Fréttablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 50
Um helgina verður finnski org-
anistinn Maija Lehtonen gestur
tónleikaraðarinnar Sumarkvöld
við orgelið ásamt eiginmanni sín-
um, Manfred Gräsbeck fiðluleik-
ara. Lehtonen og Gräsbeck eru
meðal fremstu listamanna Norð-
urlanda á sínu sviði og koma
þeirra hingað er styrkt af Finnsk-
íslenska menningarsjóðnum.
Saman munu hjónin flytja
stutta dagskrá klukkan tólf á há-
degi á laugardag en Maija leikur
ein á aðaltónleikunum sem verða
á sunnudagskvöld klukkan átta.
Tónleikarnir eru haldnir í Hall-
grímskrikju.
Á efnisskrá laugardagstón-
leikanna eru smáverk eftir Fritz
Kreisler, þættir úr Partíu í d-moll
eftir Johann Sebastian Bach og
Fantasía eftir Pablo de Sarasate
um stef úr Töfraflautunni eftir
Mozart.
Á sunnudagstónleikunum flyt-
ur Maija meðal annars norður-
þýsk barokkverk, Prelúdíu í e-
moll eftir Nicolaus Bruhns og
þrjú verk eftir Johann Sebastian
Bach. ■
34 15. júlí 2005 FÖSTUDAGUR
EKKI MISSA AF…
...miðnæturopnunum bóka-
verslananna Máls og menningar
við Laugaveg, Pennans-Eymunds-
sonar við Austurstræti og Penn-
ans-Bókvals á Akureyri vegna út-
komu sjöttu bókarinnar um Harry
Potter.
...spunagítarleikararnum og
tónskáldinu Fred Firth sem heldur
tónleika í Klink og Bank klukkan
21 á laugardaginn.
..síðdegisitónleikum með
djasskvartettinum LOS í Norræna
húsinu á sunnudaginn klukkan
16.
Dagana 17. -19. júlí heldur Ýlir þrenna tón-
leika á Austurlandi og flytur íslenska tónlist
með alþjóðlegu ívafi af samnefndum hljóm-
diski sem kom út hjá hinu virta útgáfufyrirtæki
ECM. Ýlir eru Gerður Gunnarsdóttir, sem leikur
á fiðlu og syngur, og Claudio Puntin, sem leik-
ur á klarinett og bassaklarinett. Þau hafa feng-
ið afar góða gagnrýni fyrir tónleika sína er-
lendis og einnig fyrir hljómdiskinn sem hlotið
hefur einróma lof gagnrýnenda.
Tónleikarnir verða sem hér segir: Kirkju- og
menningarmiðstöðinni á Eskifirði sunnudag-
inn 17. júlí kl. 20.00. Skriðuklaustri í Fljótsdal
mánudaginn 18. júlí kl. 20.00. Safnaðarheimili
Vopnafjarðarkirkju þriðjudaginn 19. júlí kl.
20.30. Aðgangseyrir er kr. 1000.
Á veitingastaðnum Jómfrúnni við Lækj-
argötu eru haldnir djasstónleikar á laug-
ardögum klukkan 16. Á morgun leikur
tríóið B-3 sem skipað er þeim Ásgeiri
Ásgeirssyni á gítar, Agnari Má Magnús-
syni á Hammond orgel og Erik Qvick á
trommur.
menning@frettabladid.is
Ýlir á Austurlandi
!
Spunagítarleikarinn Fred Frith
heldur tónleika í Klink & Bank
annað kvöld. Fyrir utan að hafa
gefið út fjöldann allan af sóló-
plötum, með bæði fyrirfram
saminni tónlist og tónlist sem er
spunnin, hefur hann starfað með
hljómsveitum á borð við Naked
City, Henry Cow, Massacre og
Skeleton Crew, auk þess sem
hann hefur verið orðaður við
hina dularfullu Residents. Á
meðal þeirra tónlistarmanna
sem Frith hefur unnið með eru
John Zorn, Bill Laswell, Ikue
Mori, Zeena Parkins, Brian Eno,
Robert Wyatt og William Win-
ant.
„Hann er býsna þekktur og
hefur komið víða við á þrjátíu
ára ferli,“ segir Guðmundur
Steinn Gunnarsson, einn af að-
standendum tónleikanna. „Hann
byrjaði upprunalega að láta á
sér bera með Henry Cow á átt-
unda áratugum sem var mjög
framsækin Frank Zappa-leg
hljómsveit,“ segir hann. „Það er
mikill fengur í komu hans hér til
landsins.
Hann var að heimsækja vina-
fólk hér og við fréttum af því og
spurðum hvort hann væri ekki
til í að halda tónleika. Hann var
alveg til í það.“
Sem tónskáld hefur Frith
samið fyrir þekkta tónlistar-
hópa á borð við Asko Ensemble,
Rova Saxophone Quartet,
Arditti kvartettinn og Ensemble
Modern. Auk þess hefur hann
samið mikið af tónlist fyrir
kvikmyndir og dansverk. Frith
hefur gefið út mikið af ólíku
efni hjá ýmsum útgáfum, meðal
annars Winter&Winter og Tza-
dik.
Á tónleikunum annað kvöld,
sem hefjast klukkan 21.00,
leikur Fred einn á umbreyttan
gítar, en það hefur hann gert í
mörg ár. Hann notar meðal ann-
ars verkfæri og heimilisáhöld til
þess að spila á gítarinn. Á þessu
sviði hefur Fred haft mikil áhrif
og fjöldinn allur af gítarleik-
urum hefur orðið fyrir áhrifum
frá honum.
Hljómsveitin Hestbak hitar
upp fyrir Frith en einnig koma
Charles Ross fiðluleikari og Ró-
bert Reynisson gítarleikari
fram. Miðaverð á tónleikana er
1000 krónur. ■
Frægur spunagítarleikari á Íslandi
FRED FRITH Spunagítarleikarinn Fred
Frith heldur tónleika í Klink & Bank annað
kvöld.
Barokk og rómantík
á sumartónleikum
MAIJA LEHTONEN OG MANFRED GRÄSBECK Maija Lehtonen lauk organistaprófi árið 1982
ÝLIR Gerður Gunnarsdóttir, sem syngur og leikur
á fiðlu, og Claudio Puntin, sem leikur á klarinett
og bassaklarinett, mynda Ýli. Þau hafa nýverið gef-
ið út disk hjá hinu virta útgáfufyrirtæki ECM.
Hljómsveitin Ampop mun flytja lög
af væntanlegri plötu sinni, Weather
Report, á tvennum tónleikum í dag.
Fyrst spilar sveitin í Gallerý humar
& frægð í plötubúð Smekkleysu
klukkan 17.00 og um kvöldið stígur
hún á stokk í Stúdentakjallaranum
ásamt Jan Mayen, Norton og
Hermigervli. Þeir tónleikar hefjast
klukkan 22.00.
Ampop hefur verið á ferð og
flugi að undanförnu og hefur meðal
annars leikið á tónlistarhátíðum í
Bandaríkjunum og Kanada. Lagið
My Delusions verður fyrsta smá-
skífulag nýju plötunnar, sem er
væntanleg í haust. ■
Ampop á tvennum tónleikum
AMPOP Hljómsveitin Ampop gefur á
næstunni út sína þriðju plötu.