Fréttablaðið - 15.02.2005, Page 20
15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Er maginn vandamál?
Stress, þreyta og sérstakur
matur getur sett magann úr
jafnvaægi.
Óþægindi lýsa sér oft sem
nábítur, brjóstsviði,
vindgangur, harðlífi og
niðurgangur.
Þetta þykir öllum afar
óþægilegt og líður þá illa í
öllum líkamanum.
Silicol fæst í apótekum
Lífrænt heilsukex
Speltkex með fyllingu
2 bragðtegundir:
• með eplum og kanel
• með rauðum berjum
Sérpakkað: 6 stangir
í pakka
Ekkert hveiti
Einungis sæta úr
ávöxtum og spelti.
Fæst í heilsubúðum
og heilsuhillum
matvörumarkaða.
Dreifing: Yggdrasill ehf.
Borgartúni 24
Opið virka daga kl. 10–20
laugardaga kl. 11–17
Heilsuvörur
og matstofa
Allar
heilsuvörur
á einum
stað
Cranio, höfuðbeina- og spjald-
hryggsjöfnun, nýtur vaxandi
vinsælda hér á landi, en með-
ferðinni er beint gegn öllum
kvillum, hvort sem er líkam-
legum eða andlegum.
Nýlega var staddur hér á landi
Thomas Atlee, sérfræðingur í
höfuðbeina- og spjaldhryggs-
jöfnun, en hann hefur rekið og
veitt forstöðu skóla í London í 20
ár þar sem meðferðin er kennd.
Thomas hefur komið hingað
reglulega frá árinu 1991 og hald-
ið námskeið og útskrifað fjölda
íslenskra nemenda í þessum
fræðum. Höfuðbeina- og spjald-
hryggsjöfnun, öðru nafni cranio,
nýtur vaxandi vinsælda, en í
hverju felst þessi meðferð?
„Markmiðið er að koma á heil-
brigði og jafnvægi á öllum svið-
um,“ segir Thomas. „Meðferðin
felst í mildri snertingu en áhrif-
in eru mjög kröftug og hafa
djúpstæð áhrif. Með snerting-
unni getum við fundið hvar
spennan er í líkamanum og virkj-
að hann sjálfan til að losa um
stíflur. Líkaminn hefur einmitt
hæfileika til að lækna sig sjálfur,
en uppsöfnuð spenna og streita
getur hins vegar komið í veg
fyrir að honum takist það. Cranio
virkjar þennan innbyggða hæfi-
leika þannig að orkan streymir
óhindruð um líkamann.“
Thomas segir að með cranio sé
hægt að takast á við hvers konar
kvilla, hvort sem er líkamlega eða
andlega. „Við getum læknað
streitu, háls-, höfuð- og bakverki,
meltingarsjúkdóma og þunglyndi
svo fátt eitt sé nefnt. Við með-
höndlum líka ungbörn með góðum
árangri, en fæðingin sjálf er
einmitt algeng ástæða fyrir
vandamálum fólks síðar á lífsleið-
inni. Fæðingin getur verið erfið og
átakamikil og oft fáum við börn til
meðferðar sem gráta mikið án sjá-
anlegrar ástæðu. Læknar segja
eðlilegt að ungbörn gráti, en barn
grætur ekki nema einhver ástæða
sé fyrir því. Með cranio finnum
við hvort barn á erfitt eftir fæð-
inguna og getum komið á jafn-
vægi. Það er stanslaus straumur
til okkar af mæðrum sem koma ör-
magna með börnin sín sem gráta
látlaust og yndislegt að horfa á
þau fara brosandi og hamingju-
söm út aftur.“
Thomas segir að ofvirkni og
hegðunarvandmál barna og ung-
linga megi oft rekja til áfalls í
fæðingu og cranio geti læknað
þessi börn. „Það verður auðvitað
að skoða hvert tilfelli fyrir sig og
stundum þarf að koma til frekari
meðferð samhliða, en þarna, eins
og á öðrum sviðum, höfum við
náð undraverðum árangri.“
Heimasíða Félags höfuðbeina-
og spjaldhryggsjafnara á Íslandi
er www.cranio.cc.
edda@frettabladid.is
Ungbörn hætta að gráta og
fara hjalandi heim úr meðferð
Thomas meðhöndlar fimm daga gamalt barn, en óróleika
barna má oft rekja til erfiðrar fæðingar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
Á FÖSTUDÖGUM
Auglýsingasíminn
er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins -