Fréttablaðið - 05.04.2005, Side 18

Fréttablaðið - 05.04.2005, Side 18
Stress Mikið stress getur haft skaðleg áhrif á heilsufarið og því mikilvægt að reyna að draga úr því. Mikilvægt er að hvíld sé ofarlega í for- gangsröðinni og nægur svefn ef maður er undir miklu álagi. [ ] YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103 YOGA YOGA YOGA Líkamsæfingar, öndunaræfingar slökun og hugleiðsla Sértímar fyrir barnshafandi Allir yoga unnendur velkomnir Sértímar í kraftyoga www.yogaheilsa.is Smoothies 100% ávöxtur engin aukaefni enginn viðbættur sykur arka vinnur gegn fílapenslum og bólum. Bindur bakteríur og húðflögur og dregur þær til sín. Silicol Skin Þannig getur þú haldið húð þinni mjúkri og hreinni og komið í veg fyrir bólur. Fæst í apótekum. Sykurlaus jógúrt! Hreina lífræna jógúrtin frá Biobú er framleidd án sykurs. A›eins er nota›ur lífrænn hrásykur í ö›rum jógúrt tegundum frá Biobú. Biobú ehf. • Stangarhyl 3a • Sími: 587 4500 • Netfang: biobu@biobu.is • www.biobu.is w w w .b io bu .is v ar k os in n be st i í sl en sk i b æ nd av ef ur in n Umbo›s- og sölua›ili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 Birkiaska Fjórar leiðir til hamingju Barbara Berger telur að hamingjan felist í jákvæðum hugsunum. Barbara Berger býður upp á holla skyndibita fyrir sálina í Manni lifandi miðvikudags- og fimmtudagskvöld. Barbara Berger er mörgum Íslend- ingum að góðu kunn fyrir bækur sínar Skyndibitar fyrir sálina og Fleiri skyndibitar fyrir sálina. Bar- bara kom hingað í fyrra og hélt þá fyrirlestur með Tim Ray um grund- vallarhugsunina í bókunum sem er sú að við getum þjálfað hugann líkt og við þjálfum líkamann til já- kvæðra hugsana sem gera líf okkar síðan betra og göfugra. Færri komust á fyrirlesturinn en vildu og því eru þau Barbara og Tim komin aftur til landsins og ætla að spjalla við Íslendinga um hamingjuna sem er mikið hugðarefni Barböru eins og okkar flestra. „Undanfarin ár hef ég haldið fjöldann allan af fyrirlestrum og námskeiðum og mér sýnist að fólk sé oftast nær að leita að því sama – heilsu, hugarró, ást, gróða, skemmtilegu starfi, góðum vinum og að geta lagt gott til málanna í þessum heimi,“ segir Barbara og bætir við: „Fjórar leiðir til hamingju eru hugleiðsla, mann- gæska, að hjálpa öðrum og að ná stjórn á huganum og þær eru undirstöður mannlegra gilda, sama hver bakgrunnur okkar er. Ef fólk er meðvitað um þessar leiðir, kynnir sér þær og lærir að nota þær til hins ýtrasta þá eru betri lífsgæði óum- flýjanleg.“ Bækur Barböru ganga út á það að með því að beita sjálfsaga til að breyta hugsanamynstri okkar til hins jákvæðara getum við gert lífið auðugra og betra. „Það er auðvitað hægara sagt en gert að breyta hugsanamynstri sínu en með viljan- um tekst það smám saman og í stað- inn öðlumst við sterkari sjálfs- mynd og hamingju.“ Og framtíðarsýn Barböru er einföld: „Því fleiri sem átta sig á gildi hugsana og þess að vera meðvit- aður, því nær komumst við því marki að gera heiminn að betri bústað fyrir okkur öll.“ Þeir sem vilja fræð- ast nánar um aðferðir Barböru og leiðirnar fjórar til hamingjunnar geta skellt sér á Mann lif- andi annað kvöld eða fimmtudags- kvöldið og hlustað á fyrirlestur hennar og Tim Ray sem byrjar klukkan átta. Aðgangseyrir er 3.900 krónur. Aspirín verndar karla fremur en konur fyrir hjartaáföllum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að notk- un á asperíni í smáskömmtum dregur úr hættunni á hjartaáfalli. Nýleg bandarísk rannsókn sýnir fram á að þetta mun frekar eiga við um karl- menn. Þó aspirínið geti varið konur gegn því að fá sitt annað hjartaáfall þá kemur það ekki í veg fyrir hjarta- áfall í fyrsta sinn hjá konum undir 65 ára aldri. Rannsóknin stóð yfir í tíu ár og þátt tóku næstum fjörutíu þúsund konur. Helmingur þeirra tók 100 mg af aspiríni annan hvern dag á meðan hinar fengu lyfleysu. Þær sem tóku aspirínið reyndust alveg eins líklegar til að fá hjartaáfall. Læknar eru ekki vissir um hvað veldur þessum kynja- mun en þessar fréttir eru taldar munu hafa afgerandi áhrif á hvernig læknar meðhöndla konur sem teljast í áhættuhópi fyrir hjartasjúkdóma. Aspirín hefur ólík áhrif á kynin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.