Fréttablaðið - 15.07.2005, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
ÍSKALDUR
EINN LÉTTUR
Málum bæinn
RAUÐAN!
Svakalega sem maður getur haftmikla heimþrá, sitjandi inni í
húsi í miðri Kaliforníu. Ekki hundi
út sigandi fyrir brennandi sól.
Hitinn 47 gráður. Ekkert annað að
gera í stöðunni en vera iðinn við að
fylgjast með heimsfréttunum. Sem
gera ekkert annað en að segja
manni að fara nú að hunskast heim
til Íslands, sem er best allra landa.
EKKI erum við með svo vond hús
að þau halli sér í hversdagslegu
roki sem annars staðar er kallað
fellibyljir. Ekki eigum við á hættu
að drepast úr sólsting. Ekki erum
við með bæjarvillinga og bófa sem
búa til sprengjur til þess að
sprengja upp neðanjarðarlestir. Við
erum ekki einu sinni með neðan-
jarðarlestir. Ekki erum við að klas-
tra saman geimflaug sem kostar
hundrað milljarða og kemst svo
ekki úr bílskúrnum vegna þess að
hún er með ónýta eldsneytis-skyn-
jara.
ÓEKKI. Við erum með svo mörg
veður hvern dag að við þurfum
aldrei að gera það upp við okkur
hvort það er gott eða vont. Okkar
villingar gefa bara einn á kjam-
mann, eða þeir fara í Hróa-hattar-
leik. Og svo kaupum við heiminn.
Við erum ekki bara fallegust,
sterkust, hreinust og best. Við
erum líka ríkust. Eyðum fimm
hundruð milljörðum í að kaupa upp
heiminn á átján mánuðum. Það er
nú bara jafnvirði fimm geimflauga.
Kannski við ættum að kaupa eina,
gera við skynjarana og fíra henni
af stað. Við gætum það, vegna þess
að við erum svo gott handverksfólk
og vel lukkuð. Getum allt.
Á MEÐAN aðrar þjóðir sprengja,
skjóta, brenna og týna, blómstrum
við sem aldrei fyrr. Kaupum í dag
allt sem verður sprengt á morgun.
Samt skrítið að allir sem maður
þekkir eru skítblankir og skuldug-
ir. En við erum líka flínkari en aðr-
ar þjóðir að skulda. Til dæmis,
erum við að kaupa upp heiminn á
lánum.
ÞEGAR ÉG er orðin stór, ætla ég
að fara heim til Íslands, taka lán og
kaupa sjoppu í Southampton, aðra í
Frankfurt og þá þriðju í Sofia. Svo
ætla ég að taka lán út á sjoppurnar
og kaupa mjólkurbú í Rússlandi,
Rúmeníu og Perú. Búa á Íslandi og
verða milljarðaskuldari og grósser
um allan heim.
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR
Heimseig-
endurnir