Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 4

Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 60,81 61,11 113,951 14,51 78,30 78,74 10,51 10,57 9,55 9,61 8,54 8,59 0,56 0,57 91,43 91,97 GENGI GJALDMIÐLA 04.04.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 107,99 -0,01% 4 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR Fjölgun íbúa í 101: Fleiri turnar við Skúlagötuna SKIPULAGSMÁL Þrír þrettán hæða íbúðaturnar rísa á næstu misser- um við Skúlagötuna milli Vita- stígs og Barónstígs. Til að rýma fyrir þeim verður húsið sem Dominos pizzur eru í á horni Vitastígs og Skúlagötu rifið og einnig hús Kexverksmiðjunnar Frón þar við hliðina. Er þetta hluti af endurskipulagningu reitsins sem afmarkast af Hverfisgötu, Barónstíg, Skúlagötu og Vitastíg. Áætlað er að nýtt deiliskipulag af þessu svæði líti dagsins ljós á næstu mánuðum og þegar það hefur farið í gegnum hefðbundið ferli má búast við að framkvæmd- ir geti hafist. Ekki liggur fyrir hvers konar hús verða reist við Hverfisgötuna milli Bjarnaborgar og gamla Fjóssins sem hýsir nú verslun 10- 11 né heldur hvers konar hús verða reist inni á reitnum en þó má gera ráð fyrir frekar lágreist- um húsum, sem fyrst og fremst verða ætluð námsfólki. Allt í allt má reikna með að á þessu svæði rísi á næstu árum 220-240 nýjar íbúðir eða 6-800 manna byggð. - sþs Tveggja milljóna útfarargesta vænst Jóhannes Páll II páfi verður borinn til grafar á föstudaginn. Búist er við miklum fjölda trúaðra til Rómar af þessu tilefni. PÁFAGARÐUR, AP Lík Jóhannesar Páls II páfa var í gær borið, í fylgd syngjandi presta, frá Post- ulahöllinni í Páfagarði inn í Pét- urskirkjuna, þar sem það mun standa uppi uns útför páfa fer fram á föstudag. Hann verður lagður til hinstu hvílu í grafhýsi Péturskirkjunnar. Tugþúsundir trúaðra fylgdust harmi slegnir með er tólf líkburð- armenn báru lík páfa, í fylgd liðs- manna svissneska varðliðsins, á skarlatsrauðum börum yfir Pét- urstorgið, frá Clementina-salnum þar sem það hafði staðið uppi síð- an á sunnudag. Nú mun allur sá gríðarlegi fjöldi trúaðra sem vill votta páfa persónulega hinstu virðingu geta séð lík hans í Péturskirkjunni fram að jarðarförinni á föstudag. Joaquin Navarro-Valls, aðal- talsmaður Páfagarðs, sagði að Jó- hannes Páll yrði „næstum örugg- lega“ jarðaður í grafhýsinu þar sem Jóhannes XXIII páfi lá uns kistan með jarðneskum leifum hans var flutt upp á aðalgólf Pét- urskirkjunnar. Jóhannes XXIII dó árið 1963 en var fluttur árið 2000 er hann var tekinn í tölu helgra manna, þar sem margir pílagrímar vildu koma að gröf hans. Kardinálar kirkjunnar eru nú að tínast til Rómar hvaðanæva að úr heiminum, en þeirra bíður það verkefni að velja úr sínum röðum eftirmann Jóhannesar Páls II til að verða 265. arftaki fyrsta páfans, sankti Péturs. Jóhannes Páll II útnefndi í páfatíð sinni alla nema þrjá af þeim 117 kardinálum sem hafa til- kall til að setjast á rökstóla um val næsta páfa. Páfi verður jarðsettur í beinu framhaldi af útförinni. Mikill fjöldi fyrirmenna hvaðanæva að úr veröldinni hefur boðað komu sína í útförina, þar á meðal banda- rísku forsetahjónin og Karl Breta- prins, sem ákvað að af þessu til- efni að fresta um einn dag fyrir- huguðu brúðkaupi sínu og Camillu Parker-Bowles. Reiknað er með að allt að tvær milljónir manna munu mæta til útfararinnar, sem hefst kl. tíu árdegis. ■ Tilræðismaður páfa: Vill vera við útförina TYRKLAND, AP Mehmet Ali Agca, Tyrkinn sem skaut og særði páfann lífs- hættulega árið 1981, er harmi sleginn yfir fráfalli hans og vill vera við útför hans. Frá þessu greindi lögmaður hans í gær, en Agca situr í fangelsi í Tyrklandi vegna annarra brota sem hann framdi fyrir páfatilræðið. Lögmaðurinn, Mustafa Dem- irag, sagðist myndu koma ósk um- bjóðanda síns til saksóknara en viðurkenndi að litlar líkur væru á því að Agca fengi leyfi til að fara úr fangelsi til að vera við útför manns sem hann reyndi að myrða. Páfi fyrirgaf Agca og heimsótti hann í fangelsi á Ítalíu árið 1983. Hann var framseldur frá Ítalíu til Tyrklands árið 2000. ■ Páfi og Pólland: Vilja hjartað til Kraká PÓLLAND, AP Ráðamenn í Kraká, suður-pólsku borginni þar sem Jó- hannes Páll II páfi þjónaði sem prestur og erkibiskup, hafa lýst von um að heimild fáist til þess að jarðsetja hjarta hans í dómkirkju borgarinnar, þar sem jarðneskar leifar miðaldakónga og dýrlinga Póllands hvíla einnig. En tals- menn kaþólsku kirkjunnar höfn- uðu hugmyndinni strax. Hvergi naut Jóhannes Páll II meiri hylli en í fæðingarlandi sínu. Vinsældir hans þar eru slíkar, að pólskar ferðaskrifstofur og flugfé- lög eru nú í óða önn að skipuleggja aukaferðir til Rómar til að sem flestir Pólverjar geti verið við út- för páfa á föstudaginn. ■ Í VEÐBANKA Á ÍRLANDI Margir freista gæfunnar og reyna að hagn- ast á vali næsta páfa. Veðjað um arftaka: Ítali og Nígeríumaður PÁFAGARÐUR, AP Ítalskur og níger- ískur kardináli eru fremstir og jafnir á lista írsks veðbanka um það hver verður næsti páfi. Yfir fimm þúsund manns hafa þegar tekið þátt í veðmáli um þetta hjá Paddy Power-veðbank- anum, stærsta slíka fyrirtækinu á Írlandi. Ítalinn Dionigi Tetta- manzi og Nígeríumaðurinn Franc- is Arinze eru þeir tveir sem mest er veðjað á, að svo komnu máli. Að kirkjulögum verða allir kar- dinálar hennar að koma saman ekki seinna en hálfum mánuði eft- ir jarðarför páfa og velja arftaka hans á lokuðum fundi í Sixtínsku kapellunni. ■ Messur páfa: Fámennast í Reykjavík FRÁFALL PÁFA Fjölsóttasta messan sem hinn víðförli Jóhannes Páll II hélt á 26 og hálfs árs ferli sínum fór fram á Filippseyjum, þar sem fjórar milljónir manna eru taldar hafa hlýtt á orð hans, en sú fá- sóttasta fór fram á Landakotstúni í Reykjavík 2. júní 1989. Um 200 manns lögðu leið sína að Landakoti við það tækifæri, en óvenju kalt var í veðri þennan dag og margir Íslendingar kusu að fylgjast með messunni heiman frá sér, þar sem henni var sjónvarpað beint. ■ Iceland International Film Festival www.icelandfilmfestival.is 7. - 30. apríl 2005 50 frumsýningar á vikum Reykjavík-Keflavík-Akureyri-Selfoss J Ó N S S O N & L E ’M A C K S HÚS SEM HVERFA Hús Kexverksmiðjunnar Frón og húsið á horni Skúlagötu og Vitastígs víkja fyrir nýjum turnhúsum. FYRIRGEFNINGIN Páfi heimsótti Agca í fangelsi árið 1983. LITIÐ Á LÍK PÁFA Þessi ungi drengur lagði mikið á sig til að reyna að berja lík páfa augum er það var borið í Péturskirkjuna í gær. Reykjavík: Vilja bæta líðan drengja SKÓLAMÁL Vesturbæjarskóli verð- ur móðurskóli verkefnis sem kall- ast drengir og grunnskólinn og bæta á líðan drengja í skólum. Verkefninu var veitt 900 þúsund króna styrkur frá menntaráði Reykjavíkurborgar á fimmtudag. Ráðið veitti átján milljónir í styrki til þróunarverkefna í gunn- skólum borgarinnar. Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs, segir markmið verk- efnisins að skólinn tileinki sér við- horf og vinnubrögð sem tryggi velferð drengja ekki síður en stúlkna í námi. - gag

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.