Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 6
6 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL Breyting á skipu- lagi sem tengist fyrirhugaðri stækkun á barna- og unglingageð- deildinni á Dalbraut (BUGL) hefur nú verið auglýst. Unnið hefur verið markvisst að undirbúningi þess að stækka BUGL og er gert ráð fyrir þremur byggingaráföngum. Þess er vænst að hægt verði að bjóða út fyrsta áfangann, göngudeildar- húsnæðið, seint á þessu ári og að hinir fylgi strax í kjölfarið. Eins og greint hefur verið frá í Fréttablaðinu býr deildin við afar þröngan og ófullnægjandi kost. Þjóðarátak stendur yfir um stækkun barna- og unglingageð- deildarinnar og hefur talsvert fé safnast í sjóð. Nefna má til dæmis stórgjöf Hringsins, söfnun Kiwanismanna og fé sem Lions- klúbburinn Fjörgyn safnaði með tvennum styrktartónleikum. Margir fleiri hafa lagt fram stórt og smátt til BUGL að undanförnu. Tryggðar hafa verið um 190 millj- ónir króna til byggingarinnar. Enn vantar samt mikið fé til þess að ljúka verkinu öllu sem áætlað er að kosti röskan hálfan milljarð króna með bílastæðum. ■ VATN Kópavogsbúar þurfa að borga um tvöfalt meira fyrir neysluvatn en Reykvíkingar. Vatnsgjöld eru reiknuð sem hluti af fasteignagjöldum sem skiptast upp í fasteignaskatt, sorpurðun, lóðarleigu, holræsa-, sorp- og vatnsgjald. Hjá íbúum Kópavogs er það 0,19 prósent af fasteignagjaldi. Orkuveita Reykjavíkur reiknar gjaldið á annan hátt og tekur fast gjald af hverri eign sem er 2.799 kr. auk 108 kr. á hvern fermetra. Vatns- gjald af 100 fermetra íbúð sem kostar fimmtán milljónir er sam- kvæmt útreikningum 28.500 kr. í Kópavogi en 13.599 kr. í Reykja- vík. Sama aðferð við útreikning- ana er viðhöfð í Reykjanesbæ og í Kópavogi og verðið til neytenda er það sama. ■ MS-sjúkdómurinn: Fyrsti fundur aðstandenda HEILBRIGÐISMÁL Rétt tæplega tíu manns greinast með MS-sjúkdóm- inn hér á landi á ári. Fyrsti fundur MS-félagsins sem eingöngu er fyrir aðstandendur verður í kvöld. Sverrir Bergmann taugasjúk- dómalæknir segir að á fundinum verði svarað spurningum ættingja sem þeir þori síður að nefna í ná- vist MS-sjúklingsins sjálfs. Sigurbjörg Ármannsdóttir, for- maður MS-félags Íslands, vonar einnig að fólk mæti sem hafi átt ættingja með sjúkdóminn. Hér áður hafi verið erfitt að fá skýr svör um sjúkdóminn og lítið um hann talað. - gag ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ■ SPÁNN Á að fella niður afnotagjöld RÚV? SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú unnið svart? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 13,9% 86,1% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN IÐJUÞJÁLFUN Iðjuþjálfunin á BUGL er á 15 fermetra gangi í kjallara. Inni af honum eru tvö lítil viðtalsherbergi. Enginn gluggi, engin loft- ræsting. Barna- og unglingageðdeildin; Stækkun kallar á annað skipulag Tölvunám fyrir eldri borgara Faxafen 10 • 108 Reykjavík • Sími: 544 2210 • www.tsk.is • skoli@tsk.is Grunnur 30 kennslustunda byrjendanámskeið. Engin undirstaða nauð- synleg, hæg yfirferð með þolinmóðum kennurum. Aldurs- takmark 60 ára og eldri. Á námskeiðinu er markmiðið að þátttakendur verði færir að nota tölvuna til að skrifa texta, setja hann snyrtilega upp og prenta, fara á internetið, taka á móti og senda tölvupóst. Þátttakendur læra að koma sér upp ókeypis tölvupóstfangi. Kennsla hefst 22. febrúar og lýkur 15. mars. Kennt er þriðjudaga og fimmtudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin. Framhald I 30 kennslustunda námskeið, hentar þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu eða hafa sambærilega undirstöðu. • Upprifjun • Æfingar í Word ritvinnslu • Leit og vinnsla á internetinu og meðferð tölvupósts. • Excel kynning Kennsla hefst 21. febrúar og lýkur 14. mars. Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 19.500,- Vegleg kennslubók innifalin. Framhald II 30 kennslustunda námskeið ætlað þeim sem lokið hafa fyrra framhaldsnámskeiðinu eða hafa sambærilegan grunn og vilja enn meiri þekkingu og þjálfun. Byrjað er á upprifjun og svo er haldið áfram og kafað dýpra með framhaldsæfingum í ritvinnslu, á netinu og tölvupóstinum ásamt Excel. Einnig er fjallað um stafrænar myndavélar og meðferð ljósmynda í heimilistölvunni. Ýmislegt fleira skv. óskum þátttakenda. Kennsla hefst 21. febrúar og lýkur 14. mars. Kennt er mánudaga og miðvikudaga kl 13 - 16. Verð kr. 17.000,- án kennslubókar. Flóðasvæðin í Asíu: 625 lík fundin ASÍA, AP Staðfest er að 625 erlend- ir ríkisborgarar voru á meðal þeirra ríflega 167 þúsund fórn- arlamba flóðbylgjunnar í Ind- landshafi sem hafa fundist látin. Enn er tuga þúsunda manna saknað, þar af meira en tvö þús- und erlendra ríkisborgara. Hundruð líka finnast á hverj- um degi, til að mynda fundust 528 lík í Aceh-héraði á Súmötru á sunnudaginn. ERLENDIR RÍKISBORGARAR Þjóðerni Látnir Saknað Svíar 97 460 Frakkar 67 29 Þjóðverjar 60 548 Bretar 54 194 Finnar 52 127 Norðmenn 39 45 Japan 25 68 Svisslendingar 23 134 Ástralir 23 18 Ítalir 21 53 VATNSSOPINN Umtalsvert dýrara er að nota kalt vatn í Kópavogi en í Reykjavík. Munur á vatnsgjaldi eftir búsetu: Dýrast í Kópavogi og Reykjanesbæ ÖKUMAÐUR LENDIR Í ÍSILAGÐRI LEIRUTJÖRN Ökumaður á Akur- eyri missti bíl sinn út í Leiru- tjörn á tíunda tímanum í gær- kvöld. Ætlaði ökumaðurinn sjálfur að ná bílnum upp úr tjörninni með aðstoð kranabíls. ELDUR Í BÍL Eldur kviknaði út frá rafmagni í bíl á Seyðisfirði í gærkvöld. Var slökkviliðið kall- að á staðinn og gekk vel að ráða niðurlögum eldsins. Bíllinn er mikið skemmdur. NEYÐARKALL FRÁ FARÞEGASKIPI Neyðarkall barst í gærmorgun frá farþegaskipi sem statt var norðaustur af Menorca-eyju á Spáni en um 700 manns voru um borð í skipinu. Héldu dráttarbát- ar þegar til aðstoðar en ekki var talin hætta á að skipið sykki þrátt fyrir að sjór hefði komist í vélar þess. LÖGREGLUMÁL „Ég hef það ágætt núna, það vill svo til að ég er búin að vera í fríi og hef getað verið heima eftir ránið,“ segir Ólöf Garð- arsdóttir, starfsmaður Leikbæjar í Mjóddinni, en hún var í vinnu þegar maður rændi verslunina um hábjartan dag á fimmtudaginn var. Fyrr um daginn rændi maðurinn bókabúð í Grafarvogi og hafði dag- ana áður rænt þrjá söluturna í við- bót, vopnaður ýmist loftriffli, öxi eða hníf. Hann var handtekinn eftir ránin á fimmtudag. Ólöf segist ekki hafa veitt manninum athygli í fyrstu því hann hafi snúið baki í sig. Þegar maðurinn sneri sér við sá hún að hann var með lambhúshettu á höfð- inu. „Fyrst hélt ég að þetta væri eitthvert grín, en svo sá ég glitta í hnífsskaftið og vissi að honum var alvara. Hann sagði strax að hann ætlaði ekki að meiða mig, hann væri bara örvæntingarfullur og kannski hef ég verið minna hrædd vegna þess en mér brá auðvitað nokkuð við þetta,“ segir Ólöf og bætir við að maðurinn hafi angað af víni. Ólöf segir að sér hafi geng- ið vel að vinna úr þessu og ekki þurft á sérfræðihjálp að halda. „Hann mundaði aldrei hnífinn, það hefði ábyggilega verið allt öðruvísi hefði hann gert það.“ „Þetta er í þriðja skipti sem við höfum verið rænd og auðvitað hefur þetta mikil áhrif á starfs- fólkið,“ segir kona sem á söluturn sem maðurinn reyndi að ræna. Hún vill ekki láta nafns síns getið. Hún segir að atburðurinn hafi lagst þungt á konuna sem var að vinna þegar ræninginn lét til skarar skríða „Hún svaf lítið nóttina eftir en er sem betur fer öll að koma til.“ Konan segir að við atburði sem þessa fái hún starfsfólkið til sín í kaffi og spjalli við það og kanni hvernig því líði. „Þau eru yfirleitt reið en bregðast samt misjafnlega við þessu og við reynum bara að taka hvert tilfelli fyrir sig.“ Hún segist heyra almennan vonleysis- tón í þeim sem hafa komið að máli við hana eftir ránstilraunina. „Fólk virðist líta svo á að svona sé þjóð- félagsástandið orðið og það sé hálf bjargarlaust. Maður þarf ekki ann- að en lesa blöðin til að sjá að fólki er ekki óhætt að fara út fyrir húss- ins dyr.“ bergsteinn@frettabladid.is Svaf ekki eftir ránið Starfsfólk í verslunum þar sem ræningi lét til skarar skríða í fyrri viku segist vera að jafna sig. Starfsmaður í söluturni átti erfitt með svefn í kjölfar ráns. Eigandinn segir fólk almennt svartsýnt á þjóðfélagsástandið. RÁNSSTAÐIRNIR Slóð ræningjans lá um Grafarholt, Grafarvog, Langholtsveg og Mjóddina. Þrjá staði reyndi hann að ræna um hábjartan dag og bar við örvæntingu við einn afgreiðslumann.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.