Fréttablaðið - 15.02.2005, Side 30

Fréttablaðið - 15.02.2005, Side 30
HANDBOLTI Segja má að íslenskir handboltadómarar séu tegund í útrýmingarhættu. Lítil sem engin endurnýjun hefur átt sér stað undanfarið og er víða pottur brot- inn hjá félögunum þegar kemur að því að huga að dómaramálum. „Handknattleiksforystan fram- leiðir ekki dómara, við skulum hafa það á hreinu. Það eru félögin sem eiga að standa sig í stykkinu þegar kemur að því að búa til dómara,“ sagði Einar Þorvarðar- son, framkvæmdastjóri HSÍ, í samtali við Fréttablaðið um helgina og hvítþvoði sjálfan sig og aðra forystumenn sambandsins algjörlega af dómaramálum. Hákon Sigurjónsson, formaður dómaranefndar HSÍ, sagði í sam- tali við Fréttablaðið að félögin virtust ekki gera sér grein fyrir mikilvægi dómara í íþróttinni. „Sinnuleysi félaganna er algjört og ég skil eiginlega ekki hvaða forgangsröðun er í gangi hjá þeim,“ sagði Hákon og bætti við að það væru í raun aðeins fjögur félög, HK, Grótta/KR, Stjarnan og Selfoss, sem stæðu sig í stykkinu. „Önnur félög láta sig þetta litlu varða.“ Hákon sagði að dómaranefndin stæði fyrir reglulegum dómara- námskeiðum en það væru litlar heimtur af þeim. „Ég hugsa að ef um hundrað manns mæta á námskeið þá megum við teljast heppnir ef við fáum einn mann til starfa í þeim hópi. Virðingarleys- ið gagnvart þessari stétt er algjört frá hendi félaganna og það gerir það að verkum að fólk hefur síður áhuga á því að skella sér út í dómgæslu. Nú horfum við fram á að nokkur af okkar bestu dómara- pörum eru að komast á aldur og við munum, ef fram heldur sem horfir, lenda í vandræðum með að fylla þeirra skörð. Ég vona að menn geri sér grein fyrir því að án dómaranna verður enginn handbolti spilaður hér á Íslandi. Ef ekkert verður að gert þá mun skapast neyðarástand í dómgæsl- unni innan fárra ára,“ sagði Hákon. oskar@frettabladid.is 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR ■ ■ LEIKIR  18.00 Fram og FH mætast í Framhúsinu í DHL-deild kvenna í handbolta.  18.00 Grótta/KR og Valur mætast á Seltjarnarnesi í DHL-deild kvenna í handbolta.  19.15 ÍBV og Víkingur mætast í Vestmannaeyjum í DHL-deild kvenna í handbolta.  19.30 ÍS og Valur mætast í Kennaraháskólanum í 1. deild karla í körfubolta.  20.00 Fram og Selfoss mætast í Framhúsinu í 1. deild karla í handbolta.  20.00 Stjarnan og Grótta/KR mætast í Ásgarði í 1. deild karla í handbolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.35 Olíssport á Sýn.  18.50 World Supercross á Sýn.  19.45 Knattspyrna til hjálpar á Sýn.  22.00 Olíssport á Sýn. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 12 13 14 15 16 17 18 Þriðjudagur FEBRÚAR Sinnuleysi félaganna í dómaramálum er algjört Hákon Sigurjónsson, formaður dómaranefndar HSÍ, segir allt stefna í neyðarástand innan fárra ára vegna lítillar endurnýjunar í dómarastéttinni. sport@frettabladid.is Við minnum… …Eið Smára Guðjohnsen, framherja Chelsea og fyrirliða íslenska landsliðsins, á að hann er fyrirmynd ungra krakka hér á Íslandi. Þetta síðasta atvik, þar sem hann var tekinn drukkinn undir stýri, er ekki til þess fallið að skapa honum virðingu og er svartur blettur á orðstír þessa annars frábæra knattspyrnumanns. Í ÚTRÝMINGARHÆTTU Hlynur Leifsson myndar eitt besta dómarapar landsins ásamt Antoni Gylfa Pálssyni en þeir félagar gætu innan fárra ára orðið eitt af örfáum dómarapörum landsins. Fréttablaðið/E. Ól

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.