Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 62,35 62,65 117,52 118,10 80,83 81,29 10,86 10,92 9,61 9,66 8,88 8,83 0,59 0,60 94,42 94,98 GENGI GJALDMIÐLA 14.02.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 111,23 +0,20% 4 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Hundrað prósenta lán til íbúðarkaupa: Farið að bera á vanskilum FÉLAGSMÁL „Það eru farin að ber- ast inn á borð til okkar nokkur dæmi um fólk sem hefur fengið hundrað prósenta lán og nær ekki að standa í skilum,“ segir Ásta S. Helgadóttir, forstöðu- maður Ráðgjafarstofu um fjár- mál heimilanna. Þau auknu lán sem almenningi bjóðast til hús- næðiskaupa nýtast illa þeim sem minnst hafa milli handanna enda húsnæðisverð víða um land margfaldast og engin endir á hækkununum í sjónmáli. Sú stofnun sem flestir leita til eftir að hafa lent í alvarlegum greiðsluerfiðleikum á einhvern hátt er Ráðgjafarstofa heimil- anna, þar sem reynt er eftir megni að aðstoða viðkomandi. Ásta segir að þrátt fyrir tilkomu hundrað prósent lánanna, sem voru upphaflega ætluð þeim sem áttu erfitt með að brúa bilið þeg- ar aðeins voru lánað 70 prósent af kaupverði íbúðar, sé ljóst að enn sé fólk að leita sér aðstoðar. „Það er nú einu sinni svo að þessi lán út af fyrir sig breyta litlu fyrir þann sem ekkert á. Á sama tíma er enn fremur íbúðaverð að hækka til mikilla muna svo að þau þægindi sem fylgja áttu þessum auðveldu lánum þýða þyngri greiðslubyrði vegna mun hærra verðs.“ ■ Lagðist í jörðina og byrjaði að tárast Tveir ellefu ára gamlir drengir björguðu á laugardaginn lífi vinar síns sem hafði fengið gat á lunga. Þeir óku honum í búðarkerru og héldu á honum í strætó. LÍFSBJÖRG Tveir ellefu ára drengir, Alexander Theódórsson og Arnar Þór Stefánsson, unnu þrekvirki þegar þeir björguðu lífi Róberts Heiðars Halldórssonar, tíu ára gamals vinar síns, á laugardag- inn. Drengirnir voru í Kringlunni síðdegis þegar Róbert fann fyrir verk í brjóstinu. „Ég var nýbúinn að kaupa ís handa mér og vini mínum þegar ég fann fyrir sársauka,“ segir Róbert. „Ég sagði við strákana að ég þyrfti að fara heim. Við fórum þá upp í strætóskýli en þegar strætó kom vildi bílstjór- inn ekki hleypa okkur inn af því að við vorum með lítinn peking- hund með okkur. Ég vildi ekki segja strax að ég fyndi fyrir sársauka því ég vildi ekki að strákarnir myndu panikka.“ Drengirnir fóru þá aftur niður í Kringlu því móðir Alexanders vinnur þar. Hún var hins vegar farin heim þegar þeir komu og því héldu þeir aftur af stað upp í strætóskýli. Drengirnir keyrðu Róbert í búðarkerru og héldu síðan á honum. Róbert að það hafi verið orðið erfitt að anda þegar hér var komið sögu. „Mér var orðið mjög illt. Ég lagðist í jörðina og byrjaði að tárast.“ Alexander og Arnar Þór segjast fyrst hafa haldið að Róbert hafi verið að grínast en síðan hafi þeir séð að hann var mjög veikur. „Mér brá alveg geðveikt,“ segir Alexander. „Þegar ég sá hann liggja hélt ég fyrst að þetta væri hjartað eða lungun.“ Strætó kom fljótlega og í þetta skiptið var þeim hleypt inn. Strætó stoppar beint fyrir fram- an heimili Róberts í Bústaða- hverfinu og héldu drengirnir á honum þangað. Farið var með hann beint á sjúkrahús. Þar kom í ljós að Róbert hafði fengið gat á lunga. Að sögn læknis geta verstu tilfellin leitt til þess að lunga falli saman og það er lífs- hættulegt. „Ég er kominn heim núna og mér líður alveg ágætlega,“ segir Róbert. „Strákarnir voru mjög duglegir. Þeir hjálpuðu mér mikið.“ trausti@frettabladid.is Eiður Smári Guðjohnsen: Ölvaður við akstur ENGLAND Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyrnumaður með Chelsea og Íþróttamaður ársins 2004, var tek- inn ölvaður undir stýri aðfaranótt sunnudagsins eftir að hafa tekið þátt í gleðskap með öðrum leik- mönnum Chel- sea. Voru þeir að fagna góðu gengi liðsins en á laugardaginn lagði liðið Ever- ton á útivelli og skoraði Eiður Smári sigur- mark liðsins. Að sögn lög- reglu var akst- urslag Eiðs með þeim hætti að ástæða þótti til að stöðva bíl hans og láta hann blása. Í framhaldi af því var hann handtekinn og færður á lögreglustöð í suðurhluta London. Þar var tekin af honum blóðprufa áður en hann var látinn laus gegn tryggingu. ■ Lestarslys í Lyngby: Fimmtíu slösuðust DANMÖRK Flytja þurfti fimmtíu manns á sjúkrahús í Kaupmanna- höfn eftir að tvær lestir skullu saman á brautarstöðinni í Lyngby, úthverfi höfuðborgarinnar, um hádegisbilið í gær. Tveir eru al- varlega slasaðir, annar þeirra lestarstjóri annarrar lestarinnar. Ekki er ljóst hvernig slysið bar að en netútgáfa Berlingske Tidende hermir að önnur lestin hafi ekið á talsverðri ferð aftan á hina lestina, sem hafði staðnæmst við brautarstöðina. Nokkrar tafir urðu á umferð vegna slyssins en 23 sjúkrabílar fluttu hina slösuðu af vettvangi. ■ ÁNÆGÐIR VINIR Á GÓÐRI STUNDU Vinirnir þrír voru að fá sér snarl þegar ljósmyndari Fréttablaðsins kíkti í heimsókn. Frá vinstri: Alexander Theódórsson, Róbert Heiðar Halldórsson og Arnar Þór Stefánsson. Með þeim á myndinni er hundurinn Trítill. EIÐUR SMÁRI Látinn laus gegn tryggingu. Deilur um barn: Skorið úr um foreldra SRÍ LANKA, AP Nú liggur fyrir hverj- ir eru foreldrar þriggja mánaða gamals drengs sem lagður var inn á sjúkrahús eftir flóðbylgjuna á Ind- landshafi. Niðurstaða lífsýnatöku sýnir að hjón sem börðust hvað harðast fyrir því að fá drenginn eru raunverulegir foreldrar hans. Málið vakti mikla athygli á sín- um tíma því níu pör á Srí Lanka sögðu drenginn vera sinn. Fólkið hefur verið í óvissu um átta vikna skeið en nú er búið að eyða þeirri óvissu. Móðir drengsins segist hafa haldið á honum þegar flóðbylgjan skall á en týnt honum. Kraftaverk þykir að hann hafi lifað hamfarirn- ar af. ■ Alþýðusamband Íslands: Kanna hátt fasteignaverð HÚSNÆÐISMÁL „Okkur finnst eins og reyndar fleirum í þjóðfélaginu að eitthvað sé bogið við þessa eilífu þróun fasteignaverðs upp á við,“ segir Grétar Þorsteinsson, for- maður Alþýðusambands Íslands. Innan sambandsins hyggjast menn kanna hvað valdi og þá sérstaklega þátt þeirra nýju milliliða sem virð- ast komnir inn á fasteignamarkað- inn. „Við höfum furðað okkur á þess- ari stöðu, sem er úr takti við allt annað í samfélaginu, og ætlum okk- ur að kanna hvað hæft er í því að verktakar leita nú allt annað en til Íbúðalánasjóðs eins og áður fyrr.“ ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. BOGINN SPENNTUR Þrátt fyrir hundrað prósenta íbúðalánin þykir húsnæði orðið svo dýrt, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, að auðvelt aðgengi að lánum hefur lítið að segja. Ungt fólk: Þriðji hver fær vinnu REYKJAVÍKURBORG Búist er við að um þrjú þúsund sæki um eitt þús- und sumarstörf s t o f n a n a Reykjavíkur- borgar. Vinnumiðlun ungs fólks opn- ar fyrir mót- töku umsókna um sumarstörf í dag. Selma Árna- dóttir, forstöðu- maður Vinnu- miðlunar ungs fólks, segir sautján ára ungmenni eiga erfiðast upp- dráttar. Þau séu of gömul fyrir Vinnuskólann en mörg fyrirtæki ráði aðeins átján ára og eldri: „Það væri gott ef fleiri fyrirtæki á almennum markaði myndu taka við sér og ráða sautján ára til sín.“ - gag VIÐ UNDIRBÚNING Þeir sem eru fæddir 1988 eða fyrr geta sótt um sumarstörf hjá stofnunum Reykjavíkurborgar. Hægt er að sækja um störf frá 15. febr- úar til 30. apríl. Því fyrr sem fólk sækir um, því meiri líkur eru á vinnu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.