Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 19
3ÞRIÐJUDAGUR 5. apríl 2005
Frunsa?
Hefur þú prófað Oregano olíu?
FJÖLVÍTAMÍN
MEÐ GINSENG
Aukin
líkamleg orka
og andleg
vellíðan
FÆST Í APÓTEKUM,
HAGKAUP, NETTÓ,
SAMKAUP, SPARKAUP,
NÓATÚNI, ÚRVALI
OG STRAX
,
, ,
, ,
,
SÖLVI GEFUR GÓÐ RÁÐ
Morgunverðurinn
eykur fitubrennslu
Myndir þú reyna að keyra þvert yfir
landið á bílnum þínum á ef tankur-
inn væri tómur? Ef ekki þá veist þú
hvers vegna við þurfum að borða
morgunverð!
Hefur bein áhrif
á fitubrennslu
Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem
borða morgunverð eru öllu jöfnu
grennri en þeir sem gera það ekki.
Mjög líklega er þetta vegna þess að
líkaminn tekur mið af morgunverð-
inum þegar hann ìstillirî brennslu
dagsins af.
Pabbi „gamli“
Pabbi minn, sem var fyrsti viðskipta-
vinur minn í einkaþjálfun, kvartaði
alltaf yfir því að hann yrði fyrr svang-
ur ef hann borðaði morgunverð
sem og að hann borðaði greinilega
meira yfir daginn þegar hann borð-
aði morgunverð.
Ætti ekki að koma á óvart!
Þetta ætti ekki að koma okkur á
óvart þar sem brennsla líkamans
verður örari þegar við borðum
morgunverð sem, að minnsta kosti
að einhverju leyti, eykur brennslu –
og þar með einnig fitubrennslu -
líkamans. Þar með eykst þörf okkar
fyrir hitaeiningar sem veldur því að
við borðum meira yfir daginn. Þetta
eykur hins vegar ekki fitusöfnun
heldur getur flýtt mikið fyrir fitutapi,
sérstaklega ef við stundum sam-
hliða þessu reglulega líkamsrækt.
Hvað er góður morgunverður?
Mjög gott er að morgunverðurinn sé
trefjaríkur. Allt of oft gleymist að
borða nægilegt magn trefja yfir dag-
inn, en við þurfum um 30 g af trefj-
um á dag. Við þurfum trefjar úr
þessu þremur fæðuflokkum:
Kornmeti
Grænmeti
Ávextir
Heilsuráðgjafinn mælir með?
Skyr.is drykkurinn og ávöxtur er tilval-
inn morgunverður. Ef við fáum okkur
skyr og banana þá er það mjög fljót-
leg og holl máltíð sem þess vegna er
hægt að taka með sér í bílinn. Ef við
höfum lengri tíma þá getur verið
mjög gott að fá sér trefjaríkari morg-
unverð s.s. Cheerios disk með und-
anrennu, fjör- eða léttmjólk.
Einnig mæli ég með því að setja
skyr.is drykkinn, t.d. vanillu, beint út
á morgunkorn sem er hrikalega
bragðgott og hollt! Hér í World Class
Laugum, þar sem ég vinn, fá sér
margir „Boozt“ drykk á morgnana
sem er einnig mjög hollt og gott og
ætti að vera auðvelt að koma við
hvort sem er heima eða í vinnunni.
Meðlæti?
Það er tilvalið að saxa út í þetta
banana til þess að auka sætubragð,
auk þess eru bananar meinhollir, en
fyrir nammigrísi eins og mig mæli
ég með strásætu sem á ekki að vera
skaðleg líkamanum á neinn hátt sé
hennar neytt í hóflegu magni. Per-
sónulega nota ég léttmjólk en ef t.d.
mjólkuróþol er til staðar er hægt að
nota soja- eða hrísmjólk sem eru
orðnar merkilega góðar á bragðið.
Dæmi um máltíðir s.s. morgunverð,
þetta sem og önnur hollráð Sölva er
einnig að finna á vefsvæði okkar,
www.heilsuradgjof.is
Sölvi Fannar Viðarsson
Er framkvæmdastjóri Heilsuráðgjafar.
Hann hefur starfað við einkaþjálfun og
heilsuráðgjöf um árabil.
Mæður þurfa einungis að
auka grænmetisneyslu sína
til að dæturnar geri það líka.
Dætur virðast fylgja fordæmi
mæðra sinna hvað varðar neyslu á
ávöxtum og grænmeti, samkvæmt
nýrri rannsókn. Þar
að auki virtust mæður
sem borða mikið
af ávöxtum og
grænmeti vera
síður líklegri til
þess að ýta á
dætur sínar
með að borða
meira og minni
líkur voru á því
að dæturnar
væru matvandar.
Margir foreldrar
hafa áhyggjur af mat-
vendni barna sinni, en í þessari
rannsókn kom það í ljós að stúlkur
sem urðu fyrir þrýstingi frá mæðr-
um sínum með að borða voru lík-
legri til að verða matvandar. Fyrir
vikið borðuðu þær minna af ávöxt-
um og grænmeti en þær sem höfðu
heilbrigða matarlyst sem eykur
hættuna á vítamínskorti. Hins veg-
ar kom það í ljós að flestar stúlk-
urnar sem tóku þátt í rann-
sókninni skorti
nauðsynleg víta-
mín eins og kalk,
magnesíum og E-
vítamín hvort
sem þær voru
matvandar eða
ekki. Stúlkurnar
voru sjö ára þeg-
ar rannsóknin
hófst en níu ára þegar
henni lauk.
Með nuddi, hitameðferð, hollu
fæði og leirböðum hefur
Heilsustofnunin í Hveragerði
bætt andlega og líkamlega
heilsu fólks í hálfa öld.
Heilsustofnunin í Hveragerði hefur
ákveðið að bjóða almenningi að
staldra við dagstund, hvílast og losa
um spennu í líkamanum. Þar starfa
sjö löggiltir sjúkranuddarar ásamt
þaulvönu starfsfólki í sundlaug og
leirböðum. Stofnunin hefur sérhæft
sig í vatnsmeðferð og aðstaðan í
nýju baðhúsi er eins og best verður
á kosið. Tíminn sem ætlaður er al-
menningi er á laugardögum frá
klukkan 10 til 18 og afsláttur er gef-
inn fyrir hópa. Það sem er í boði er
sjúkranudd, sem skiptist í parta-
nudd, heilnudd og slökunarnudd,
einnig heilsuböð, leirböð, sund, heit-
ir pottar, víxlböð og gufa og er greitt
fyrir hverja meðferð fyrir sig.
Til að fá sem mest út úr ferðinni
er mjög gott að byrja á því að fara í
heitan pott, gufu eða gera léttar æf-
ingar í lauginni og er sú aðstaða
innifalin ef farið er í sjúkranudd,
leirböð eða heilsuböð. Sloppar og
handklæði fylgja.
Gestir geta nýtt sér aðstöðuna í
baðhúsi HNLFÍ eingöngu. Aðgang-
ur þar er 1000 kr. fyrir fullorðna og
500 kr. fyrir börn yngri en 12 ára.
Rapparinn vill setja vítamín
á markað til að endurspegla
lífsstíl sinn.
Hipp-hopp stjarnan
ógurlega 50 Cent
vill skilja við of-
beldisfulla fortíð
sína og verða tals-
maður heilsusam-
legs lífernis – með
því að setja á mark-
að sína eigin tegund
af vítamíni. 50 Cent hefur nú þegar
látið til sín taka á heilsufæðismark-
aðnum með því að hefja framleiðslu
á vítamíndrykk sem kallast
Formula 50. „Ég vildi ekki styðja
við framleiðslu áfengra drykkja og
orkudrykkir gera fólk brjálað. Ég
vildi heldur ekki taka þátt í verk-
efni sem endurspeglar ekki lífsstíl
minn. Ég æfi reglulega og held mér
í formi. Menn ættu því ekki að
verða undrandi þótt ég setji
fjölvítamín á markað,“ segir 50
Cent.
Ef mæður setja meira af grænmeti og
ávöxtum á diskinn sinn gera dæturnar
það líka.
Dætur elta matar-
venjur mæðra sinna
Sundlaugin og heitu pottarnir hafa gert
mörgum gott.
Hægt að slappa af í
nuddi og leirböðum
50 Cent vill
koma Banda-
ríkjamönnum í
gott form.
50 Cent á hollustubraut