Fréttablaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 15
ÞRIÐJUDAGUR 5. apríl 2005 Róm 12. maí frá kr. 39.990 Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til að kynnast töfrum borgarinnar eilífu undir öruggri leiðsögn fararstjóra Heimsferða. Í Róm upplifir þú árþúsundamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið, auk halla og meistaraverka endurreisnartímans. Glæsilegir gistivalkostir í boði. Verð frá kr. 39.990 Flugsæti með sköttum. Netverð. Verð frá kr. 79.990 Flug, skattar, gisting á Hotel Center í 7 nætur með morgunverði og íslensk fararstjórn. Netverð. Hvítasunnuferð GEORGE W. BUSH Stjórnvöld vilja hafa puttana í kynlífsfræðslu foreldra til barna sinna. Stjórnvöld í Bandaríkjunum: Prédika hóf- semi í kynlífi Fjölmargir þrýstihópar hafa farið fram á að bandarísk stjórnvöld loki einni af nýrri vefsíðum sínum þar sem foreldrum er bent á hvernig best sé að ræða kynlíf við börn sín. Þykir efni síðunnar afar hlut- drægt en foreldar eru þar sér- staklega hvattir til að prédika bindindi og hófsemi fyrir börnum sínum þegar að kynlífi kemur. Telja ýmis samtök það gott og blessað en einnig þurfi að benda á nauðsyn getnaðarvarna ef til kyn- lífs kæmi en engar upplýsingar er að finna um slíkt. ■ Ásatrúarfélagið mun beita sér fyrir auknu jafnrétti í trúar- bragðafræðslu innan grunnskól- ans á næsta ári. Ályktun þess efn- is var samþykkt á samráðsfundi goða og Lögréttu Ásatrúarfélags- ins á dögunum. „Umræða um trúarbragða- fræðslu í skólum hefur leitt í ljós að mikið ójafnvægi er á aðkomu einstakra trúfélaga í skólunum og viljum við kynna siðfestu að heiðnum sið sem raunhæfan val- kost í stað kristinnar fermingar,“ segir Óttar Ottósson lögsögumað- ur félagsins. Ekki stendur til að svo stöddu að fara inn í grunnskólana sjálfa til að kynna ásatrú og siðfestuna heldur verða kynningafundir haldnir í húsnæði félagsins við Granda í haust þangað sem ung- mennum verður boðið að mæta ásamt foreldrum sínum. „Við höfum umburðarlyndi að leiðarljósi og þröngvum okkur ekki upp á skólana, en komum að sjálfsögðu sé okkur boðið,“ segir Óttar. - keþ Ásatrú kynnt: Val milli guðs og goða SIÐFESTA KYNNT Ásatrúarfélagið vill kynna siðfestu að heiðnum sið fyrir ungmennum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.