Fréttablaðið - 15.02.2005, Page 32

Fréttablaðið - 15.02.2005, Page 32
15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Það er einn staður hér á landi sem er fallegri og betri en allir aðrir blettir á jarðkringlunni. Þetta er Vesturbærinn í Reykja- vík. Landfræðileg lega þessa rokrassgats við sjáv- arsíðuna gerir það að verkum að loftið þar er hreinna en annars stað- ar og glæpir eru svo fátíðir að það er hending að þar sjáist lögreglubíll á ferli og þá sjaldan að afbrot eru framin í þessum bæjarhluta eru iðulega aðkomumenn að verki. Þegar Vesturbæingar taka sig til sýna þeir jafnan yfirburði, hvort sem það er á andlegu eða líkamlegu sviði. Fótboltafélagið KR er gott dæmi um þetta en saga liðsins er svo glæsileg og umfang þess svo mikið að það er lífsstíll hjá þeim sem búa ekki í Vesturbænum að hatast við liðið. Hin og þessi úthverfi eru dugleg við að hampa einhverjum skáldum og rithöfundum sem hafa sest þar að. Vesturbærinn á nóg af slíkum en þar nægir að nefna Þórberg Þórðar- son, sem taldi skrefin í göngutúrum sínum um Vesturbæinn. Annan eins stílista hefur landið enn ekki alið og hann gæti skrifað hvaða úthverfa- höfund sem er sundur og saman. Melabúðin er ein skrautfjöður bæjarhlutans en hún er fyrir löngu orðin hin mesta sælkerabúð og er gott dæmi um hvernig kaupmaður- inn á horninu á að hegða sér til að lifa af í breyttu samkeppnisum- hverfi. Í Vesturbænum eru líka besta sundlaug landsins, bókabúð, apótek (í það minnsta þrjú) og skot- helt innra menntakerfi (Melaskóli, Hagaskóli, MR, Háskólinn). Það mætti því hæglega reisa borgarmúra umhverfis Vestur- bæinn og innan þeirra gætu Vestur- bæingar unað glaðir við sitt óáreitt- ir af hræringunum fyrir utan. Innan borgarmúranna væri allt til alls og ekkert því til fyrirstöðu að þarna risi Aþena norðursins. Brottfluttir Vesturbæingar, eins og ég sjálfur, þyrftu svo ekki að hafa neinar áhyggjur þó við stæðum utan múr- anna. Það gildir nefnilega hið forn- kveðna; einu sinni Vesturbæingur, ávallt Vesturbæingur og dætur og synir bæjarins eiga alltaf aftur- kvæmt. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON HEFUR YFIRGEFIÐ ÖRYGGIÐ Í VESTURBÆNUM EN ER ÓSMEYKUR. Borgvirkið M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N www.jumbo.is Frábær viðbót við veisluþjónustu Júmbó Pöntunarsími: 554-6999 Ótrúlegar 20 manna brauðtertur. Við bjóðum upp á þrjár ljúffengar tegundir, roastbeef, rækjur og skinku. Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Miðasala í síma 568 8000 www.HOUDINI.is mögnuð fjölskyldusýning! Nýr gemsi? Jæja, ég frétti að það ætti að vera veisla hjá Lilju um næstu helgi. Hvert ertu að fara? Ég ætla til tígrisdýranna. Ertu búinn að átta þig á því að eftir fimmtán ár verða bæði Solla og Hannes kominn í framhaldsskóla? Já, það verður skrýtið. Ég vil meira hakk og spaghettí! Ég hef komist að því að ef við herðum sultarólina, spörum og treystum á lukkuna ættum við að geta lifað sæmilegu lífi þar til þau útskrifast. Þú verður að gera betur ef þú ætlar að kæta mig. Veistur hvenær næsti strætó til Indlands kemur? Ætlar þú að bjóða einhverjum með þér? Ég má ekki tjá mig um það! Þetta var nú ansi gott svar hjá honum. Þetta þýddi „Já!“, elskan. Langar þig ekki til að spila lúftgítar? Lúftgítar? Við „Gleði- bankann“? Ég fæ gæsahúð! Ég líka! Þetta er hræði- legt. Ég náði líka í nokkur lög með Nylon en ákvað að nota það flottasta fyrir mig. Jamm. Nuke- head 3220. Hann er með geðveika hringitóna.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.