Fréttablaðið - 05.04.2005, Side 12
JÚSTJSENKÓ Í WASHINGTON
Viktor Jústsjenkó, nýr forseti Úkraínu, hitti
George W. Bush Bandaríkjaforseta í Hvíta
húsinu í gær. Bush sagði við þetta tæki-
færi að það truflaði sig ekki að Úkraínu-
stjórn hefði ákveðið að kalla úkraínska
herliðið í Írak heim. Eitt fyrsta verk
ríkisstjórnar Jústsjenkó eftir að hún tók við
völdum var að tilkynna að úkraínskt herlið
yrði kallað heim frá Írak.
12 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
VETNISBÍLAR Fjármálaráðherra hef-
ur lagt fyrir ríkisstjórnina frum-
varp sem miðar að því að lækka
verð á vetnisknúnum bílum. Að
sögn Baldurs Guðlaugssonar, ráðu-
neytisstjóra fjármálaráðuneytis-
ins, er gert ráð fyrir því í frum-
varpinu að heimilt verði að endur-
greiða tvo þriðju hluta af virðis-
aukaskatti á vetnisknúnum öku-
tækjum auk þess sem þau verði
undanþegin vörugjöldum. Þá verða
sérhæfðir varahlutir í slík ökutæki
undanþegin vörugjöldum.
Markmiðið er að gera innflutn-
ing og rekstur vetnisknúinna öku-
tækja samkeppnishæfan, en verð
þessara bíla er töluvert hærra en
hefðbundinna ökutækja, að sögn
Baldurs.
„Við erum með þessu að skapa
forsendur fyrir því að Ísland verði
samkeppnishæft í hugsanlegri
samkeppni þjóða um að fá til sín
tilraunarverkefni um rekstur á
vetnisknúnum ökutækjum. Ísland
gæti orðið vettvangur alþjóðlegra
rannsókna fyrir prófun á
vetnisknúnum bílum,“ segir Bald-
ur.
Hann segir að auk þess sé verið
að auka möguleika einstaklinga á
því að fjárfesta í vetnisknúnum
ökutækjum og þannig að taka þátt í
því tilraunaferli sem vetnisknúin
ökutæki eru nú í. - sda
Dalvegur og Hlíðahjalli:
Hættuleg gatnamót
UMFERÐARMÁL „Þarna hafa þegar
orðið árekstrar og mitt mat er að
grípa þurfi til aðgerða sem fyrst,“
segir Kjartan Benediktsson, um-
ferðarfulltrúi Landsbjargar og
Umferðarstofu.
Kjartan er þar að vísa til
hættulegra gatnamóta á mótum
Dalvegar og Hlíðarhjalla í Kópa-
vogi en háar girðingar á einkalóð-
um beggja vegna Hlíðarhjallans
byrgja ökumönnum alla sýn og
skapa hættu að hans mati. „Öku-
menn sem koma niður Hlíðar-
hjallann þurfa að fara verulega
fram á Dalveginn til að sjá aðvíf-
andi umferð og þar sem umferð
þarna er bæði þung og hröð tel ég
brýnt að bæta úr þessu sem
fyrst.“
Árekstar hafa orðið nokkrir á
þessum stað og hefur beiðni
Kjartans verið tekin fyrir hjá
bæjarráði. Hún liggur nú hjá um-
ferðarnefnd bæjarins til umsagn-
ar. -aöe
EINN VETNISVAGNANNA SEM AKA UM STRÆTI BORGARINNAR.
Íslensk yfirvöld ætla að lækka skatta og fella niður vörugjöld af vetnisknúnum ökutækjum í
því skyni að gera Ísland að vænlegri kosti fyrir alþjóðlegar tilraunir með vetnisknúin ökutæki.
Yfirvöld vilja fleiri vetnisbíla til landsins:
Skattar lækkaðir á
vetnisbílum
HÆTTULEG GATNAMÓT
Háar girðingar byrgja ökumönnum
sem koma niður Hlíðarhjalla sýn og
skapa stórhættu. Þegar hafa allmargir
árekstrar orðið þar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
KJARAMÁL Starfs-
greinasambandið ætl-
ar ekki að standa eitt
að stöðugleikanum,
segir Kristján Gunn-
arsson, formaður
sambandsins. Krafta-
verk þurfi svo for-
sendur kjarasamn-
ings félaga Starfs-
greinasambandsins
haldist. „Ég sé það
ekki gerast,“ segir
Kristján: „Verkafólk verður ekki
endalaust sett eitt fyrir vagn stöð-
ugleikans.“
Verði verðbólga
yfir 2,5 prósent í
haust og aðrir
nýir kjara-
samningar úr
takti við samn-
ing Starfs-
g r e i n a s a m -
bandsins tekur
fjögurra manna
nefnd á vegum
Samtaka atvinnu-
lífisins og Alþýðu-
sambands Íslands
hann til endurskoð-
unar og bætir hann
eða segir honum
upp. Verkalýðsfé-
lag Akraness segir
hann nú þegar
kolfallinn og
Kristján segir flest
benda til þess að grípa
þurfi til enduskoðunarákvæðisins.
Verði vinnuveitendur ekki tilbúnir
að bæta þann launamun sem mynd-
ast hafi og allar leiðir þrjóti sé verk-
fall eitt vopna sambandsins.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífisins, segir
hvorki skynsamlegt né líklegt að
laun verði hækkuð frekar. Nefndin
þurfi að skoða í haust
hvort forsendurnar
hafi staðist tæknilega
eða ekki. Þrátt fyrir
að dæmi séu um að
félög hafi samið betur
fyrir sína umbjóðend-
ur en Starfsgreina-
sambandið heyri það
til undantekninga.
Verðbólgan sé einnig
innan markmiða
Seðlabankans, sé húsnæðisliðurinn
ekki reiknaður með. Ari bendir á að
þar sem ekki hafi verið samið við
allar starfstéttir sé ekki
tímabært að
skoða hvort
f o r s e n d -
urnar séu
brostnar.
„Það er
augljóst að
laun hafa
h æ k k a ð
mikið meira
á Íslandi en í
löndunum í
kring á samn-
ingstímanum.
Þó eru laun
hærra hlutfall af
verðmætasköp-
un hér en annars
staðar. Það er
líka ljóst að
kaupmáttur hef-
ur aldrei verið
hærri á Íslandi.
Hver maður getur
því velt fyrir sér hvort líklegt sé að
viðbrögð verði enn frekari launa-
hækkanir,“ segir Ari.
„Þó að mæld kaupmáttaraukning
sé 1,4 prósent er kaupmáttaraukn-
ingin án húsnæðisliðar 2,7 prósent,“
segir Ari.
gag@frettabladid.is
Með verkfall
að vopni
Starfsgreinasambandið neitar að standa eitt að
stöðugleikanum. Ari Edwald segir hvorki skyn-
samlegt né líklegt að launin verði hækkuð í haust.
KRISTJÁN
GUNNARS-
SON
Formaður
Starfsgreina-
sambandsins.
ARI
EDWALD
Framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins.
LÖGREGLUMÁL Embætti Ríkislög-
reglustjóra hefur gert athuga-
semdir við skrif blaðsins um bíla-
mál lögreglu í gær. Í þeirri frétt
kemur fram að samkvæmt við-
miðum lögreglu í nágrannaríkjum
séu bílarnir úreltir. Telja menn
hjá Ríkislögreglustjóra að fyrir-
sagnir blaðsins séu villandi og al-
rangar.
Fréttablaðið vill árétta að
heimildir blaðsins fyrir fréttinni
eru traustar. Í henni kemur skýrt
fram að forráðamenn lögreglu
eru ekki sammála tölum blaða-
manns og ennfremur að bílamál
lögreglu hafa breyst til batnaðar
undanfarin ár.
Fyrirsagnir blaðsins eru ekki
villandi í því samhengi sem kynnt
var. Það er að segja í samanburði
við reglur nágrannaþjóða, en hafa
ber þó í huga að þarfir lögreglu
þar og hér eru mismunandi. Til
þess var ekki litið í greininni held-
ur eingöngu reglna um akstur og
aldur hverrar bifreiðar, enda eðli-
leg krafa borgaranna að lögregla í
landinu sé eins vel búin og mögu-
legt er hverju sinni. ■
Verðtrygging:
Stefna enn
að afnámi
EFNAHAGSMÁL „Málið hefur verið
tekið fyrir á þingflokksfundum og
vinna er hafin í viðskiptaráðu-
neytinu,“ segir Hjálmar Árnason,
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins.
Á stefnuskrá flokksins fyrir
yfirstandandi kjörtímabil var að
afnema verðtryggingu allra lána
skemmri en tuttugu ár en tveimur
árum síðar bólar lítið á efnum.
Hjálmar segir enn stefnt að því
innan flokksins að koma verð-
tryggingunni fyrir kattarnef á
kjörtímabilinu. „Þetta hefur mætt
mikilli andstöðu meðal annars hjá
bönkunum sem vilja meina að
slíkt leiði til vaxtahækkunar þó ég
skilji ekki hvernig þeir fá þá nið-
urstöðu. Miðað við reynslu ná-
grannalanda hefur það ekki verið
raunin.“ -aöe
Lögreglubílar:
Segja bílana ekki úrelta
LÖGREGLUBÍLL VIÐ EFTIRLITSSTÖRF