþjóðlega skipaskrá: Íslenskur fáni gæti prýtt flutningaskipin AHMED CHALABI Chalabi rennir hýru auga til for- sætisráðherrastólsins en senni- lega mun Sistani erkiklerkur hafa síðasta orðið um það.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.