Fréttablaðið - 15.02.2005, Side 12
MÓTMÆLI Í ÍSRAEL
Ísraleskar lögreglukonur taka á mótmæl-
anda í Jerúsalem í gær. Hundruð Ísraels-
manna komu saman og hindruðu umferð
við stórar götur til að mótmæla áætlunum
Ariels Sharon forsætisráðherra um að
rýma landnemabyggðirnar á Gaza-strönd
og hluta Vesturbakkans í sumar.
12 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri í Fjarðabyggð:
Tvær lóðir auglýstar á næstunni
FJARÐABYGGÐ Gert er ráð fyrir að
íbúum fjölgi um 1.200, eða 40 pró-
sent, í Fjarðabyggð fram til ársins
2007 eða 2008. Íbúar verði um 4.200
þegar upp er staðið.
„Þetta fólk mun vinna bæði í ál-
verinu og í afleiddum störfum sem
skapast í sveitarfélaginu,“ segir
Guðmundur Bjarnason bæjarstjóri.
„Starfsemi opinberra stofnana mun
eflast. Heilbrigðisgeirinn mun
vaxa, þá sérstaklega Fjórðungs-
sjúkrahúsið í Neskaupstað og öll
heilsugæslan. Verkmenntaskólinn
mun gegna ákveðnu hlutverki varð-
andi menntun starfsfólks sem
starfar í álverinu.“
Verslunarkjarni er að rísa á
Reyðarfirði og verður fyrsta versl-
unin opnuð í mars. Reiknað er með
að þar vinni um 50 verslunarmenn.
Á næstu vikum verða auglýstar
tvær lóðir sem liggja að álverinu á
Reyðarfirði. „Þær eru sérstaklega
ætlaðar fyrir aðila sem vilja þjón-
usta álverið í framtíðinni. Ef við
fáum stóra aðila inn á svæðið er
möguleiki fyrir þá að þjónusta fleiri
álver frá þessum stað,“ segir Guð-
mundur. - ghs
Rauði Ken:
Hneykslar
gyðinga
BRETLAND Ken Livingstone, borgar-
stjóri í Lundúnum, hefur enn einu
sinni komið sér í vandræði eftir að
hann líkti Oliver Finegold, blaða-
manni Evening Standard, við fanga-
vörð í útrýmingarbúðum. Finegold
er gyðingur og því vöktu ummælin
mikla reiði. Til að bæta gráu ofan á
svart neitaði Livingstone að biðjast
afsökunar þar sem hann sagðist
ekki iðrast ummælanna.
Livingstone er hinn mesti orð-
hákur og þannig neitaði hann að
bjóða Bush Bandaríkjaforseta vel-
kominn til Lundúna þegar sá síðar-
nefndi kom í opinbera heimsókn til
Bretlands á síðasta ári. ■
BANKI RÆNDUR Í KAUPMANNA-
HÖFN Starfsmönnum í Arbejd-
ernes Landsbank í Kaupmanna-
höfn var haldið sem gíslum í
klukkustund í gærmorgun meðan
ræningjar athöfnuðu sig. Þeir
ógnuðu starfsmönnum með
haglabyssum og öðrum skotvopn-
um og eru taldir hafa komist á
brott með að jafnvirði yfir 10
milljóna króna.
LYKKETOFT FÉKK MEIRA PLÁSS
Formaður Jafnaðarmanna í Dan-
mörku, Mogens Lykketoft, hefur
haldið því fram að hann hafi ekki
fengið jafn mikið pláss í fjöl-
miðlum í kosningabaráttunni
sem átti sér stað nýlega í Dan-
mörku og aðalkeppinautur hans,
Anders Fogh Rasmussen, for-
maður Venstre. Þetta er þó ekki
rétt. Rannsókn sýnir að Lykke-
toft fékk meira pláss í fjölmiðl-
um en Rasmussen, sérstaklega
síðustu þrjá dagana fyrir kosn-
ingar.
■ NORÐURLÖND
GUÐMUNDUR BJARNASON
Lóðirnar eru sérstaklega ætlaðar fyrirtækj-
um sem vilja þjónusta fyrirhugað álver.
Heitasta árið fram undan
Vísindamenn telja að yfirstandandi ár geti orðið það heitasta nokkru sinni um gervallan heiminn og slái
hitamet sem sett voru 1998, sem er heitasta árið á skrá síðan mælingar hófust.
VEÐURFAR Vísindamenn hjá banda-
rísku geimvísindastofnuninni,
NASA, telja líklegt að árið 2005
verði það heitasta á jörðinni hingað
til. Segja þeir kjöraðstæður í náttúr-
unni til þess arna, annars vegar er
veikur El Nino í Kyrrahafinu og í
þokkabót síaukin gróðurhúsaáhrif
og er það jafnvel ávísun á heitasta
árið hingað til. Mengun af mann-
anna völdum veldur síauknum
áhrifum á náttúru- og veðurfar alls
staðar á jarðkringlunni og telja vís-
indamennirnir að sú hækkun sem
orðið hefur á meðalhitastigi í heim-
inum síðustu áratugi megi að stór-
um hluta rekja til mengunar á borð
við útblástur bifreiða og mengunar
frá iðnaði hvers konar.
Til sanns vegar má færa að
merkileg veðurfræðileg fyrirbæri
eiga sér mun oftar stað nú en áður.
Svo nokkur dæmi séu tekin furða
heimamenn á Kanaríeyjum sig yfir
miklum rigningum og kuldaköstum
sem gengið hafa þar yfir um hríð.
Þurrkar hafa gert lífið erfitt fyrir
íbúa Kenía en hin síðari ár hefur
orðið vart við tengsl milli El Nino
hitastraumsins í Kyrrahafinu og
slæmum þurrkum í stórum hluta
Afríku. Sjaldan hefur mælst jafn
mikil úrkoma í Pakistan og reyndist
hún svo mikil að tvær nýjar stíflur í
landinu gáfu sig innan við tveimur
árum eftir að þær voru byggðar.
Mælingar á meðalhitastigi á
landi og á sjó á síðasta ári leiddu í
ljós að meðalhiti var 0,48 gráðum
hærri 2004 en hann var á tímabilinu
1950 til 1980 og þykir slíkt gríðarleg
hækkun á ekki lengri tíma.
Þeir íslensku veðurfræðingar
sem rætt var við vegna málsins
vildu lítið segja en bentu á að vís-
indamenn NASA og reyndar veður-
stofnanir víða notuðu afar háþróuð
veðurlíkön í spár sem þessar og því
væri ekki hægt að virða slíkt að
vettugi. ■
DOJRAN-VATN Í MAKEDÓNÍU
Hitastig hefur verið fyrir neðan frost-
mark á landamærum Makedóníu og
Grikklands viku eftir viku.