Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 28

Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 28
Í gær voru liðin tíu ár frá því að Ragnar Th. Sigurðsson ljós- myndari og Ari Trausti Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur komust á norðurpólinn, fyrstir Íslendinga. Báðir komu þeir af fjöllum þegar þegar þeir voru spurðir hvernig þeir ætluðu halda upp á daginn. „Ja, hérna eru komin tíu ár? Naumast að tíminn líður,“ segir Ari Trausti. „Ég held að það sé alveg gráupp- lagt að fá sér einn kaldan í til- efni dagsins,“ segir Ragnar hlæjandi. Ari og Ragnar voru hálfan mánuð á leið út á pólinn, en ferðalagið var sambland af flug- ferðum, sleðaferðum og göng- um. „Við vorum því ekki fyrstu Íslendingarnir til að ganga á pól- inn, það var Haraldur Örn Ólafs- son,“ segir Ari. Ragnar og Ari hafa þekkst lengi; unnið og ferðast mikið saman á fjarlægum slóðum, oft- ar en ekki þar sem fimbulkuldi er. Ari segist þó aldrei hafa greint þennan áhuga sinn sér- staklega. „Þetta er sambland af mörgu. Ég er alinn upp við ferðalög á hálendi, fór í nám sem tengdist fjöllum og svo er þetta auðvitað bara hrein ævin- týramennska.“ Ragnar segist kunna betur við sig á köldum slóðum en heitum. „Ég þoli ekki við í miklum hita og vill frekar vera kappklæddur en á stuttbux- um.“ Þeir kumpánar eru þó sam- mála um að Norðurpóllinn sé ekki fjörlegasti staðurinn á jörð- inni. „Þeir eru vissulega til meira spennandi,“ segir Ari Trausti. „Toppurinn væri K2. Það er næststærsta fjall heims en mun erfiðara að klífa það en Everest-fjall.“ Báðir eru þeir fé- lagar spenntir fyrir suðurskaut- inu og stefna þangað í náinni framtíð. Ari Trausti gerir þó ráð fyrir að fara til Suður-Ameríku og Kákasusfjalla áður en að því kemur. Ragnar stefnir á suður- skautið strax næsta vetur. „Þetta mun skýrast á næstunni en það væri algjör draumur að komast þangað með myndavél- ina.“ ■ 20 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR GIACOMO CASANOVA (1725-1798) fæddist á þessum degi. Ekki fjörlegasti staður jarðar TÍMAMÓT: FYRSTIR ÍSLENDINGA Á NORÐURPÓLINN „Hjónabandið er grafhýsi ástarinnar.“ Ítalski rithöfundurinn og hjartaknúsarinn Giacomo Casanova framdi nokkur „grafarrán“ um ævina og það kom honum oft um koll að hann lét hjúskaparstöðu þeirra kvenna sem hann hreifst af sig litlu varða. timamot@frettabladid.is JARÐARFARIR 11.00 Hannes Alfonsson, blikksmiður, Hamraborg 30 A, Kópavogi, verð- ur jarðsunginn frá Kópavogskirkju. 11.00 Ingibjörg Adolfsdóttir, Austur- brún 4, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Fella- og Hólakirkju. 11.00 Svana R. Guðmundsdóttir, Tún- götu 23, Suðureyri, verður jarð- sungin frá Hafnarfjarðarkirkju. 13.00 Ásta Eygló Stefánsdóttir, fv. bankastarfsmaður, leiðsögumaður og frönskukennari, Neshaga 15, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju. 13.00 Helga Sigríður Gísladóttir, Hæð- argarði 2, Reykjavík, verður jarð- sungin frá Bústaðakirkju. 13.00 Margrét Unnur Sveinsdóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarð- sungin frá Fríkirkjunni í Hafnar- firði. ANDLÁT Salbjörg Magnúsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík, lést laugardaginn 26. mars. Svokallað „hitt“ Femínistafélags Íslands verður haldið klukkan átta í kvöld á efri hæð Kaffi Sól- ons í Reykjavík, en svo eru nefnd- ir umræðufundir félagsins. Að þessu sinni verður tekin til um- ræðu Pekingáætlunin – fram- kvæmdaáætlun Sameinuðu þjóð- anna um málefni kvenna, sem rædd var í New York í síðasta mánuði í tilefni 10 ára afmælis áætlunarinnar. „Þúsundir fulltrúa ríkisstjórna og frjálsra félagasamtaka frá öll- um heimshornum sóttu tveggja vikna langan fund Kvennanefnd- ar Sameinuðu þjóðanna sem helg- aður var tímamótunum,“ segir í tilkynningu félagsins og tekið fram að fulltrúar héðan sem fylgdust með fundinum segi frá honum. Til máls taka Birna Þórarins- dóttir, framkvæmdastýra UNI- FEM á Íslandi; Guðrún Jónsdóttir, hjá Stígamótum; Friðbjörg Ingi- marsdóttir, úr stjórn KRFÍ; og Margrét Pétursdóttir, ráðskona í Femínistafélaginu. ■ AFMÆLI Bárður Árni Stein- grímsson, Brekkubraut 3, Keflavík, er sextugur í dag. Hann tekur á móti gestum í Háskóla Íslands frá hálf sjö til hálf níu „að hætti Sjáv- ardýrasala.“ Gísli J. Ástþórsson blaðamaður og rit- höfundur er 82 ára í dag. Hjálmar W. Hannesson sendiherra er 59 ára í dag. Arnþór Helgason framkvæmdastjóri Örykjabandalags Íslands er 53 ára í dag. Gísli Helgason tónlistarmaður er 53 ára í dag. Lilja Þórisdóttir leik- kona er 51 árs í dag. Sigurlás Þorleifsson knattspyrnumaður er 48 ára í dag. Eggert Skúlason fyrr- um fréttamaður, fram- kvæmdastjóri EMAX, er 42 ára í dag. ARI TRAUSTI ÁSAMT SAMFERÐAMÖNNUM Ari ferðaðist mikið með foreldrum sín- um og er haldinn mikilli ævintýraþrá. Þennan dag árið 1955 sagði Winston Churchill af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Hann var 81 árs og dró sig í hlé sökum heilsubrests. Arftaki hans var Anthony Eden. Winston Churchill hóf afskipti sín af stjórn- málum árið 1900 og settist á þing fyrir Íhaldsflokkinn. Sex árum síðar sagði hann sig úr flokknum og gekk til liðs við Frjálslynda, en þegar hann varð forsætisráðherra árið 1940 hafði hann gengið aftur í Íhaldsflokkinn. Á meðan seinni heimsstyrjöldinni stóð sat samsteypustjórn í Bretlandi sem Churchill veitti forsæti og er hans jafnan minnst fyrir staðfestu sína á stríðsárunum. Samsteypustjórnin splundraðist í stríðslok og Churchill var beðinn um að mynda nýja ríkis- stjórn sem skyldi sitja fram að kosn- ingum seinna um árið. Verkalýðs- flokkurinn gjörsigraði Íhaldsflokkinn hins vegar í kosningunum árið 1945 og Clement Attlee varð forsætisráð- herra. Hann sat til ársins 1951 þegar Churchill tók aftur við sem forsætis- ráðherra, þá 77 ára gamall. Hann var aðlaður árið 1953 fyrir þjónustu sína við land sitt og þjóð. Churchill sat áfram á þingi eftir að hann steig úr stóli forsætisráðherra og settist ekki í helgan stein fyrr en árið 1964. Hann lést á heimili sínu í janúar árið 1965, níræður að aldri. Árið 2002 var Win- ston Churchill útnefndur merkilegasti Breti allra tíma í skoðanakönnun sem rúmlega milljón manns tóku þátt í. WINSTON CHURCHILL ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR 1939 Öllum þýskum börnum á aldrinum 10 til 13 ára er gert að starfa í Hitlersæsk- unni. 1940 Hægri umferð samþykkt á Alþingi. Skipta átti úr vinstri umferð í ársbyrjun 1941, en hætt við það vegna her- náms Breta, sem vanir voru vinstri umferð. 1968 Lög um lækkun kosninga- aldurs til Alþingis úr 21 ári í 20 ár staðfest. 1973 Pierre Messmer verður for- sætisráðherra í Frakklandi. 1976 Íslendingar bera fram kær- ur í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna árekstra við Breta á Íslandsmiðum. 1986 Flugvél ferst í Ljósufjöllum á Snæfellsnesi, fimm farast, en tveir komast af mikið slasaðir. Vélin var á leið frá Ísafirði til Reykjavíkur. Churchill segir af sér Totus tuus (Allur þinn – einkunnarorð páfa) Með sorg í huga en jafnframt þakklæti fyrir trúa þjónustu hans minnumst við Jóhannesar Páls II. páfa. Hann leiddi kaþólsku kirkjuna frá 2. október 1978 til 2. apríl 2005 sem staðgengill Jesú Krists á jörðu. Við munum minnast hans í heilagri sálumessu í Dómkirkju Krists konungs í Landakoti miðvikudaginn 6. apríl nk. kl. 18.00. Allir þeir sem vilja kveðja hinn heilaga föður eru hjartanlega velkomnir til þeirrar athafnar. Reykjavík, 3. apríl 2005, Jóhannes Gijsen Reykjavíkurbiskup Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna fráfalls og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Friðriks Guðmundssonar fv. tollvarðar, Sunnuvegi 9, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á 3. hæð á Sólvangi fyrir frábæra umönnun og vináttu árin sem hann dvaldi þar. Guð blessi ykkur öll. Elín Kristbergsdóttir, Kristján S. Sigurgeirsson Þorgerður Erlendsdóttir Friðrik Friðriksson Guðrún Helga Sigurðardóttir Herborg Friðriksdóttir Guðjón Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, Erlendur Sigmundsson fyrrum prófastur og biskupsritari, andaðist föstudaginn 1. apríl. Margrét Erlendsdóttir Helgi Hafliðason Álfhildur Erlendsdóttir Eymundur Runólfsson Pekingáætlunin til umræðu WWW.FEMINISTINN.IS Á vef Femínista- félags Íslands er hægt að lesa sér til um „hittið“ sem félagið stendur fyrir í kvöld. RAGNAR TH. SIGURÐSSON Líkar mun betur við kaldar slóðir en heitar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R AG N AR T H . S IG U RÐ SS O N

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.