Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 17
Samkvæmt nýjum lögum á Bret-
landi hafa sæðis- og eggjagjafar
ekki lengur rétt til nafnleyndar,
segir á vef BBC. Börn sem verða
til með gjafasæði eða -eggjum
geta því haft upp á blóðforeldr-
um sínum þegar þau ná átján
ára aldri. Lögin eru ekki afturvirk
þannig að þeir sem þegar hafa
gefið kynfrumur sínar til að gera
öðrum kleift að eignast börn
munu ekki verða nafngreindir.
Talið er að um eitt af hverjum
sjö pörum í Bretlandi eigi við
frjósemisvandamál að stríða og
að sjö þúsund konur gangist
undir gervifrjóvgun með þeim
árangri að tvö þúsund börn
fæðast ár hvert. Helstu breyting-
ar vegna nýju laganna verða þau
að þessi börn geta haft uppi á
kynforeldrum sínum en geta
samt engar kröfur gert til þeirra,
hvorki fjárhagslegar né lagalegar.
Kynfrumugjafarnir munu hins
vegar ekki hafa möguleika á því
að finna börnin sem getin eru
með gjöfum þeirra.
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 5
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 5. apríl,
95. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 6.31 13.30 20.32
AKUREYRI 6.11 13.15 20.21
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Hlynur Sigurðsson, stjórnandi fast-
eignasjónvarpsins Þak yfir höfuðið á
SkjáEinum, hefur prófað næstum allar
íþróttir en það er ein sem stendur upp
úr.
„Ég geri nú ýmislegt mér til heilsubótar. Ég
fer meðal annars í innanhússfótbolta
tvisvar sinnum í viku. Þar hittumst við
gamlir skólafélagar, menn á besta aldri, og
spilum fótbolta sem mér finnst rosalega
skemmtilegt. Þess á milli fer ég út að
hlaupa og á sumrin fer ég reglulega í golf
og körfubolta,“ segir Hlynur sem situr svo
sannarlega ekki aðgerðarlaus í heilsubótar-
málunum.
„Mér finnst samt langskemmtilegast í
fótboltanum og líka fínt í körfuboltanum.
En fótboltinn er númer eitt, tvö og þrjú. Ég
hleyp meira af skyldurækni heldur en mér
finnist það voðalega gaman. Ég var að æfa
fótbolta með FH í gamla, gamla daga og
æfði þá líka handbolta, badminton og körfu-
bolta. Þannig að ég er búinn að vera í öllum
íþróttum,“ segir Hlynur sem hugsar líka
sitt hvað um mataræðið. „Ég er nýverið far-
inn að spá í mataræðinu og farinn að passa
mig. Ég er að reyna að hætta að sitja heima
og borða franskar kartöflur og reyni að
borða ruslfæði mjög sjaldan og borða eðli-
lega. Ég er enginn ofsatrúarmaður í þess-
um málum.“
lilja@frettabladid.is
Fótbolti númer eitt, tvö og þrjú
heilsa@frettabladid.is
Landlæknir segir á heimasíðu
sinni að mælst sé til þess að
fólk sem ferðast til Asíu forðist
fuglamarkaði, búgarða og
snertingu við lifandi hænsfugla
og aðra fugla. Ferðafólk ætti
jafnframt að neyta kjöts og
eggja sem eru vel soðin og þvo
sér vel og oft um hendur.
Ástæða þessa er fuglaflensan
sem geisar í Asíu og hefur lagt
um fimmtíu manns að velli.
Nýr hjúkrunarforstjóri Heil-
brigðisstofnunar Suðurlands er
Anna María Snorradóttir en um
nýja stöðu er að ræða. Sex
sóttu um stöðuna en starf
hjúkrunarforstjóra felur í sér
stjórn hjúkrunar á stofnuninni
og setu í framkvæmdastjórn.
Gjaldskrá tannlækna á að
vera sýnileg á tannlæknastof-
um og útdráttur úr henni á að
liggja frammi á biðstofu tann-
lækna samkvæmt samkeppnis-
lögum sem tóku gildi síðasta
haust. Þetta hefur ekki gengið
nógu vel eftir ef marka má nýja
könnun Samkeppnisstofnunar
en samkvæmt niðurstöðum
hennar var aðeins tæpur helm-
ingur tannlækna, eða um 40%,
með gjaldskrána sýnilega við-
skiptavinum. Stofnunin hvetur
tannlækna til að fara að settum
reglum.
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn
er næstkomandi fimmtudag, 7.
apríl. Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin stendur fyrir þessum
degi og að þessu sinni verður
sjónum beint að heilbrigði
móður og barns. Stofnunin hef-
ur valið deginum einkunnar-
orðin „Make every mother and
child count“. Nánari upplýsing-
ar er að finna á heimasíðu
stofnunarinnar:
http://www.who.int/world-
health-day/2005/en/.
Hlynur æfir fótbolta tvisvar í viku með gömlum skólafélögum sínum.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
LIGGUR Í LOFTINU
í heilsu
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
Dætur elta venjur mæðra sinna
BLS. 3
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
KRÍLIN
Vill einhver
gjöra svo vel og
segja mér hvort
systir mín átti
strák eða stelpu?
Hvort er ég
frændi eða
frænka?
Sæði og egg njóta ekki
nafnleyndar
BÖRN SEM VERÐA TIL MEÐ GERVIFRJÓVGUN GETA Í FRAMTÍÐINNI
HAFT UPPI Á KYNFORELDRUM SÍNUM.
Sæðisfrumur verða framvegis
merktar nafni þess sem gefur.