Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 6
6 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Ný verslun á Stöðvarfirði:
Matvörubúð sem breytist í krá um helgar
VERSLUN Verslunin og veitinga-
húsið Brekkan opnaði á Stöðvar-
firði 1. apríl síðastliðinn en eng-
in verslun hefur verið í byggð-
arlaginu frá því í fyrrahaust. Í
Brekkunni er boðið upp á helstu
nauðsynjavörur en einnig heitar
veitingar. Eigendurnir hafa sótt
um áfengisleyfi og að því
fengnu verður rekin krá í hús-
næðinu á föstudags- og laugar-
dagskvöldum.
Brekkan er til húsa þar sem
veitingahúsið Kútterinn var til
skamms tíma. Eigendur eru
Ásta Snædís Guðmundsdóttir og
Rósmarý Dröfn Sólmundardótt-
ir og segir Ásta viðtökurnar
hafa verið afar góðar. „Við mun-
um ekki keppa við lágvöruversl-
anir í verðum og eflaust munu
Stöðfirðingar halda áfram að
versla í Bónus þegar þeir eiga
leið til Egilsstaða en vonandi hjá
okkur þess á milli. Viðtökur
Stöðfirðinga hafa verið frábær-
ar og við vorum með pitsuhlað-
borð á laugardaginn þar sem
fullt var út úr dyrum,“ segir
Ásta.
Haldin var samkeppni á
Stöðvarfirði um nafn á nýju
verslunina og bárust 80 hug-
myndir en á Stöðvarfirði eru um
90 íbúðir.
- kk
SAMGÖNGUR „Það kemur mér mjög
á óvart að heyra að ekki eigi að
ráðast í gerð Sundabrautar næstu
fjögur árin,“ segir Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, borgarstjóri. Í nýrri
samgönguáætlun er gert ráð fyrir
áframhaldandi undirbúningsvinnu
vegna Sundabrautarinnar en eng-
um framkvæmdum til ársins 2009.
Steinunn segir að úrskurðar
Umhverfisráðuneytisins vegna
kærumála sem borist hafa vegna
fyrirhugaðrar legu Sundabrautar
sé að vænta innan nokkurra vikna.
„Þegar sá úrskurður liggur fyrir
er okkur hjá borginni ekkert að
vanbúnaði að ákveða hvor leiðin
verður fyrir valinu. Við höfum oft-
ar en ekki heyrt að allt strandi á
okkur hér hjá borginni en ef rétt
reynist að ekkert fé sé eyrnamerkt
Sundabrautinni næstu árin þá hef-
ur dæmið aldeilis snúist við og það
kemur vissulega á óvart. Sam-
gönguráðherra veit fullvel að nið-
urstöðu er að vænta frá umhverf-
isráðuneytinu innan tíðar.“ -aöe
Framkvæmdum
fyrir milljarða frestað
Fresta skal áður áætluðum vegaframkvæmdum næstu tvö árin sem kosta
tæpa fjóra milljarða króna samkvæmt nýrri samgönguáætlun til ársins 2008.
Verkefni á landsbyggðinni mun fjárfrekari en á höfuðborgarsvæðinu.
SAMGÖNGUR Fjárveitingar til vega-
framkvæmda á landsvísu verða
lækkaðar um tæpa fjóra milljarða
króna næstu tvö árin en gert er
ráð fyrir að sú upphæð bætist við
framkvæmdaféð árin 2007 og
2008. Sé mið tekið af því að fresta
varð fjárveitingum til sama mál-
efnis um 1,8 milljarð króna á síð-
asta ári verða ýmsar tafir á mörg-
um brýnum verkefnum í sam-
göngumálum.
Þetta kemur fram í nýrri sam-
gönguáætlun sem lögð verður fyr-
ir Alþingi í vikunni. Er þar um
endurskoðun á eldri samgönguá-
ætlunum að ræða og kemur fram
að áætlunargerð almennt hefur
raskast talsvert sökum þess að
framkvæmdavísitölur hafa hækk-
að mun meira en verðlagsforsend-
ur fjárlaga gerðu ráð fyrir.
Fram kemur að ríkisstjórnin
mun áfram sérstaklega leggja til
fé til jarðgangagerðar. Nemur sú
upphæð tæpum sex milljörðum
króna til árins 2009 en ekki er
gert ráð fyrir nýjum jarðganga-
verkefnum á því tímabili sem
áætlunin nær yfir. Ljúka skal við
Fáskrúðsfjarðargöng og Héðins-
fjarðargöng verða boðin út síðar á
þessu ári.
Sunnlendingum verður að
hluta að ósk sinni varðandi veg-
arkaflann milli Reykjavíkur og
Hveragerðis. Gerir áætlunin ráð
fyrir að 300 milljónir króna fari
til breikkunar kafla vegarins árið
2007. Er þar um að ræða þriðju
akreinina yfir Hellisheiði og eins
á kafla fyrir neðan Litlu kaffi-
stofuna.
Meðal annarra verkefna sem
ráðast skal í næstu fjögur árin má
nefna framkvæmdir við nýja brú
og nýjan veg á Bræðratunguvegi
nálægt Flúðum. Ljúka skal endur-
byggingu hringvegarins um Norð-
urárdal í Skagafirði og árið 2008
skal hefja framkvæmdir við gerð
nýs vegarstæðis og brúar yfir
Hornafjarðarfljót en sá vegur
mun stytta Hringveginn um ellefu
kílómetra.
Samtals er ætlunin að eyða um
6,3 milljörðum króna til verkefna
á höfuðborgarsvæðinu á tímabil-
inu en 9,8 milljörðum annars stað-
ar á landinu.
albert@frettabladid.is
Hefur fréttastofa Útvarps
skaðast af fréttastjóramálinu?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ætlar þú að kaupa hlutafé í
Landssímanum?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
35%
65%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Málstofa
um Svalbarðamálið
Háskóla Íslands, Lögbergi, stofu 101,
miðvikudaginn 6. apríl 2005 kl. 12.15-13.45
Dagskrá:
12.15 Inngangur:
Tómas H. Heiðar, þjóðréttarfræðingur í
utanríkisráðuneytinu, forstöðumaður
Hafréttarstofnunar Íslands.
12.30 Fyrirlestur:
Robin Churchill, prófessor við Cardiff Law School,
Bretlandi.
13.15 Fyrirspurnir og umræður.
13.45 Slit.
Málstofan er öllum opin á meðan húsrúm leyfir.
Lagadeild
Prag
frá kr. 9.990
Prag er einn ástsælasti áfangastaður Íslendinga. Vorið í
Prag er einstaklega fagurt og veðrið milt og landið
heillandi, allur gróður í blóma og landið skartar sínu
fegursta. Heimsferðir bjóða ferðir til Prag í vor á hreint
ótrúlegu verði. Í boði eru góð 3 og 4 stjörnu hótel og
spennandi kynnisferðir með íslenskumælandi
fararstjórum.
kr. 9.990
Flugsæti með sköttum aðra leið.
11. apríl. Netbókun.
kr. 39.990
Helgarferð 14. apríl
Flug, skattar og hótel með
morgunverði í 4 nætur, 14. apríl.
M.v. 2 í herbergi á ILF Hotel.
Netbókun.
Síðustu sætin
EIGENDUR BREKKUNNAR
Ásta Snædís og Rósmarý Dröfn en á milli þeirra stendur Jóhanna Guðveig sem var þeim
stöllum innan handar við undirbúninginn.
STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR
Samgönguáætlun gerir ekki ráð fyrir að
framkvæmdir við Sundabraut hefjist næstu
árin. Steinunn segir það undarlegt enda úr-
skurðar úr kærumálum að vænta fljólega.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir:
Kemur mjög á óvart
ENGIN NÝ JARÐGÖNG
Ljúka skal gerð Fáskrúðsfjarðarganga og hefja útboð vegna Héðinsfjarðarganga á þessu ári en önnur jarðgöng eru ekki á nýrri sam-
gönguáætlun til ársins 2009. Ríkið mun þó áfram leggja til sérfjárframlög til jarðgangagerðar.
ÚTGJÖLD TIL VEGAFRAMKVÆMDA
Landið allt 16,1 milljarður
Höfuðborgarsvæðið 6,3 milljarðar
Landsbyggðin 9,8 milljarðar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
IL
M
AR