Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 20
Bandarískir barnalæknar
telja ekki samhengi milli
mjólkur og sterkra beina.
Í rannsókn læknanna er lögð
áhersla á að borða frekar
kalkríkan mat eins og tófú en að
þamba mjólk allan daginn. Aðrar
góðar aðferðir til að verða sér
úti um kalk er að borða brokkolí,
kál eða rófur, eða drekka vítamí-
bættan ávaxtasafa. Rannsóknin
sýndi enn fremur fram á að
reglubundin líkamsrækt, útileik-
ir og leikfimisæfingar eru væn-
legasta aðferðin til góðs bein-
þroska hjá börnum og ungling-
um. Þó ber að taka það fram að
mjólkin inniheldur fjölmörg
önnur góð bætiefni en bara
kalkið svo ástæðulaust er að
draga úr neyslu hennar þó aðrir
kalkgjafar bætist við.
Tilhneigingin til líkamsrækt-
ar er arfgeng.
Eftir að rækta saman fimmtán kyn-
slóðir af tilraunarottum hafa vís-
indamenn komist að því að tilhneig-
ingin til afreka í íþróttum er arf-
geng. Svo að ef þú átt erfitt með að
ljúka langhlaupi og jafnvel að
leggja í það er líklegast að það liggi
í erfðavísum þínum frekar en vilja
og mætti.
Rottusystkini voru látin hlaupa í
hlaupahjóli og þau fráustu látin
eignast saman afkvæmi og einnig
þau sem hlupu hægast. Eftir að
þetta hafði verið endurtekið kyn-
slóðum saman voru fyrrnefndar
niðurstöður ljósar: þær rottur sem
áttu kyn til spretthlaupa voru mun
líklegri til að vera fótfráar en hinar.
Þær voru líka með sextán prósent
stærri hjörtu og sautján prósent
stærri lungu en frændur þeirra og
frænkur.
Auðvitað er erfitt að færa slíkar
niðurstöður yfir á menn en þó má
draga þær ályktanir að þessar rann-
sóknir komi að góðum notum við
rannsóknir á ýmsum hjarta- og önd-
unarfærasjúkdómum í fólki, sem og
á áhuga og áhugaleysi á íþróttum.
4 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Mjólkin ekki endilega
beinhollust af öllu
Börn sem borða mjólkurvörur eru ekkert endilega með sterkari bein, samkvæmt nýj-
um rannsóknum.
Rúsínukex úr lífrænt ræktuðu hráefni.
Enginn hvítur sykur - engar hertar fitur.
Fæst í heilsubúðum og heilsuhillum
matvöruverslana
Kárastíg 1, 101 Rvík, S: 562 4082
Sérverslun með lífrænt ræktaðar vörur
Bio-Rosino
Borgartúni 24
Opið virka daga kl. 10–20
laugardaga kl. 11–17
Heilsuvörur
og matstofa
Laugavegi 2 - 101 Reykjavík
Sími 552 1103 - www.jurtaapotek.is
Opið: Virka daga 10-18
Laugardaga 11-14
Vilt þú „trimma“
heima, í vinnunni
eða upp í rúmi?
Erum að fá nýja sendingu
af hinu geysivinsæla
GymForm/Stratatæki.
Magabelti og 8 stk. blöðkur
saman í pakka með tösku
á aðeins 28.000 kr.
Einnig buxur með
innbyggðu stratatæki á
aðeins 18.000 kr.
Upplýsingar í síma 699 6906
Sendum í póstkröfu hvert á land
sem er.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
ÞRIÐJUDAGUR
Hlaupahneigð er arfgeng hjá rottum
Sófanagdýr og afreksrottur
Íslensk landnámshæna – heilbrigð
og ekki með fuglaflensu.
Ekki með
fuglaflensu
Íslenska landnámshænan
er fullfrísk.
Í frétt um fuglaflensuna sem geis-
ar í Asíu og birtist í Fréttablaðinu
fyrir viku fylgdi mynd af íslensku
landnámshænunni. Jóhanna
Harðardóttir, talsmaður Eigenda-
og ræktendafélags landnáms-
hænsna, hafði samband við blað-
ið og vildi árétta að íslenska land-
námshænan hefur ekki greinst
með téðan sjúkdóm.
Lýtaaðgerðir
eru faraldur
Sarah Jessica Parker er um
það bil að láta undan hóp-
þrýstingi í Hollywood.
Leikkonan geðþekka Sarah
Jessica Parker viðurkenndi nýlega
í blaðaviðtali við Reveal að lýtaað-
gerðir freisti hennar. Hún segir
það aðallega vera vegna þrýstings
frá öðrum stjörnum vestan hafs.
Leikkonan segist aldrei hafa lagst
undir hnífinn en játar að vera um-
kringd leikkonum sem hafa gert
það. „Ég hef ekki fengið mér
Botox, kollagen eða neitt. Ég er
með línur og ef sumir af jafnöldr-
um mínum væru ekki
búnir að fara í að-
gerð þá myndi
ég ekki hugsa
um þetta. Það er
erfitt að sitja í
herbergi með
fólki sem er
yngra og
eldra en ég
sem eru ekki
með neinar línur.
Þetta er eins og
faraldur,“ segir
Sarah.