Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 38

Fréttablaðið - 05.04.2005, Síða 38
30 5. apríl 2005 ÞRIÐJUDAGUR Föstudagurinn 1. apríl reyndistansi afdrifaríkur á fréttastofu Út- varps. Auðun Georg Ólafsson mætti loks upp í Efstaleiti en eftir móttökurnar sem hann fékk þar snérist honum hugur og hætti við að taka starfið. Fréttamenn Útvarpsins höfðu ákveðið að hittast seinna um kvöldið til að efla liðsand- ann og drekkja sorgum sínum. Miðað við það sem á undan var gengið var búist við að það yrði frekar dauft yfir mann- skapnum og voru menn ekki einu sinni vissir um að það næðist að hóa mannskapnum saman. En eftir að yfirlýsingin frá Auðuni Georg barst breyttist samkvæmið hins veg- ar í líflegt partí þar sem starfsmenn fréttastofu skvettu úr klaufunum. Sagan segir að drykkjan hafi jafnvel farið úr hófi fram enda álagið á starfsfólki fréttastofunnar, sem og öllum þeim sem komu að stóra fréttastjóramálinu, búið að vera gríðarlegt og menn ekki allir undir það búnir að gefa sig Bakkusi á vald. Meistari Megas verður 60 árafimmtudaginn 7. apríl og af því tilefni verður blásið til veglegra af- mælistónleika í Austur- bæ á afmælisdaginn. Tónleikarnir eru haldnir með sam- þykki Megasar sem mun þó ekki troða upp sjálfur og meistarinn virðist að öðru leyti vilja sem minnst af af- mæli sínu vita. Hann hefur til að mynda þvertekið fyrir öll viðtöl við fjölmiðla í tilefni af tímamótunum og sagan segir að sjálfur Gísli Marteinn Baldursson, sem nýlega gerði tvo Laugardags- kvöldsþætti með Stuð- mönnum, hafi orðið að falla frá áform- um um að gera sér- stakan þátt um Megas vegna áhugaleysis við- fangsefnisins sem kemst á vægast sagt virðulegan aldur á fimmtudaginn. 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 – hefur þú séð DV í dag? Móðirin smyglaði 5.000 e-töflum til landsins og var tekin Barn dópsmyglara elst upp í kvennafangelsinu í Kópavogi Það var líf og fjör í Borgarleikhús- inu á sunnudaginn var þegar Lína Langsokkur kvaddi áhorfendur í síðasta sinn. Þegar leikarar voru að hneigja sig eftir afar vel heppnaða sýningu ruddist sjálfur Kalli á þak- inu inn á sviðið og brá á leik með Línu. Stukku þau um sviðið og velt- ust um í faðmlögum áður en Kalli tilkynnti að hann hygðist taka við af Línu á Stóra sviðinu. Bætti hann við að hann yrði rosalega reiður ef áhorfendur létu sig vanta á sýning- arnar hans. Áhorfendur tóku vel á móti Kalla enda sjálfur Sveppi, einn vinsælasti sjónvarpsmaður landsins, þar mættur sem mun túlka strákinn með þyrluspaðana á rassinum í sumar. Sýningar á Kalla á þakinu hefjast sumardaginn fyrsta eða þann 21. apríl. ■ Kalli heimsótti Línu langsokk KALLI OG LÍNA Afkvæmi Astrid Lindgren brugðu á leik á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu á sunnudaginn var við mikla kátínu áhorfenda. [ VEISTU SVARIÐ ] Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 60 prósent. Mælt er með því að þær verði fyrst þvegnar eftir sex til átta mánuði. Ragna Ingólfsdóttir og Helgi Jó- hannesson. Jóhann Bachmann er hættur sem trommuleikari í Írafári, einni vinsælustu sveitaballahljóm- sveit landsins. Hanni, eins og hann er oftast kallaður, hefur leikið með Írafári síðustu ár en hann er einnig trommari í annarri vinsælli sveitaballa- hljómsveit, Skítamóral frá Sel- fossi. „Skítamórall er búinn að bóka sig í allt sumar svo Hanni mun spila með þeim en ekki okkur,“ segir Vignir Snær Vigfússon, gít- arleikari og aðallagahöfundur Írafárs. „Við erum komin með annan trommara sem mun að minnsta kosti leika með okkur í sumar.“ Eins og alþjóð veit voru Hanni og Birgitta Haukdal, söngkona Írafárs, par um langt skeið en þau skildu að skiptum fyrir nokkru. Vignir segir að Hanni skilji við hljómsveitina í mesta bróðerni og þvertekur fyrir að samstarfsörðugleikar hafi átt sér stað milli trommuleikarans og söngkonunnar. „Það er bölvuð vitleysa enda unnu þau saman í hálft ár eftir að þau hættu saman og það gekk ágætlega,“ segir Vignir. Nýi trommuleikari Írafárs heitir Arnar Þór Gíslason. Hann er bróðir Halla trommuleikara í Botnleðju og hefur meðal annars leikið með hljómsveitum á borð við Stolíu, Ensími, Dr. Spock og Bang Gang. Arnar Þór hefur þeg- ar leikið með Írafári á þrennum tónleikum; Samfésballinu, skóla- balli í Kópavogi og tónlistarhá- tíðinni Aldrei fór ég suður. Írafár er komin á fullt eftir dágott hlé og í bígerð er ný plata. Að sögn Vignis Snæs má búast við að hún komi út strax eftir sumarið. ■ HANNI OG BIRGITTA Hann er hættur að tromma með Írafári og snýr sér aftur að Skímó. BREYTINGAR HJÁ BIRGITTU: NÝR TROMMULEIKARI Hanni hættur í Írafári FRÉTTIR AF FÓLKI Dótið? Eftirlíking af Icar- us-vél Leonardos Da Vinci. Sem er? Flugvél sem blakar vængjun- um. Kanadískir vísindamenn hafa verið að vinna að því að láta gamlan draum rætast og búa til flugvél sem flýgur um loftin blá með því að blaka vængjunum eins og fugl. Prófessor James DeLaurier, við Háskólann í Toronto, hefur ver- ið að vinna að flugvélinni ásamt útskriftar- nemum sínum. Hugmyndin með vélinni er að hún lyftist upp af jörðinni með því að blaka vængjunum á henni. Stefnt er að því að reyna vélina í fyrsta sinn nú í apríl en það er flugmaðurinn Jack Sanderson sem mun taka þetta stóra en jafnframt hættulega hlut- verk að sér. Fyrirmyndin? Hugmyndin að flugvélinni er komin frá sjálfum Leonardo da Vinci sem reyndi að búa til svipaða vél á sínum tíma. Í stað þess að láta vélarafl knýja hreyfla sem koma vélinni áfram er hugmyndin að láta vél- arnar blaka vængjunum upp og niður og skapa þannig loftstreymi sem lyftir henni upp. DeLaurier fékk hugmyndina að vél- inni á sjöunda áratug síðustu aldar og hefur verið að vinna að henni frá 1996. Hann hefur þegar prufukeyrt litla útgáfu á vélinni og náði hún nokkrum ágætum „hoppum“ og allt að fimmtíu kílómetra hraða. Gallar? Ekki er búist við því að flugvélin muni standast nútíma vélum snúninginn enda segist DeLaurier vera að láta gamlan draum rætast. „Það má segja að við séum að gera þetta fyrir fegurðina.“ DÓTAKASSINN ...fá eigendur kaffihússins Sega- fredo sem gefa viðskiptavinum sínum kost á að sötra kaffi í full- komnu reykleysi inni á staðnum og bjóða þeim sem vilja fara út til að reykja teppi svo þeir geti yljað sér yfir kaffibollanum. HRÓSIÐ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. ADDI TROMMARI Nýi trommuleikarinn í Írafári er bróðir Halla trommuleikara Botnuleðju. M YN D W W W .E N SI M I.I S Lárétt: 2mars,6oh,8uúv, 9lát,11so, 13flakk,14flein,16án,17mno,18tak, 20nr, 21aðal. Lóðrétt: 1golf, 3au,4rúskinn,5svo,7 hálfnað,10tal,13kem,15norn,16áta, 19ka. Lárétt: 2 stjarna, 6 upphrópun, 8 í röð, 9 dauði, 11 sagnorð, 12 ferðalag, 14 spjót, 16 utan, 17 í röð, 18 handfesta, 20 núm- er, 21 fyrirfólk. Lóðrétt: 1 íþrótt, 3 tvíhljóði, 4 sútað skinn, 5 þannig, 7 komið vel á veg, 10 mál, 13 mun birtast, 15 galdrakvendi, 16 fæða, 19 íþróttafélag. Lausn SJÓNVARPSDAGSKRÁ VIKUNNAR »

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.