Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 15.02.2005, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 15. febrúar 2005 Engin skaðleg hormón takk! Náttúrulegt bætiefni fyrir konur á breytingarskeiði K R A F T A V E R K Breytingarskeiðið er ekki sjúkdómur, heldur náttúrulegt ferli í ævi kvenna. Breytingarskeiðinu geta hins vegar fylgt óþægindi. í náttúrunni má finna mild en afar virk efni við óþægindum breytingarskeiðsins. Kvennablómi er einstök samsetning náttúruefna sem rannsóknir og reynsla staðfesta að gagnast konum einstaklega vel gegn óþægindum breytingarskeiðsins. SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ Hvers vegna offita? Að borða of mikið í einu en of sjald- an yfir daginn er, ásamt hreyfingar- leysi, ein stærsta einstaka orsök þess að ástandið í vestrænum samfélög- um er orðið eins slæmt og raun ber vitni. Offita Ef offita hrjáir þig verður þú að átta þig á því að fitan er ekki vandamál- ið, fitan er ekki orsök heldur einung- is afleiðing. En afleiðing af hverju? Uppsöfnun fitu er oftast vegna þess að meira kemur inn í líkamann af hitaeiningum heldur en hann getur losað sig við (brennt). Þetta er ein- falt kerfi sem virkar eins og plús og mínus. Ef þú borðar meira af hita- einingum (orku) en líkaminn getur brennt safnar hann orkuforða í formi fitu en þannig geymir líkaminn um- frammagn hitaeininga. Hvað veldur offitu? Uppsöfnun fitu er aðallega afleiðing þriggja þátta: 1. Borðað er of sjaldan yfir daginn en of mikið í einu. 2. Hreyfingarleysi. 3. Skortur er á vöðvamassa. Já, VÖÐVAMASSA! Hvernig getur það verið? Mjög algeng ástæða fyrir fitusöfnun er að borða of mikið í einu en of sjaldan yfir daginn, sem veldur því að líkaminn nær of sjaldan að vinna úr hitaeiningunum. Þetta veldur því að of lítið er borðað í heildina, sem aftur veldur því að líkaminn finnur að það er verið að svelta hann. Þá bregður líkaminn á það ráð að fara að safna orkuforða í formi fitu til notkunar meðan á sveltinu stendur, sem veldur hraðri fitusöfnun. Er hægt að koma í veg fyrir þetta? Auðvelt er að fyrirbyggja þetta með því að borða minna í einu en oftar yfir daginn. Að sjálfsögðu er átt við neyslu á hollri fæðu. Þetta veldur því að meiri orka er til staðar til að sinna daglegum störfum, verkum, tómstundum og öðru sem við þurf- um og viljum gera. Blóðsykurfall? Með þessu er líka að mestu leyti komið í veg fyrir blóðsykurfall. Blóð- sykurfall á sér oftast stað um miðjan dag og veldur því að flestir grípa eitthvað nógu sætt til að bæta stöð- una STRAX! Þetta er kallað blóðsyk- urfall en er í raun fátt annað en orkuleysi. Líkamann vantar meiri orku, sem lýsir sér í þreytu og jafn- vel doða seinni hluta dags. Álíka og þegar tæki sem gengur fyrir rafhlöð- um sem eru að klárast þarf samt áfram rafstraum til að ganga. Eftir því sem straumurinn dofnar hreyfist tækið hægar og hægar þar til það fær sér súkkulaðistykki, eða hvað? Auðvelt að fyrirbyggja! Þetta er auðvelt að fyrirbyggja hjá okkur með því að borða reglulega, holla og fjölbreytta fæðu, og stunda reglulega líkamsrækt. Samantekt Vöðvar brenna hitaeiningum, ekki bara meðan á hreyfingu stendur heldur allan sólarhringinn. Vöðvar brenna um 25% þeirra hitaeininga sem við neytum, líka meðan við sof- um! Styrkleika- og úthaldsþjálfun og fitubrennsla hámarka hraða fitutaps. Styrkleikaþjálfun breytir líkama þín- um í tryllitæki sem notar fitu sem eldsneyti án þess að þú gerir nokk- uð sérstakt til þess. Sölvi Fannar Viðarsson Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar. Hann hefur starfað við einkaþjálfun og heilsuráðgjöf um árabil. SYKRAÐIR DRYKKIR EIGA EKKERT ERINDI VIÐ UNG BÖRN. ÞAU EIGA AÐ DREKKA MJÓLK. Eitt til tvö glös af ávaxtasafa eða sykur- gosi á dag geta reynst ungum börnum skeinuhætt, einkum þeim sem eiga vanda til að fitna. Bandarískir nær- ingarfræðingar segja löngu tíma- bært að foreldrar hætti að gefa ungum börnum sínum ávaxtasafa og/eða sykraða gosdrykki. Það er þekkt staðreynd að ávaxtasafi getur valdið tann- skemmdum í börn- um en nú bendir margt til að slíkir drykkir valdi einnig offitu. Næringarfræðingarnir vestra segja að á tuttugu ára tímabili, frá 1977 til 1997, hafi neysla ungra barna á gosdrykkjum aukist um 62% og um 42% á ávaxta- safa. Á sama tíma hefur börnum sem þjást af offitu fjölgað til muna. Næringarfræðingarnir segja að barni sem drekkur um 35 cl af ávaxtasafa daglega sé mun hættara við að glíma síðar við offitu en barni sem drekkur ekki safa. Foreldrar eru hvattir til að hafa mjólk og vatn til reiðu þegar börnin verða þyrst. Djús og gos valda offitu hjá börnum Foreldrar verða að gæta að því að börn drekki ekki gosdrykki í óhófi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.