Fréttablaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 05.04.2005, Blaðsíða 27
Birgitta Haukdal, söngkona Íra- fárs, mun hlaupa í skarðið fyrir Sveppa í þættinum Strákarnir á Stöð 2 í fyrsta sinn í kvöld en ekki annað kvöld eins og kom fram í Fréttablaðinu á dögunum. Síðari þátturinn með Birgittu verður síð- an á dagskrá annað kvöld. Gaman verður að sjá hvort Birgitta þurfti að fækka fötum og skella sér í baðkarið alræmda í kvöld því ef áskorunarhjólið lendir á andliti Sveppa þarf hún að súpa seiðið af því. Sveppi er um þessar mundir að æfa fyrir leikritið Kalli á þakinu sem verður frumsýnt í lok apríl og þarf því að taka sér pásu frá Strák- unum bæði í þessari viku og þeirri næstu. Þá verður það enginn annar en Logi Bergmann Eiðsson, frétta- maður hjá Ríkissjónvarpinu, sem mun feta í fótspor Birgittu sem gestastjórnandi. Hann gæti einnig þurft að dýfa tánni ofan í baðkarið en sjónvarpsáhorfendur þurfa að bíða aðeins lengur eftir því að sjá hvort af því verði. ■ ■ SJÓNVARP Bjorn Almroth, einn af aðalleikur- um myndarinnar A Hole in my He- art og Mark Vicente, einn af þrem- ur leikstjórum What the #$*! Do We Know? munu heimsækja Ísland um næstu helgi í tilefni af sýningum myndanna á Iceland International Film Festival sem hefst á fimmtu- dag. A Hole in my Heart er leikstýrt af Lukas Moodysson sem á meðal annars að baki myndirnar Til- sammans, Fucking Åmål og Lilya 4- ever. Myndin fjallar um fjórar utan- garðsmanneskjur sem kúldrast í lít- illi blokkaríbúð við drykkju og ann- an ólifnað. Þær eiga sér drauma eins og og aðrir og ákveða að heima- gerð klámmynd sé rétta leiðin til að slá í gegn. Bjorn Almroth, sem er 19 ára, leikur soninn sem þarf að horfa upp á pabba sinn og tvo vini hans hella sér út í gerð klámmyndarinn- ar og sjá allt smám saman leysast upp í vitleysu. What the #$*! Do We Know? er blanda af leikinni mynd, heimildar- mynd og teiknimynd. Fjallar hún að mestu leyti um tilgang lífsins og skammtafræði. Var hún fjármögn- uð af leikstjórunum þremur því enginn hafði trú á að hún myndi öðl- ast vinsældir. Bjorn Almroth mun svara spurn- ingum áhorfenda á sýningu á A Hole in my Heart næsta föstudag kl. 22:00 í Háskólabíói en daginn eftir mun Mark Vicente svara spurning- um á sýningu What the #$*! do we Know? kl. 20:00 í Regnboganum. ■ BJORN ALMROTH Almroth í hlutverki sínu í myndinni A Hole in my Heart. Góðir gestir á kvikmyndahátíð ■ KVIKMYNDIR Fara Birgitta og Logi í bað? LOGI BERGMANN EIÐSSON Logi gæti þurft að demba sér ofan í baðkarið al- ræmda í næstu viku. » FA S T U R » PUNKTUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.