Fréttablaðið - 15.02.2005, Side 38
30 15. febrúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Lárétt: 2 fjötur, 6 mjög reið, 8 nafar, 9
fantur, 11 þessi, 12 konunafn, 14 ævi-
skeiðið, 16 í röð, 17 gyðja, 18 ábreiða, 20
ónefndur, 21 snemma.
Lóðrétt: 1 hitta, 3 forlag, 4 prýði árinn-
ar, 5 traust, 7 embættismenn, 10 eins um
n, 13 skógardýr, 15 nákomna, 16 rá, 19
skammstöfun.
Lausn
Lárétt: 2haft,6æf, 8bor, 9fól,11sú,12
agnes,14ellin,16st,17gná,18lak,20nn,
21árla.
Lóðrétt:1hæfa,3ab,4fossinn,5trú,7fó-
getar, 10lnl,13elg,15nána,16slá,19kl.
Fóstureyðingar
Dvergum eytt
í móðurkviði
síðustu tíu árin
– hefur þú séð DV í dag?
Lagið Follow með hljómsveitinni
Bang Gang hljómaði í tólfta sjón-
varpsþætti The O.C. sem var
sýndur á Fox-sjónvarpsstöðinni í
Bandaríkjunum síðastliðinn
fimmtudag.
Þátturinn sem um ræðir heitir
The Lonely Hearts Club og hljóm-
ar lagið í atriði þar sem persón-
urnar Summer og Zach ræða sam-
band sitt á hótelherbergi á Valent-
ínusardaginn. Þátturinn verður
sýndur hér á landi um næstu jól
en lagið er tekið af síðustu plötu
Bang Gang, Something Wrong.
Tónlistin sem heyrist í þessum
vinsælu unglingaþáttum þykir
mjög eftirtektarverð og reglulega
hafa verið gefnar út plötur með
lögum úr þeim. Á meðal annarra
listamanna sem hafa átt lög í þátt-
unum eru stór nöfn á borð við U2,
Interpol, Gwen Stefani, The
Thrills, Modest Mouse og The
Album Leaf. ■
Bang Gang í The O.C.
BARÐI JÓHANNSSON Lagið Follow með Bang Gang fékk að hljóma í tólfta þætti The
O.C. í Bandaríkjunum fyrir skömmu.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Valdís Óskarsdóttir.
50 ár.
Njarðvík.
Tökum á nýju myndbandi
rappsveitarinnar Quarashi við
lagið Payback lauk með allsherj-
ar drykkjukeppni á skemmti-
staðnum Prikinu í gærkvöld á
milli sveitarmeðlima og stúlkna-
gengis.
Myndbandið verður frum-
sýnt í Japan þann 21. febrúar en
Payback verður fyrsta smá-
skífulag plötunnar Guerilla
Disco sem kemur út 2. mars þar
í landi. Verður myndbandið að
öllum líkindum frumsýnt hér-
lendis um svipað leyti.
Tökur hófust á rallíkross-
brautinni í Kapelluhrauni í
fyrradag þar sem meðlimir
Quarashi öttu kappi við stúlkna-
gengið, en þrjár stúlkur voru
valdar fyrir myndbandið úr hópi
fjölda umsækjenda. Næsta at-
riði var tekið á Álftanesi í gær.
Þar keppti Ómar Swarez við
eina stúlkuna í körfubolta með
sjóinn í baksýn í miklu roki og
rigningu. Næsta atriði var tekið
upp inni á karlaklósettunum í
Laugardalshöll og það síðasta
var tekið á Prikinu.
Leikstjórar voru þeir Samúel
Bjarki Pétursson og Gunnar Páll
en þeir gerðu síðast myndband-
ið við lag Quarashi og strákanna
í 70 mínútum, Crazy Bastard.
Tökumaður var Óttar Guðnason,
sem er einn sá fremsti í faginu
hér á landi. Síðasta verkfni hans
var Hollywood-mynd Baltasars
Kormáks, A Little Trip To
Heaven.
Upphaflega átti að taka
myndbandið upp í Úkraínu en
hætt var við vegna mikils kostn-
aðar.
freyr@frettabladid.is
NÝTT MYNDBAND QUARASHI: TÖKUM LAUK Í GÆRKVÖLD
Ein allsherjar drykkjukeppni
Dótið? Scuba-Doo köfunartækið.
Sem er? Alvöru köfunartæki fyrir allt áhuga-
fólk um köfun. Köfunartækið, eða klefinn sem
er sennilega betra orð, er byggt upp eins og
hjól. Kafarinn situr á tækinu með hjálm á höfð-
inu og siglir þannig um á tveggja og hálfs
hnúta hraða. Úr tækinu eru slöngur sem flytja
súrefni af yfirborði jarðar niður í tækið Þannig
er hægt að skoða allt það sem hin dularfullu
undirdjúp hafa upp á að bjóða á einfaldan og
þægilegan hátt. Tækið er 1,35 metri á hæð,
tæpur metri á lengd og vegur rétt rúm fjörutíu
kíló með rafhlöðunni. Rafhlaðan gildir í um
einn og hálfan tíma.
Köfunarklefinn gengur fyrir rafhlöðum og er
með eindæmum umhverfisvænn.
Kostir Klefinn er einfaldur í notkun og geta
nánast allir notað hann. Hægt er að nota klef-
ann bæði á nóttu sem degi því tveir öflugir
kastarar sem lýsa upp undirdjúpin fylgja hon-
um. Í klefanum er einnig að finna klósett svo
kafarinn þarf ekki að leita langt yfir skammt.
Klefinn er til í fimm litum: appelsínugulum,
grænum, hvítum, ljósbláum og gulum.
Gallar? Slöngurnar sem flytja súrefnið í og úr
klefanum eru ekki nema tólf metra langar og
hamla því kannski að ekki sé hægt að sigla
eins langt og fólk vill. Tækið er líka heldur dýrt.
Verð? Scuba-doo tækið kostar 120 þúsund
dollara. Þar sem gengið á dollaranum er
ekki mjög hátt um þessar mundir er hægt
að fá klefann fyrir um 7,5 milljónir íslenskra
króna. Allar nánari upplýsingar um tækið
má finna á heimasíðunni www.scubadoo-
world.com.
DÓTAKASSINN
...fær Svanur Halldórsson, sem
hefur starfað sem leigubílstjóri í
ein fimmtíu ár. Geri aðrir betur.
HRÓSIÐ
QUARASHI Þeir voru vígalegir, strák-
arnir í Quarashi, við upptökur á
myndbandinu við lagið Payback.
SÖLVI BLÖNDAL Sölvi Blöndal,
forsprakki Quarashi, var með allt
á hreinu við tökur á nýja mynd-
bandinu í Kapelluhrauni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
» BETRI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á MIÐVIKUDÖGUM