Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 33
25ÞRIÐJUDAGUR 5. apríl 2005
■ TÓNLEIKAR
STÓRA SVIÐ
DRAUMLEIKUR
e. Strindberg. Samstarf: Leiklistardeild LHÍ.
Lau 9/4 kl 20, Su 10/4 kl 20, Fi 14/4 kl 20,
Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT,
Síðustu sýningar
HÍBÝLI VINDANNA
leikgerð Bjarna Jónssonar eftir
vesturfarasögum Böðvars Guðmundssonar
Fi 7/4 kl 20, Fö 8/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20,
Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20,
Lau 30/4 kl 20 - Fáar sýningar eftir
HÉRI HÉRASON
e. Coline Serreau
Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
TERRORISMI
e. Presnyakov bræður
Aðalæfing Fi 14/4 kl 20 - kr. 1.000,-
Frumsýning Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT,
Mi 20/4 kl 20
SEGÐU MÉR ALLT
e. Kristínu Ómarsdóttur
Lau 9/4 kl 20, Su 17/4 kl. 20
AUSA eftir Lee Hall
Í samstarfi við LA.
Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning
- Ath: Miðaverð kr. 1.500
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Einleikur Eddu Björgvinsdóttur.
Fi 14/4 kl 20 - UPPSELT,
Fö 15/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 16/4 kl 20, - UPPSELT,
Su 17/4 kl 20, - UPPSELT,
Mi 20/4 kl. 20 - UPPSELT,
Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 23/4 kl 20 - UPPSELT,
Lau 29/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 30/4 kl 20
SVIK
eftir Harold Pinter
Samstarf: Á SENUNNI,SÖGN ehf. og LA
Lau 9/4 kl 20
Síðasta sýning
RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ
e. Önnu Reynolds.
Í samstarfi við leikhópinn KLÁUS.
Aðalæfing fi 7/4 kl 20 - kr. 1.000
Frumsýning fö 8/4 kl 20 - UPPSELT
Fö 15/4 kl 20, Lau 16/4 kl 20
Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3, 103 Reykjavík
Miðasölusími 568 8000 • midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin: 10-18 mánudaga og þriðjudaga,
10-20 miðviku-, fimmtu- og föstudaga 12-20 laugardaga og sunnudaga
LEIKHÚSVEISLA FYRIR HÓPA
- UPPSKRIFT AÐ SKEMMTILEGU KVÖLDI
Kl 18:00 Gleðistund í forsal - veitingasalan opin
Kl 18:30 Kynnisferð um leikhúsið
- kynning á verki kvöldsins
Kl 19:00 Matseðill kvöldsins
Kl 20:00 Leiksýning kvöldsins
NÆRING FYRIR SÁL OG LÍKAMA - BÓKIÐ Í TÍMA
Börn 12 ára og yngri fá frítt í
Borgarleikhúsið í fylgd fullorðinna
- gildir ekki á barnasýningar
MIÐASALAN ER HAFIN
á www.borgarleikhus.is
og í síma 568 8000
Fimmtudagur 21. apríl FRUMSÝNING kl. 14.00
- Sumardagurinn fyrsti
Laugardagur 23. apríl 2. sýning kl. 14.00
Sunnudagur 24. apríl 3. sýning kl. 14.00
Sunnudagur 1. mai 4. sýning kl. 17.00
Sunnudagur 1. mai 5. sýning kl. 14.00
Fimmtudagur 5. maí 6. sýning kl. 14.00
- Uppstigningardagur
Laugardagur 8. mai 7. sýning kl. 14.00
Sunnudagur 9. mai 8. sýning kl. 14.00
Sýnt í
Borgarleikhúsinu!
Leikfélagið Snúður og Snælda sýnir:
Vegna fjölda áskorana
verða tvær aukasýningar
Föstudaginn 15. apríl kl. 20
Laugardaginn 23. apríl kl. 20
Tenórinn Ástandið
Sögur kvenna
frá hernámsárunum
Síðasta sýning miðvikudag
6. apríl kl. 14
Tangósveit Lýðveldisins
í kvöld kl. 20
Tangóball
VALLARGERÐISBRÆÐUR Upprennandi
karlakvartett.
Drengja-
kvartett í
Salnum
Þeir nefna sig Vallargerðisbræð-
ur, eru aðeins sextán ára og ætla
að feta í fótspor merkisbera ís-
lenskra karlakvartetta.
Eysteinn Hjálmarsson, Rík-
harður Þór Brandsson, Þorkell
Helgi Sigfússon og Örn Ýmir
Arason létu það ekkert aftra sér
frá því að mæta á æfingar með
Skólakór Kársness þótt þeir
færu í mútur fyrir fáeinum miss-
erum.
Þórunn Björnsdóttir kórstjóri
tók þá á séræfingar, og smám
saman kom í ljós að raddir þeirra
hentuðu ákaflega vel til þess að
stofna nýjan karlakvartett.
Þeir komu fyrst fram sem
leynigestir á tónleikum Álfta-
gerðisbræðra í Salnum á síðasta
ári og vöktu þvílíka lukku að
ekki varð aftur snúið.
Í kvöld halda þeir sína fyrstu
eiginlegu tónleika í Salnum og
hefjast þeir klukkan 20. ■
■ ■ KVIKMYNDIR
19.30 Fjölmargar fjalla- og ævin-
týramyndir verða sýndar í Smárabíói
í kvöld og annað kvöld á hinni ár-
legu Banff fjallamyndahátíð á veg-
um Íslenska alpaklúbbsins. sem
valdar úr þúsundum innsendra
mynda. Sumar myndanna eru
æsipennandi og fara með fólk á ystu
mörk.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Breski píanóleikarinn Philip
Jenkins og klarinettuleikarinn Einar
Jóhannesson leika báðar klarinettu-
sónötur Johannesar Brahms á tón-
leikum í Norræna húsinu. Einnig
leika þeir Fantasíu op 73 eftir Robert
Schumann og fjöruga ungverska
dansa eftir ungverska tónskáldið
Draskóczy.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Ragnhildur Arnljótsdóttir
ráðuneytisstjóri flytur fyrirlestur á
Lögfræðitorgi Háskólans á Akureyri,
sem haldið verður í stofu L102 Sól-
borg v/Norðurslóð, um áfanga sem
náðst hafa á jafnréttissviðinu hér á
landi og stöðu Íslands og annarra
þjóða á þessu sviði.
Það er alveg kjörið að færa upp
leiksýningu fyrir börn byggða á æv-
intýraheimi hins ástsæla danska
skáldjöfurs H.C. Andersen á 200 ára
afmælisárinu. Engin smá hátíð sem
Danirnir slógu upp til að minnast
hans. Það er heldur enginn smá
sjóður sem hann hefur skilið eftir
sig og í þann sjóð hafa margir lista-
menn sótt. Sögur hans hafa verið
uppspretta leiksýninga, óperusýn-
inga, kvikmynda, teiknimynda, ball-
etta og svo mætti lengi telja. Þeir
Ármann, Sævar og Þorgeir eru
makalaust þríeyki sem hefur marga
fjöruna sopið í leiklistarheiminum
og fá hér verðugt tækifæri til að
vinna handrit upp úr sagnasjóði
H.C. Andersen. Samstarf þeirra
virðist alltaf gefast vel og hér eru
þeir mættir, góðglaðir, hnyttnir,
fyndnir, með prýðis ljóðlínur og lag-
línur á hraðbergi. Í eðli sínu eru
sögur H.C. Andersens afar leikræn-
ar og þær liggja því vel fyrir hvers
konar sviðsetningum. Enda er það
ekki síst upplifun hans af leikhúsi í
æsku sem verður honum innblástur
til að skrifa. Sögur hans enn í dag
flytja okkur sígildan boðskap um
ótal margt sem er samofið mann-
legu eðli og birtist í því hvernig
maðurinn hegðar sér við hinar
ýmsu kringumstæður og sýna okk-
ur svo margt sem við þekkjum en
erum oft svo blind á í eigin fari. En
ekki síst það sem Hans Christian
Andersen sjálfur þurfti að upplifa á
sinni tíð og okkur er tíðrætt um á
vorum dögum – einelti og fordóma.
Kannski er hann að segja okkur að
það sé manninum nauðsynlegt að
hlúa að sínum dýpsta kærleik án til-
lits til þess hvað öðrum kunni að
finnast um það og aðeins þannig öðl-
ast hann frelsið sem hann leitar svo
ákaft að eins og litli ljóti andarung-
inn. Leiðina til sjálfs sín finnur
hann aðeins upp á eigin spýtur.
Þjóðleikhúsið hefur fengið
Ágústu Skúladóttur það verkefni að
setja saman leikhóp til að sviðsetja
verk þeirra félaga sem þeir byggja
á sex völdum ævintýrum. Úr mörgu
er að velja og má vera að sitt sýnist
hverjum um það val. Það eru engu
að síður þessi sex sem lifna á sviði
Þjóðleikhússins fyrir tilstilla frá-
bærra leikara og hljóðfæraleikara.
Leikmynd Frosta Friðrikssonar er
ævintýralega falleg en samt svo
einföld og lýsingin bætir um betur.
Litir í búningum eru sérlega smekk-
legir og úthugsaðir. Hreyfingar
leikaranna, söngur, leikur, persónu-
sköpun og leikgleði er til fyrir-
myndar í þessari sýningu og vinna
leikstjórans þess eðlis að ekki er
annað hægt en að hrópa bravó. Hér
þarf ekki að tíunda frammistöðu
hvers leikara. Það er mikil breidd í
aldri og reynslu innan hópsins og
það gerir hann svo skemmtilega
áhugaverðan að fylgjast með. Allir
njóta sín eins vel og kostur er. Þessi
samvinna hópsins verður töfrum
líkust og úr verður leikhúsveisla
fyrir börn jafnt sem fullorðna. Um
tíma gleymdi ég því að vera fullorð-
inn og leyfði mér bara að vera barn
sem upplifði ósvikinn galdur leik-
hússins. Ég get ekki orða bundist
yfir leikbrúðumeistaranum. Hann
er mikill fengur fyrir íslenskt leik-
hús. Ég vil einnig hrósa þeirri
dirfsku höfundanna að láta flytja
sögu litlu stúlkunnar með eldspýt-
urnar í bundnu máli. Það veitir ekki
af að þjálfa brageyra íslenskra
barna, enda var hún meistaralega
flutt af Sigurði Skúlasyni í hlutverki
H.C.Andersens sjálfs. Skemmtileg
og mannbætandi ævintýrasýning
fyrir alla fjölskylduna. ■
Galdur leikhússins
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
2 3 4 5 6 7 8
Þriðjudagur
APRÍL
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Klaufar og kóngsdætur
Þjóðleikhúsið
Höfundar: Ármann Guðmundsson,
Sævar Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggva-
son Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Leik-
mynd: Frosti Friðriksson Búningar:
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir Tónlistar-
stjórn: Jóhann G. Jóhannsson Brúður
og brúðuleikstjórn: Bernd Ogrodnik
Lýsing: Páll Ragnarsson Leikarar: Arn-
björg Hlíf Valsdóttir, Björgvin Franz Gísla-
son, Kjartan Guðjónsson, Randver Þor-
láksson, Sigurður Skúlason, Unnur Ösp
Stefánsdóttir, Þórunn Lárusdóttir og Örn
Árnason. Hljóðfæraleikarar: Hjörleifur
Valsson, Jóhann G. Jóhannson og Tatu
Kantoma.
NIÐURSTAÐA: Skemmtileg og mann-
bætandi ævintýrasýning fyrir alla fjölskyld-
una.
ÖRN ÁRNASON Í EINU AF HLUTVERK-
UM SÍNUM Valgeir Skagfjörð brá sér á
Klaufa og kóngsdætur, heillandi ævintýra-
sýningu Þjóðleikhússins í tilefni af tveggja
alda afmæli H. C. Andersens.