Fréttablaðið - 05.04.2005, Page 32
24 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Það er fátt sem mér
finnst jafn viðbjóðs-
legt og fjöldasam-
komur og þegar há-
tíðarhöld í miðborg
Reykjavíkur eru
frátalin leiðast mér
engar samkomur
meir en tónleikar.
Það er aðeins ein
hljómsveit í heiminum
sem ég hef raunverulegan áhuga á
að sjá á sviði og það er „eitís“ hljóm-
sveitin Duran Duran. Ég var nú
löngu búinn að gefa upp alla von um
að sá draumur yrði að veruleika en
nú er allt útlit fyrir að sveitin sé að
koma hingað í sumar. Þetta er að
vísu 20 árum of seint en ég mæti
samt enda verður þetta æði.
Illar tungur hafa í gegnum árin
reynt að gera það hallærislegt að
fíla Duran Duran en ég lýsi yfir
fullum stuðningi við fimmmenning-
ana frá Birmingham eins og gamla
fólkið gerir við Presley, Rolling Sto-
nes og Bítlana. Ég er meðlimur í fé-
laginu Bandalag snáksins, samtök
fólks sem þorir að gangast við Dur-
an Duran en það gerum við ekki síst
vegna þess að framlag þeirra er
nefnilega merkilegra en margir
gera sér grein fyrir og þeir báru
höfuð og herðar yfir alla aðra í laga-
smíðum, textagerð og tónlistar-
myndböndum á níunda áratug síð-
ustu aldar sem er stórlega vanmetið
tímabil í tísku- og tónlistarsögunni.
Á þessum árum átti maður dag-
lega von á dauða sínum í kjarnorku-
styrjöld. Ronald Reagan var forseti
Bandaríkjanna og leit á Rambo sem
uppskrift að lausn milliríkjadeilna
og heimurinn var allur almennt á
heljarþröm. Alnæmið skaut upp
kollinum og það var allt að fara til
andskotans en á meðan kraumaði
lífsgleði í bland við rómantískan
trega í tónlistinni.
Lífið gengur í hringi og nú er allt
aftur að fara til andskotans og þá
koma þessar hetjur mínar loksins
til landsins. Þetta er karma og í
sumar fer ég á popptónleika og get
sungið með vegna þess að ég kann
alla textana. Þetta er nefnilega þeg-
ar upp er staðið yndislegt líf þó
Bush hafi tekið við af Reagan,
Osama bin Laden gangi laus og
Kárahnjúkar séu að sökkva. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON SÉR FRAM Á AÐ GAMALL DRAUMUR MUNI RÆTAST.
Bandalag snáksins
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Frode Överli
Passaðu
þig á hvað
þú biður
um!
Þetta er
allt í lagi....
ég þarf
hana ekki!
Jæja.....
er það rétt að
fjarstýringin er
biluð?
ILMAR EINS OG KJÚKLINGASÚPA
Palli! Ekki hvolfa
mjólkinni svona í þig!
Palli, hvolfdu mjólkinni
frekar í þig!
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
LEIÐIN-
LEGT!
Haltu kjafti
og haltu
áfram pípinu.
Kalli! Viltu
að ég roti
þig?
Broip er
bara
fínt! Allt
í góðu!
Fyrir fólk með liðkvilla
vegna slitgigtar eða
yfirálags
Fæst í apótekumSJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »