Fréttablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 15.02.2005, Blaðsíða 17
Smáauglýsingar byrja í dag á bls. 8 Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Góðan dag! Í dag er þriðjudagurinn 15. febrúar, 46. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 9.22 13.42 18.02 AKUREYRI 9.15 13.27 17.39 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Unnur Alfreðsdóttir, iðjuþjálfi hjá Janus endurhæfingu, kveðst aldrei hafa verið í betra formi en þegar hún gekk daglega til vinnu sinnar, sem tók hana 50 mínútur hvora leið. Eftir það „flaug“ hún upp fjöllin. „Ég bjó í mörg ár í Kópavogi en gekk til Reykjavíkur í vinnu í Háaleitishverfinu og verð að segja að það er einhver sú besta heilsurækt sem ég hef stundað á ævinni,“ segir Unnur. Hún kveðst um svipað leyti hafa farið að stunda fjallgöngur í fyrsta skipti og nánast ekkert fundið fyrir þeim. Þrekið og þolið hafi komið algerlega af sjálfu sér. Hún hlær þegar hún viðurkennir að hafa verið orðin hálf manískur gönguþjarkur. „Ég fann að það pirraði mig ef ég missti úr dag og hef aldrei orðið svona háð neinni líkams- rækt. Að þiggja far í vinnuna var ekki inni í myndinni og ég gekk nánast í hvaða veðri sem var.“ Hún kveðst hafa dottið inn í þetta mynstur eiginlega af tilviljun. „Ég átti ekki bíl og var orðin svo leið að bíða eftir strætó að ég byrjaði að labba. Fyrst út á næstu stoppistöð og svo bara alla leið.“ Unnur kveðst hafa flutt til Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og þá styttust göngurn- ar. „Ég var ekki nema kortér í vinnuna og til að byrja með reyndi ég að búa mér til lengri leiðir en sprakk á því. Svoleiðis gerviaðferð- ir eru ekki nógu góður rammi til að styðja við mann,“ segir hún og er þessu næst beðin að lýsa afrekum sínum í fjallgöngum. „Ég hef farið nokkrum sinnum með hópnum Göngu- hrólfum um fjöll á Mallorka og einnig í ítölsku Alpana. Svo var ég í öðrum göngu- klúbbi til margra ára sem fór yfir skörð og inn í firði, bæði á Vestfjörðum og Austfjörð- um. Þetta voru allt yndislegar ferðir.“ Nú á Unnur orðið bíl og þar með er göng- um í vinnuna lokið en í staðinn skutlast hún á bílnum í Sundlaug Kópavogs og stundar þar sína líkamsrækt. „Það hentar mér ágætlega en ég hef aldrei verið í eins góðu formi og þegar ég gekk daglega í og úr vinnu,“ segir hún að lokum. gun@frettabladid.is Gangan er besta heilsubótin Flensan virðist vera á undan- haldi en 95 tilfelli voru skráð vikuna 31. janúar til 6. febrúar hjá læknavaktinni á móti 152 tilfellum vik- una á und- an. Á Læknavakt- ina Smára- torgi komu alls 1.294 sjúklingar á móttöku og farið var í um 196 vitj- anir í heimahús fyrstu vikuna í febrúar. Þetta kemur fram á vefnum doktor.is. Farsóttafréttir er nýtt frétta- bréf á vegum sóttvarnalæknis sem hefur göngu sína hjá Landlæknisembættinu. Ætlunin er að það komi út einu sinni í mánuði, á íslensku og ensku. Fjallað verður um það sem efst er á baugi hverju sinni og varð- ar sóttvarnir. Ástæða þykir til að gefa fréttabréfið einnig út á ensku vegna tíðni fyrirspurna á erlendum vettvangi varðandi farsóttir og smitsjúkdóma á Ís- landi. Engu að síður munu áfram birtast á fréttavef Land- læknisembættisins tilkynningar, tilmæli og fyrirmæli eftir því sem tilefni gefst til. Námstefna um skimun og snemmgreiningu einhverfu verður haldin á Grand hóteli 4. mars 2005. Aðalfyrirlesari verð- ur Tony Charman, sér- fræðingur í þroska barna og einhverfu á Institute of Cognitive Neuroscience í London. Námstefnan er sam- starfsverkefni Greining- ar- og ráðgjafarstöðvar og Miðstöðvar heilsu- verndar barna. Auglýst hefur verið eftir um- sóknum um styrki úr For- varnasjóði en veittir verða styrkir til almennra verkefna og rannsókna auk þess sem hluta Forvarnasjóðs verður varið til styrktar áfangaheimilum. Við úthlutun styrkja verða hafðar í huga niðurstöður nýjustu rann- sókna, fyrirliggjandi upplýsingar um vímuefnaneyslu og forvarn- ir í samfélaginu og að jafnvægi sé á milli landshluta. Litið verð- ur á samvinnu um verkefni og mótframlög annarra sem kost. Ekki verða veittir styrkir til al- menns reksturs hópa eða fé- lagasamtaka. Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 2005 og skal sótt um á eyðublöðum sem eru á heimasíðu Lýðheilsu- stöðvar www.manneldi.is. Unnur kveðst lítið hafa gengið að undanförnu en stefnir á að fara í stafgöngur með systur sinni. Smáauglýsingar á 995 kr. visir.is LIGGUR Í LOFTINU í heilsu FASTEIGNIR HEILSA HEILSA NÁM MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl. Þú getur pantað smáauglýsingar á www.visir.is KRÍLIN Hagl er svona harðsoðin rigning! Cranio virkar við ýmsum kvillum BLS. 4 ][ SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. Lyklabönd geta valdið slysum LYKLABÖND SEM NOTUÐ ERU YFIR HÁLSINN ÞURFA AÐ GETA LOSNAÐ AUÐVELDLEGA Í SUNDUR. Á vef Lýðheilsustofnunar er varað við notkun barna á svo- kölluðum lyklaböndum, þar sem þau geta valdið alvarlegum slys- um. Böndin eru mjög vinsæl um þessar mundir og nota bæði börn og fullorðnir slík bönd um hálsinn til að geyma síma og lykla. Á vefsíðu Lýðheilsustofn- unar er sagt frá 9 ára stúlku sem hékk föst á lyklabandinu eftir að hún stökk úr leiktæki. Lykillinn sem hékk í bandinu festist í leik- tækinu þegar hún stökk og hékk stúlkan í bandinu og barðist um, sem varð til þess að krókur losnaði og hún féll á jörðina. Stúlkan hlaut minniháttar áverka en var að vonum mjög skelkuð. Brýnt er fyrir foreldrum að ganga úr skugga um að böndin séu þess eðlis að þau losni í sundur við átak. Lyklabönd eru ýmiss konar og eru sum þeirra heil en hægt er að gera þau öruggari með því að klippa þau í sundur og festa þau saman með frönsk- um rennilási sem losnar auð- veldlega sé kippt í bandið. Lyklabönd eru mjög vinsæl um þessar mundir hjá börnum og fullorðnum. heilsa@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.