Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 15. febrúar 2005
Engin
skaðleg
hormón
takk!
Náttúrulegt bætiefni
fyrir konur á breytingarskeiði
K
R
A
F
T
A
V
E
R
K
Breytingarskeiðið er ekki sjúkdómur,
heldur náttúrulegt ferli í ævi kvenna.
Breytingarskeiðinu geta hins vegar fylgt óþægindi.
í náttúrunni má finna mild en afar virk efni
við óþægindum breytingarskeiðsins.
Kvennablómi er einstök samsetning
náttúruefna sem rannsóknir og reynsla staðfesta
að gagnast konum einstaklega vel gegn
óþægindum breytingarskeiðsins.
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Hvers vegna offita?
Að borða of mikið í einu en of sjald-
an yfir daginn er, ásamt hreyfingar-
leysi, ein stærsta einstaka orsök þess
að ástandið í vestrænum samfélög-
um er orðið eins slæmt og raun ber
vitni.
Offita
Ef offita hrjáir þig verður þú að átta
þig á því að fitan er ekki vandamál-
ið, fitan er ekki orsök heldur einung-
is afleiðing. En afleiðing af hverju?
Uppsöfnun fitu er oftast vegna þess
að meira kemur inn í líkamann af
hitaeiningum heldur en hann getur
losað sig við (brennt). Þetta er ein-
falt kerfi sem virkar eins og plús og
mínus. Ef þú borðar meira af hita-
einingum (orku) en líkaminn getur
brennt safnar hann orkuforða í formi
fitu en þannig geymir líkaminn um-
frammagn hitaeininga.
Hvað veldur offitu?
Uppsöfnun fitu er aðallega afleiðing
þriggja þátta:
1. Borðað er of sjaldan yfir daginn
en of mikið í einu.
2. Hreyfingarleysi.
3. Skortur er á vöðvamassa.
Já, VÖÐVAMASSA!
Hvernig getur það verið?
Mjög algeng ástæða fyrir fitusöfnun
er að borða of mikið í einu en of
sjaldan yfir daginn, sem veldur því
að líkaminn nær of sjaldan að vinna
úr hitaeiningunum. Þetta veldur því
að of lítið er borðað í heildina, sem
aftur veldur því að líkaminn finnur
að það er verið að svelta hann. Þá
bregður líkaminn á það ráð að fara
að safna orkuforða í formi fitu til
notkunar meðan á sveltinu stendur,
sem veldur hraðri fitusöfnun.
Er hægt að koma
í veg fyrir þetta?
Auðvelt er að fyrirbyggja þetta með
því að borða minna í einu en oftar
yfir daginn. Að sjálfsögðu er átt við
neyslu á hollri fæðu. Þetta veldur því
að meiri orka er til staðar til að
sinna daglegum störfum, verkum,
tómstundum og öðru sem við þurf-
um og viljum gera.
Blóðsykurfall?
Með þessu er líka að mestu leyti
komið í veg fyrir blóðsykurfall. Blóð-
sykurfall á sér oftast stað um miðjan
dag og veldur því að flestir grípa
eitthvað nógu sætt til að bæta stöð-
una STRAX! Þetta er kallað blóðsyk-
urfall en er í raun fátt annað en
orkuleysi. Líkamann vantar meiri
orku, sem lýsir sér í þreytu og jafn-
vel doða seinni hluta dags. Álíka og
þegar tæki sem gengur fyrir rafhlöð-
um sem eru að klárast þarf samt
áfram rafstraum til að ganga. Eftir
því sem straumurinn dofnar hreyfist
tækið hægar og hægar þar til það
fær sér súkkulaðistykki, eða hvað?
Auðvelt að fyrirbyggja!
Þetta er auðvelt að fyrirbyggja hjá
okkur með því að borða reglulega,
holla og fjölbreytta fæðu, og stunda
reglulega líkamsrækt.
Samantekt
Vöðvar brenna hitaeiningum, ekki
bara meðan á hreyfingu stendur
heldur allan sólarhringinn. Vöðvar
brenna um 25% þeirra hitaeininga
sem við neytum, líka meðan við sof-
um! Styrkleika- og úthaldsþjálfun og
fitubrennsla hámarka hraða fitutaps.
Styrkleikaþjálfun breytir líkama þín-
um í tryllitæki sem notar fitu sem
eldsneyti án þess að þú gerir nokk-
uð sérstakt til þess.
Sölvi Fannar Viðarsson
Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar.
Hann hefur starfað við einkaþjálfun
og heilsuráðgjöf um árabil.
SYKRAÐIR DRYKKIR EIGA EKKERT
ERINDI VIÐ UNG BÖRN. ÞAU EIGA AÐ
DREKKA MJÓLK.
Eitt til tvö glös af ávaxtasafa eða sykur-
gosi á dag geta reynst ungum börnum
skeinuhætt, einkum þeim sem eiga
vanda til að fitna.
Bandarískir nær-
ingarfræðingar
segja löngu tíma-
bært að foreldrar
hætti að gefa
ungum börnum
sínum ávaxtasafa
og/eða sykraða
gosdrykki. Það er
þekkt staðreynd
að ávaxtasafi getur
valdið tann-
skemmdum í börn-
um en nú bendir
margt til að slíkir drykkir valdi einnig
offitu.
Næringarfræðingarnir vestra segja að á
tuttugu ára tímabili, frá 1977 til 1997,
hafi neysla ungra barna á gosdrykkjum
aukist um 62% og um 42% á ávaxta-
safa. Á sama tíma hefur börnum sem
þjást af offitu fjölgað til muna.
Næringarfræðingarnir segja að
barni sem drekkur um 35 cl
af ávaxtasafa daglega sé
mun hættara við að glíma
síðar við offitu en barni
sem drekkur ekki safa.
Foreldrar eru hvattir til að
hafa mjólk og vatn til reiðu
þegar börnin verða þyrst.
Djús og gos valda offitu hjá börnum
Foreldrar verða að gæta að
því að börn drekki ekki
gosdrykki í óhófi.