Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 10
DÚFUR HEFJA SIG TIL FLUGS
Þessar mæðgur fyrir framan Hanuman
Dhoka musterið í Katmandu í Nepal virt-
ust skemmta sér ágætlega þegar dúfurnar
hófu sig til flugs.
10 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Kolbrún Halldórsdóttir:
Kostun og auglýsingar
ALÞINGI Kolbrún Halldórsdóttir
alþingiskona hefur lagt fram
fyrirspurn til menntamálaráð-
herra á Alþingi um kostun dag-
skrárliða í útvarpi og sjónvarpi.
Kolbrún vill fá að vita hvernig
stjórnvöld fylgja því eftir að farið
sé að kostunarreglum laga, hve
stór hluti auglýsingatekna Ríkis-
útvarpsins fáist með kostun og
hvernig hlutfallið hafi þróast síð-
ustu tíu ár. Hún spyr líka hvort
ráðherra telji ástæðu til að endur-
skoða reglur um kostun.
„Mér hefur fundist vanta
greinarmun á því hvað er auglýs-
ing og hvað er kostun. Það er ekki
farið eftir laganna hljóðan. Nú-
orðið er enginn munur gerður á
því hvernig kostunaraðili er
kynntur og hvernig sama fyrir-
tæki auglýsir sig,“ segir Kolbrún.
„Mér finnst skipta máli að fólk
viti að það er að horfa á auglýs-
ingu. Samkvæmt lögum má bara
nefna það að viðkomandi hafi ver-
ið kostunaraðili í þætti eða dag-
skrárþætti. Hann má ekki vera
með auglýsingu um leið.“ - ghs
Öngþveiti
í Madríd
Loka þurfti götum kringum háhýsið sem brann til
kaldra kola í Madríd um helgina. Samgöngur löm-
uðust og fleiri þúsundir komust ekki til vinnu sinnar.
SPÁNN Um tíu þúsund manns í
Madríd á Spáni komust ekki til
vinnu sinnar í fjármálahverfi
borgarinnar í gær sökum hætt-
unnar af frekara hruni úr háhýs-
inu sem brann þar til kaldra kola
á laugardagskvöldið. Varð öng-
þveiti í borginni vegna þessa þar
sem almenningssamgöngur voru
takmarkaðar og um 600 þúsund
manns komust ekki leiðar sinnar í
gærmorgun.
Windsor-turninn, sem svo er
kallaður, var einn af tiltölulega
fáum háhýsum í höfuðborg Spán-
ar, alls 32 hæðir, og stóð í því sem
af borgarbúum er gjarnan kallað
fjármálahverfið þótt ekki sé um
eiginlegt slíkt hverfi að ræða eins
og þekkist í öðrum stórborgum í
Evrópu. Stóð byggingin við eina
helstu verslunarmiðstöð El Corte
Inglés í Madríd en margir Íslend-
ingar þekkja það vörumerki afar
vel.
Í gær hófst rannsókn á upptök-
um eldsins en flestir hallast að
því að rafmagnsbilun hafi valdið
eldinum. Þó eru aðrir möguleikar
ekki útilokaðir og hefur borgar-
stjóri Madrídar, Alberto Ruiz
Gallerdon, farið fram á ítarlega
rannsókn og skal öllu til kostað
enda um stóran vinnustað að
ræða. Enn verða rannsóknar-
menn að fara varlega því talin er
hætta á að burðarvirki hússins
falli saman og þá er ekki spurt að
leikslokum fyrir þá sem inni í
húsinu eru.
Þeir íbúar Madrídar sem vitni
urðu að ósköpunum óttuðust í
fyrstu að um skipulagða árás al-
Kaída hefði verið að ræða en fáir
hafa enn jafnað sig á þeim hörm-
ungum sem urðu í mars á síðasta
ári þegar rúmlega 200 manns lét-
ust í sprengjutilræðum á lestar-
stöðvum í borginni. Þess utan
hafa aðskilnaðarsamtök Baska
verið að færa sig upp á skaftið að
nýju eftir hlé en þau samtök hafa
reglulega í um 20 ár sprengt
sprengjur hér og þar í borginni,
oft með alvarlegum afleiðingum.
Engin ákvörðun hefur verið
tekin um hvort reyna eigi að
endurbyggja turninn aftur eða
brjóta það sem eftir stendur niður
og reisa nýtt hús frá grunni. - aöe
Bankareikningar:
250 þúsund
að meðaltali
ALÞINGI Heildarfjöldi reikninga ein-
staklinga í viðskiptabönkum og
sparisjóðum var 1,1 milljón og var
meðalinnstæðan tæpar 250 þúsund
krónur. Allt að 32 þúsund einstak-
lingar áttu 1.740 þúsund krónur eða
meira inni á reikningum sínum en
tæplega 581 þúsund einstaklingar
1,7 milljónir eða minna. Rétt er að
taka fram að sami einstaklingurinn
getur verið margtalinn, þ.e. hann
getur átt marga reikninga.
Þetta kom fram í svari iðnaðar-
og viðskiptaráðherra við fyrir-
spurn Jóhönnu Sigurðardóttur um
tryggingavernd innstæðureikn-
inga. - ghs
Einkabankaþjónusta | Private Banking
410 4000 | landsbanki.is
Landsbankinn heldur kynningarfund um fjárfestingu
í fasteignum erlendis á Hótel Sögu, fundarsal A,
miðvikudaginn 16. febrúar kl. 16 - 18.
Dagskrá:
• Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Einkabankaþjónustu, greinir í stuttu máli frá breytingum
á Einkabankaþjónustu Landsbankans.
• Þorvaldur Þorsteinsson, fjármálaráðgjafi, lýsir þjónustu
bankans á sviði fjárfestinga í fasteignum erlendis.
• Kristján G. Valdimarsson, forstöðumaður skattaráðgjafar,
gerir grein fyrir skattamálum sem tengjast fjárfestingum
af þessu tagi.
• Tim Watts, yfirmaður fjárfestinga í íbúðarhúsnæði hjá
Cordea Savills, fjallar um fasteignamarkaðinn í Englandi.
• Brynhildur Sverrisdóttir, sjálfstæður fjármálaráðgjafi,
segir frá reynslu sinni af fasteignakaupum í Luxemborg,
Frakklandi og Englandi.
Fundarstjóri er Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri.
Veitingar í boði.
Allir velkomnir
en vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síma 410 7140
eða á landsbanki.is
Fjármögnun fasteigna
erlendis
Kynningarfundur
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
C
A
L
26
44
8
0
2/
20
05
■ NORÐURLÖND
STÓRBRUNI Í WINDSOR-BYGGINGUNNI
Margir borgarbúar fengu fyrir hjartað þegar fyrstu myndir birtust af turninum alelda enda
minnti sjónin óneitanlega á atburðina í New York í september 2001.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
UNGVERJALAND, AP Írönsk stjórn-
völd eru ekki að þróa kjarnorku-
vopn, að sögn Kamel Kharrazi,
utanríkisráðherra Írans. Banda-
rískt stjórnvöld og Evrópusam-
bandið hafa haft miklar áhyggjur
af kjarnorkuáætlun Írana.
„Íran vill stuðla að kjarnorku-
vopnalausum heimi,“ sagði
Kharrazi þegar hann var í opin-
berri heimsókn í Ungverjalandi.
„Samkvæmt okkar hugmynda-
fræði og trú er bannað að þróa
kjarnorkuvopn og önnur gereyð-
ingarvopn.“
Kharrazi segir að ef bandaríski
herinn ráðist inn í landið sé alveg
ljóst að Íranar verði tilbúnir.
Þegar hann var spurður nánar út í
hvað hann meinti með því vildi
hann ekki svara. ■
RAFMAGNSLAUST Bylur hefur
gengið hvað eftir annað yfir
Skandinavíu upp á síðkastið, síð-
ast í gær, og valdið tjóni á hús-
um, vegum og skógum í Svíþjóð.
Einn maður hefur týnt lífi í
árekstri af völdum veðursins, tré
hafa fallið og rafmagnslaust
orðið hjá yfir 12 þúsund manns.
Svo mikið hefur gengið á að við-
gerðarmenn hafa varla haft
undan að gera við. Lestarsam-
göngur hafa raskast verulega.
SELDI DÓTTURFÉLAGIÐ Á KRÓNU
Sænska tryggingafélagið Folksam
International seldi dótturfélag
sitt, Folksam Inter, fyrir eina
sænska krónu hálfu ári áður en
það varð gjaldþrota. Þetta gerði
tryggingafélagið til að losna við
áfallið af gjaldþrotinu sem hefði
haft veruleg áhrif á trúverðug-
leika og traust móðurfélagsins.
OPINBER HEIMSÓKN
Kamal Kharrazi, utanríkisráðherra Írans,
ásamt hinum ungverska starfsbróður
sínum Ferenc Somogyi.
Íranskur ráðherra:
Engin kjarnorkuvopn
KOLBRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
Alþingiskona vill fá að vita hvort
farið sé að kostunarreglum laga.