Fréttablaðið - 15.02.2005, Side 25
Hvað er leiðsögumaður ferða-
fólks? Í Fréttablaðinu 9. febrúar
sl. báru þau Sólrún Jónsdóttir og
Pétur Sigurðsson upp svofellda
spurningu: „Hvað er Félag leið-
sögumanna?“ Þetta er mjög þörf
spurning og full ástæða til að
þakka þeim fyrir. Hún hefði helst
þurft að birtast á forsíðu blaðs-
ins, með stóru svörtu letri. Þessa
stundina er svarið þó óljóst. Á
aðalfundi félagsins á síðasta ári
var samþykkt að skipta félaginu í
tvær deildir, fagdeild og stéttar-
félagsdeild. Kosnar voru nefndir
til að undirbúa ný félagslög og nú
bíða félagsmenn með óþreyju
eftir að heyra endanlegar tillögur
og taka afstöðu á næsta aðal-
fundi. Kannske geta þau Sólrún
og Pétur fengið inngöngu eftir
þann fund. Ég get upplýst, sem
ein úr hópi stofnenda FL, hvert
var meginmarkmið þeirra með
stofnun FL í júní 1972 – að stuðla
að gæðaleiðsögu. Fram að þeim
tíma hafði hópur vel menntaðra
einstaklinga verið ráðinn til að
leiðsegja erlendum ferðamönn-
um sem heimsóttu Ísland. Sumir
þessara einstaklinga voru tungu-
málakennarar, aðrir jarðfræðing-
ar, náttúrufræðingar eða sagn-
fræðingar o.s.frv. Með ört vax-
andi fjölda ferðamanna var oft
erfitt fyrir starfsfólk ferðaskrif-
stofa að finna nýja hæfa einstak-
linga til leiðsögustarfa þó að
margir hefðu þá lokið prófi frá
leiðsögunámskeiðum, sem Vigdís
Finnbogadóttir, ásamt öðrum
reyndum og hæfum leiðsögu-
mönnum, stjórnaði fyrir Ferða-
skrifstofu ríkisins. Þeir sem á
þessum tíma unnu við leiðsögu
ferðamanna, með langa reynslu
að baki eða með nýlegt leiðsögu-
próf, ákváðu að stofna samtök í
þeim tilgangi að... 1) Safna saman
undir einu þaki starfandi leið-
sögumönnum m.a. til að auðvelda
vinnuráðningar bæði til hagsbóta
fyrir ferðaskrifstofur og leið-
sögumenn. 2) Bjóða félagsmönn-
um upp á fræðandi fyrirlestra
um hin margvíslegustu málefni
lands og þjóðar, til að auka færni
þeirra í leiðsögustarfinu. Í ljós
kom skömmu síðar að viðbrögð
ferðaskrifstofueigenda við þess-
um hugmyndum voru þau að
lækka einhliða laun leiðsögu-
manna. Þá var bætt við... 3) Að
samræma laun leiðsögumanna.
Launagreiðendur töldu sig enga
skyldu hafa við þetta félag ..það
væri ekki alvöru stéttarfélag...
það ætti ekki aðild að ASÍ. Þá
bættist við... 4) Að fá inngöngu í
ASÍ. Á þeim bæ var leiðsögustarf
ekki talið alvöru starf ... það væri
ekki stundað frá kl. 9-5 alla virka
daga. Sú afstaða breyttist síðar
og félagið fékk inngöngu í ASÍ –
Hugsjón stofnenda í verki . Þegar
reglugerð var sett um leiðsögu-
nám árið 1981 sýndu félagsmenn
metnað sinn í verki með því óum-
beðnir að láta meta hæfni sína
miðað við nýjar kröfur. Núna er
vitað að margir einstaklingar
kalla sig leiðsögumenn og selja
leiðsöguþjónustu án þess að hafa
leiðsögupróf. Vonandi smitast
þeir af hugsjón stofnenda FL og
fara í gæðapróf áður en verksala
fer fram. Ef SAF skyldi óvænt
telja þess þörf. Hvað varðar
Birnu-braut vona ég að þeir sem
þá braut hafa gengið hafi gæða-
leiðsögu í fyrirrúmi. Og að eng-
um takist að færa þá braut niður
á menntaskólastig. Og nú spyr
ég: „Hvað er leiðsögumaður“?
Svar óskast.
Höfundur er leiðsögumaður.
Hvað er leiðsögumaður ferðafólks?
17ÞRIÐJUDAGUR 15. febrúar 2005
Kæra þriðja aðila
Verðbólga undanfarinna 12 mánuði er
fyrir ofan þau viðmiðunarmörk sem
Seðlabankinn hefur sett sér. Helmingur
þessarar verðbólgu er tilkominn vegna
mikillar hækkunar á verði íbúðarhús-
næðis. Í fréttum kom fram að bankarnir
hafa markvisst unnið að því að hækka
verð á íbúðarhúsnæði og að lögmál
markaðarins um framboð og eftirspurn
hafa ekki gilt á þessum markaði unan-
farnar vikur og mánuði. Fréttamennirnir
fundu rót vandans og gátu nefnt dæmi
máli sínu til stuðnings og þá er svar
bankanna ekki að ræða fréttina heldur
að kæra þriðja aðila til þess að draga
athyglina frá því sem þeir eru að gera.
G. Valdimar Valdemarsson á timinn.is
Jakkaföt á Alþingi
Þingmenn Frjálslynda flokksins lögðu á
dögunum fram þingsályktunartillögu á
Alþingi þess efnis að hætt verði að
skylda karla til að klæðast ávallt jakka-
fötum og bindi í þingsal í því skyni að
færa klæðnað þingmanna til nútímalegs
horfs. Fyrir það fyrsta vissi ég ekki að
það væri gamaldags að klæðast jakka-
fötum og bindi við ýmis tækifæri, en
vart er hægt að túlka tillögu þingmann-
anna öðruvísi.
Það þykir eðlilegt við ófá tækifæri að
karlar klæðist með þessum hætti og þá
ekki sízt þar sem hugmyndin er að
halda uppi ákveðinni háttvísi og virð-
ingu. Og ef einhvers staðar er ástæða til
að huga að slíku í þjóðfélaginu þá er
það væntanlega á Alþingi sem gjarnan
er nefnd virtasta stofnun landsins.
Hjörtur J. Guðmundsson á ihald.is
Stalín er hér
Fyrir skömmu varð uppi fótur og fit
meðal úkraínskættaðra Kanadamanna
vegna tveggja víntegunda sem teknar
voru í sölu í áfengisverslunum í Mani-
toba-fylki. Reyndar voru ekki gerðar
athugasemdir við innihaldið í flöskun-
um heldur miðana sem skreyttir voru
frægri mynd frá Jalta-ráðstefnunni þar
sem Jósef Stalín og Winston Churchill
skiptu Evrópu á milli sín. Þetta þótti fyrr-
nefndum hópi í hæsta máta ósmekk-
legt, þar sem Stalín væri tákngervingur
svo margs ills sem yfir ættjörðina hefði
dunið og Jalta-samkomulagið hefði ekki
bætt úr skák. Yfirvöld vestra féllust á
þessi rök og umræddar víntegundir voru
teknar úr sölu. Þær voru reyndar fluttar
inn frá Úkraínu.
SH á murinn.is
Hvað verður næst?
Ég rakst á frétt á mbl.is þar sem greint
er frá því að neðrideildar þingmenn
Virginíu-fylkis hafa samþykkt að banna
fólki að ganga um götur fylkisins með
„buxurnar á hælunum“ þ.e. vera girtur
ögn neðar en mjaðmir. Telur Algie T.
Howell, flutningsmaður tillögunnar, að
það særi blygðunarkennd fólks að sjá í
nærföt þeirra sem eru illa girtir. Það geti
haft varanleg áhrif á andlegt ástand
þeirra. Þó er vert að minnast þess að
neðst í þessari bókun þá stendur að
konur megi þó gefa börnum brjóst hvar
sem er, hvenær sem er.
Ef þetta frumvarp verður síðan sam-
þykkt af öldungardeild Virginíu-fylkis er
það ljóst að réttur einstaklingsins er
stórlega brotinn. Hvað verður þá næst?
Kvenfólk má ekki vera í minipilsum eða
magabolum?
Sigurður Pálmi Sigurbjörnsson á
frelsi.is
BIRNA G. BJARNLEIFSDÓTTIR
SKRIFAR UM STARF LEIÐSÖGUMANNA
AF NETINU
Chelsea•Barcelona
8. mars í LONDON!
Þú gætir unnið:
• Ferð fyrir 2 á Chelsea-Barcelona*
• PlayStation2 tölvur
• CHAMPIONS LEAGUE 2004-2005
(Farðu á leikinn eða spilaðu hann heima í stofu)
• Fullt af DVD myndum o.m.fl.
*Ferðin á leikinn er dreginn úr öllum innsendum SMS skeytum og nafn vinningshafa verður birt á www.snilld.is 2. mars 2005. Svo vertu búinn að pakka!
Vinningar verða afhendir í BT Smáralind. Kópavogi, Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr./skeytið.
Eiður • Ronald
inho
Sjáðu þessa s
nillinga í 100%
beinni!
Snilldarkort S
PRON býður vi
nningshafa á
völlinn til að s
já
Chelsea-Barce
lona 8. mars á
Stamford Brid
ge!
Sendu SMS sk
eytið JA VAS á
númerið 1900
og þú gætir u
nnið.
Við sendum þé
r spurningu. Þ
ú svarar með
því að senda
SMS skeytið J
A A, B eða C á
númerið 1900
.
Þessi leikur er á vegum VAS.
Snilldarkort SPR
ON
býður vinningsha
fa
á völlinn!
Þú getur fengið
þér snilldarkor
t
SPRON á www.
snilld.is
ALLIR
GETA
TEKIÐ
ÞÁTT
!