Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 27
Birgitta Haukdal, söngkona Íra-
fárs, mun hlaupa í skarðið fyrir
Sveppa í þættinum Strákarnir á
Stöð 2 í fyrsta sinn í kvöld en ekki
annað kvöld eins og kom fram í
Fréttablaðinu á dögunum. Síðari
þátturinn með Birgittu verður síð-
an á dagskrá annað kvöld.
Gaman verður að sjá hvort
Birgitta þurfti að fækka fötum og
skella sér í baðkarið alræmda í
kvöld því ef áskorunarhjólið lendir
á andliti Sveppa þarf hún að súpa
seiðið af því.
Sveppi er um þessar mundir að
æfa fyrir leikritið Kalli á þakinu
sem verður frumsýnt í lok apríl og
þarf því að taka sér pásu frá Strák-
unum bæði í þessari viku og þeirri
næstu. Þá verður það enginn annar
en Logi Bergmann Eiðsson, frétta-
maður hjá Ríkissjónvarpinu, sem
mun feta í fótspor Birgittu sem
gestastjórnandi. Hann gæti einnig
þurft að dýfa tánni ofan í baðkarið
en sjónvarpsáhorfendur þurfa að
bíða aðeins lengur eftir því að sjá
hvort af því verði. ■
■ SJÓNVARP
Bjorn Almroth, einn af aðalleikur-
um myndarinnar A Hole in my He-
art og Mark Vicente, einn af þrem-
ur leikstjórum What the #$*! Do We
Know? munu heimsækja Ísland um
næstu helgi í tilefni af sýningum
myndanna á Iceland International
Film Festival sem hefst á fimmtu-
dag.
A Hole in my Heart er leikstýrt
af Lukas Moodysson sem á meðal
annars að baki myndirnar Til-
sammans, Fucking Åmål og Lilya 4-
ever. Myndin fjallar um fjórar utan-
garðsmanneskjur sem kúldrast í lít-
illi blokkaríbúð við drykkju og ann-
an ólifnað. Þær eiga sér drauma
eins og og aðrir og ákveða að heima-
gerð klámmynd sé rétta leiðin til að
slá í gegn. Bjorn Almroth, sem er 19
ára, leikur soninn sem þarf að horfa
upp á pabba sinn og tvo vini hans
hella sér út í gerð klámmyndarinn-
ar og sjá allt smám saman leysast
upp í vitleysu.
What the #$*! Do We Know? er
blanda af leikinni mynd, heimildar-
mynd og teiknimynd. Fjallar hún að
mestu leyti um tilgang lífsins og
skammtafræði. Var hún fjármögn-
uð af leikstjórunum þremur því
enginn hafði trú á að hún myndi öðl-
ast vinsældir.
Bjorn Almroth mun svara spurn-
ingum áhorfenda á sýningu á A Hole
in my Heart næsta föstudag kl.
22:00 í Háskólabíói en daginn eftir
mun Mark Vicente svara spurning-
um á sýningu What the #$*! do we
Know? kl. 20:00 í Regnboganum. ■
BJORN ALMROTH Almroth í hlutverki sínu í myndinni A Hole in my Heart.
Góðir gestir á
kvikmyndahátíð
■ KVIKMYNDIR
Fara Birgitta og
Logi í bað?
LOGI BERGMANN EIÐSSON Logi gæti
þurft að demba sér ofan í baðkarið al-
ræmda í næstu viku.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR