Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 28

Fréttablaðið - 15.02.2005, Síða 28
1564 Galíleó Galílei, stjarn- fræðingur. 1483 Babur, stofnandi Mughal-veldisins á Indlandi. 1922 Herman Kahn, rithöfundur. 1951 Jane Seymour, leikkona. 1918 Hank Locklin, sveitasöngvari. 1944 Mick Avory, trommuleikari Kinks. 1951 Melissa Manchester, söngkona. 1954 Matt Groening, höfundur Simp- sons-teiknimyndanna. 1959 Ali Campbell, söngvari UB40. 1960 Mikey Craig, bassaleikari Culture Club. 1964 Chris Farley, leikari. 1968 Michael Easton, leikari. 1971 Renee O’Connor, leik- kona. JARÐARFARIR 13.00 Grímólfur Andrésson, skipstjóri, frá Stykkishólmi, Laugarnesvegi 112, verður jarðsunginn frá Lang- holtskirkju. 13.00 Guðrún Sigríður Jónsdóttir, hjúkrunarheimilinu Eir, áður Hlað- hömrum, Mosfellsbæ, verður jarð- sungin frá Lágafellskirkju. 13.00 Gunnar Tryggvi Sigtryggsson, frá Bolungarvík, verður jarðsunginn frá Áskirkju. 13.00 Jóhannes Kr. Guðmundsson, verslunarmaður, Reyrengi 4, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju. 13.00 Jóna J. Guðjónsdóttir, Sólvangi, áður Miðvangi 41, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Þjóðkirkj- unni í Hafnarfirði. 13.00 Magnea Dagmar Tómasdóttir, Engihjalla 19, Kópavogi, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju. 13.00 Ólafur E. Stefánsson verður jarð- sunginn frá Bessastaðakirkju. 13.30 Bryndís Bolladóttir, Stóra-Hamri, Eyjafjarðarsveit, verður jarðsungin frá Munkaþverárkirkju. 13.30 Helga Halldórsdóttir, Norðurgötu 52, Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju. 14.00 Þóra Kristjánsdóttir, ráðskona, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju á Akureyri. 15.00 Rósey S. Helgadóttir, Dalbraut 14, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 15.00 Sigrún Kristinsdóttir, Þangbakka 8, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni. Hvöt, félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, var stofnað þennan dag árið 1937 og er því 68 ára í dag. Hvöt er fyrsta kvenfélag stjórnmálaflokks hér á landi og hefur starfað óslitið frá stofnun. Í lok október síðastliðins urðu stjórnarskipti í félaginu. Erla Tryggvadóttir, varaformaður Hvatar, segir að stjórnarmönn- um hafi verið fækkað úr níu í fimm með það fyrir augum að auka sveigjanleika og gera stjórnina skilvirkari. „Þá bindum við okkur ekki lengur við fasta mánaðarlega fundi eins og lög fé- lagsins kváðu áður á um, heldur höfum við fundað þegar þurfa þykir og í samvinnu við önnur fé- lög, svo sem Landssamband sjálfstæðiskvenna, hverfafélög, ungliða og fleiri,“ segir hún og bætir við að félagið hafi einnig tekið þann pól í hæðina að láta meira til sín taka í pólitískri um- ræðu og senda frá sér ályktanir um mál sem hæst beri hverju sinni. „Til dæmis ályktaði Hvöt um fasteignagjaldahækkanir í borginni og við fögnuðum líka hugmyndum Davíðs Oddssonar um að andvirðið af sölu Símans mætti nota til uppbyggingar á nýju sjúkrahúsi.“ Erla segir ekki vanþörf á að vera með sérstök kvenfélög inn- an stjórnmálaflokka. „Hvöt er elsta kvenfélag Sjálfstæðis- flokksins og við undirbúning að stofnun þess voru deilur um hvort konur ættu yfir höfuð að starfa í sérfélögum. Segja má að sú umræða sé enn í gangi í dag. Raunin er hins vegar sú að hlut- fall kvenna er ekki nógu hátt í stjórnmálum og þar til hlutfallið verður ásættanlegra réttlætir það tilvist sérstakra kvenfélaga,“ segir hún og áréttar að félagið starfi líka í anda hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins um að hæfn- in skipti máli en ekki kynið. „Mín skoðun er sú að konur þurfi að að standa saman og láta til sín taka á vettvangi stjórnmálanna.“ Erla telur ákveðinna viðhorfsbreyt- inga þörf þó hún hafi ekki trú á kynjakvótum eða inngripi ríkis- valdsins til að rétta hlut kvenna. „Konur eru í meirihluta í Háskóla Íslands og ég trúi ekki öðru en að þær láti til sín taka á öllum víg- stöðvum þjóðlífsins þegar fram í sækir.“ Sjálfstæðiskonum á Alþingi fækkaði um síðustu kosningar og telur Erla það ákveðna áminn- ingu um að konur megi ekki sofna á verðinum. „Við megum vera duglegri og virkari þátttakendur. Það datt fullt af fínum konum út af þingi sem mér finnst að mættu vera þar ennþá. Við þurfum bara að sýna meiri hörku,“ segir hún og telur að innan flokksins sé mikið til af hæfileikaríkum ungum kon- um sem eigi framtíðina fyrir sér í stjórnmálum. ■ 20 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR ALFRED NORTH WHITEHEAD (1861-1947) fæddist þennan dag. Elsta kvenfélagið lætur til sín taka TÍMAMÓT: SEXTÍU OG ÁTTA ÁRA AFMÆLI HVATAR, FÉLAGS SJÁLFSTÆÐISKVENNA Í REYKJAVÍK „Það er ekki fáviskan, heldur fáviskan um fáviskuna, sem boðar dauða þekkingarinnar.“ A. N. Whitehead var breskur stærðfræðingur, rökfræðingur og heimspek- ingur, best þekktur fyrir verk sín um rökfræði stærðfræðinnar og vísinda- heimspeki. Með Bertrand Russell skrifaði hann tímamótaverkið Principia Mathematica. timamot@frettabladid.is ERLA TRYGGVADÓTTIR Þennan dag árið 1961 fórust 73 þegar Boeing 707- þota belgíska flugfélagsins Sabena brotlenti í Berg, nærri flugvellinum í Brussel, rétt fyrir áætlaða lend- ingu. Sprenging varð í vélinni þegar hún skall á jörðina á engi nærri bóndabæjum eftir að hafa slitið í sund- ur raflínur á leiðinni niður. Vélin brotlenti í annarri tilraun sinni að aðflugi að flugvellinum, en í þeirri fyrri flaug hún yfir völlinn. Talsamband við vélina hafði rofnað nokkru fyrr þegar flytja átti sambandið yfir í flugvöllinn í Brussel. Meðal látinna var 11 manna áhöfn vélarinnar og maður sem var við störf á enginu þar sem hún kom niður. Flestir farþegarnir voru frá Bandaríkjun- um, en í hópnum voru 17 úr landsliði Bandaríkj- anna í listhlaupi á skautum. Hópurinn var á leið á heimsmeistaramót í Prag, en því var frestað vegna slyssins. Rannsókn á orsökum slyssins hófst strax dag- inn eftir brotlendinguna, en rannsóknarmenn bandarísku alríkislög- reglunnar komu til að starfa með belgísku lög- reglunni og sérfræðing- um á sviði flugvélasmíð- ar. Ekki fékkst þó endan- leg niðurstaða um or- sakir slyssins, en líklegast var talið að bilun hefði orðið í stjórnbúnaði flugvélarinnar. Í kjölfar slyssins var settur á stofn minningarsjóður til að minnast listhlaupsskautaliðs Bandaríkjanna. Árið 2001 var svo haldin skautahátíð í Madison Square Garden í New York í Bandaríkjunum í minningu þeirra sem létust í slysinu. ■ 15. FEBRÚAR 1961 ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1879 Rutherford Hayes Banda- ríkjaforseti skrifar undir lög sem heimila konum í stétt lögfræðinga að flytja mál fyrir Hæstarétti. 1917 Kristín Ólafsdóttir lýkur læknaprófi og er fyrsta konan sem lýkur embætt- isprófi frá Háskóla Íslands. 1923 Fyrsta konan sem kosin er á löggjafarþing Íslendinga, Ingibjörg H. Bjarnason, tek- ur sæti á Alþingi. 1964 Cassius Clay (Múhammeð Ali) verður heimsmeistari í þungavigtarflokki í hnefa- leikum. 1971 Stóra-Bretland og Írland skipta yfir í myntkerfi sem byggir á tugakerfinu. Boeing-þota fórst í lendingu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N Elskulegur eiginmaður minn, Jón Valdimar Kristjánsson frá Stöðvarfirði, til heimilis að Hraunbæ 103, Reykjavík, andaðist föstudaginn 11. febrúar síðastliðinn. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju föstudaginn 18. febrúar kl. 13.00. F.h. fjölskyldunnar, Borghildur Gísladóttir. Elskuleg eiginkona, móðir og amma, Helga Jónína Dagbjartsdóttir áður til heimilis að Bergstaðastræti 48a, lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn 11. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. febrúar klukkan 15.00. Bjarni Magnússon, Guðbjörg Bjarnadóttir og barnabörn. Ástkær eiginmaður minn Magnús Einar Finnsson lést sunnudaginn 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Jóhanna Erla Birgisdóttir. ANDLÁT Ásdís A. Helgadóttir, Árskógum 6, Reykjavík, lést laugardaginn 5. febrúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ingibjörg Ragnheiður Jóhannsdóttir lést á Hrafnistu í Reykjavík, föstudaginn 11. febrúar. Jón Valdimar Kristjánsson, frá Stöðvar- firði, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést föstu- daginn 11. febrúar. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 AFMÆLI Örnólfur Árnason, rithöfund- ur og þýðandi, er 64 ára í dag. Alfreð Þorsteins- son, borgarfulltrúi og stjórnar- formaður Orkuveitu Reykjavík- ur, er 61 árs í dag. Bergþóra Árnadóttir vísna- söngkona er 57 ára í dag. Margeir Pétursson, skák- meistari, stofnandi og stjórnar- formaður MP banka, er 45 ára í dag. Steinn Kári Ragnarsson, dag- skrárstjóri á Popp Tíví, er 32 ára í dag.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.